Fréttablaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 10
6. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
VERÐ FRÁ EINUNGIS 2.190.000 KR. - GERÐU VERÐSAMANBURÐ
.
Mazda2 er sparneytinn, ótrúlega lipur og hagkvæmur í rekstri. Hann er búinn öflugri 1,3 lítra bensínvél sem þó eyðir
einungis frá 4,3 l/100 km og fær frítt í stæði. Mazda2 er áreiðanlegur, öruggur, vel búinn og frábær í endursölu.
Taktu snúning á Mazda2, gerðu góð kaup og lækkaðu rekstrarkostnaðinn.
MAZDA. DEFY CONVENTION.
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17 og laugardaga frá kl. 12-16.
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is
Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
*
Mazda2 eyðir 4,3 l/100 km í langkeyrslu og fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur í 90 mínútur í senn.
5 stjörnu öryggi!
Fulltrúar páfa yfirheyrðir
1SVISS Sérfræðingar á vegum Sameinuðu þjóðanna yfirheyrðu í gær enn á ný fulltrúa Páfagarðs um barnaníðinga innan kirkjunnar og líktu slælegum
viðbrögðum Páfagarðs við pyntingar. Silvano Tomasi erkibiskup sagði kaþólsku
kirkjuna vera að reyna að koma sínum málum í lag.
Flóttamenn drukkna
2GRIKKLAND Að minnsta kosti 22 flóttamenn drukknuðu þegar skútu hvolfdi ásamt litlum báti skammt frá eyjunni Samos í austanverðu
Eyjahafi. Um borð voru fjölmargir flóttamenn sem hugðust reyna að komast
til Grikklands. Meðal þeirra sem drukknuðu voru fjölskyldur, sem komust ekki
út úr káetu skútunnar. Margir flóttamannanna voru frá stríðshrjáðum löndum
í Afríku og Mið-Austurlöndum.
Afganar leita enn
3AFGANISTAN Fólk í þorpinu Abu Barik í norðvestanverðu Afganistan leitar enn ættingja sinna í rústum húsa sem grófust undir aurskriðu á föstudag.
Hundruð manna létu lífið og hundruð fjölskyldna að auki hafa misst heimili
sitt. Sumum hefur tekist að komast til nærliggjandi þorpa, þar sem þeir hafa
fengið húsaskjól hjá ættingjum. Aðrir hafast við í tjöldum.
MISSTU
HEIMILI SÍN
Íbúar þorpsins
Aab Bareek í
Argo-héraði
í Badakhsan
í Afganistan.
NORDICPHOTOS/AFP
UMHVERFISMÁL „Fiskeldi getur átt
glæsta framtíð fyrir sér en ekki ef
haldið er áfram á núverandi villi-
braut, ef marka má alla þá erlendu
sérfræðinga sem hér hafa talað á
málþingum í vetur,“ segir Orri Vig-
fússon í umsögn til Alþingis vegna
frumvarps um fiskeldismál sem
þar er til umfjöllunar.
Frumvarpi
ríkisstjórnarinn-
ar um breytingar
á lögum um fisk-
eldi er ætlað að
einfalda stjórn-
sýslu og eftir-
lit með fiskeldi
og hraða og ein-
falda veitingu
starfs- og rekstrar leyfa til að gera
starfsemi vegna fiskeldis sem skil-
virkasta.
„Engin stefnumótun hefur verið
mörkuð, engar undirbúningsrann-
sóknir farið fram og grunngögn
vantar um sjávarumhverfið, meðal
annars straumfræði, súrefnis-
mettun, sjóskipti og fjölmargt
fleira,“ segir í umsögn Orra, sem er
formaður Norður-Atlantshafslaxa-
sjóðsins (NASF).
Orri kveðst telja að verði frum-
varpið að veruleika geti ímynd
sjávarfangs og landbúnaðarvara
frá Íslandi beðið langvarandi skaða.
„Skipulagsmálin eru í ólestri og
ef núverandi frumvarp verður sam-
þykkt eykst öngþveitið enn meir og
við munum sitja uppi með skaðað
lífríki, í óþökk eigenda sjávarjarða
og veiðiréttareigenda. Niður staðan
er þá komin í ógöngur með illa
skipulagða framleiðslu sem skilar
fáeinum láglaunastörfum og óheyri-
legum kostnaði fyrir skattgreiðend-
ur,“ segir Orri í umsögninni sem
send var nefndasviði Alþingis í gær.
Í bréfi Orra til LÍÚ og Sam-
taka atvinnulífsins í apríl sagð-
ist hann ósáttur við umsögn þess-
ara aðila um frumvarpið. Við
gerð þess hefði einungis verið
haft samband við talsmenn fisk-
eldis, en ekkert við lögvernd-
aða einkaeignarrétthafa sem
eiga hagsmuna að gæta í mál-
inu og heldur ekki við þá sem
tala fyrir vernd umhverfisins
og villtra laxfiska – þar á meðal
Norður-Atlantshafslaxa sjóðinn
og Veiðimálastofnun. Erlendum
sérfræðingum bæri saman um
að hér væri um mikla náttúruvá
að ræða og vöruðu nánast einum
rómi Íslendinga við fljótfærni.
„Á meðan þúsundir háskóla og
vísindastofnana um allan heim
leita leiða til að leysa þessi vanda-
mál ætlum við að leyfa þetta meira
og minna óséð og láta okkur skatt-
greiðendur, enn eina ferðina, taka á
okkur ábyrgðir fyrir hundruð millj-
arða,“ sagði Orri. Þá benti hann á
að þótt smábátasjómenn megi ekki
henda úrgangi í sjóinn sé fisk eldið
ekki háð neinum takmörkunum
fyrir úrgangslosun.
„25 þúsund tonna laxeldi, eins og
fyrirhugað er á Patreksfirði, skilar
úrgangi á við 400 til 500 þúsund
manna bæjarfélag,“ sagði í fyrri
umsögn formanns NASF.
gar@frettabladid.is
LAXELDI Í MJÓAFIRÐI Formaður NASF segir fyrirhugað laxeldi á Patreksfirði skila
úrgangi á við 400 til 500 þúsund manns. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
Úrgangur nýs laxeldis
eins og frá stórri borg
Formaður Norður-Atlantshafslaxasjóðsins segir fyrirhugaðar breytingar á lögum
um fiskeldi skaða lífríkið og ímynd Íslands. Skattgreiðendur taki á sig hundraða
milljarða króna ábyrgðir. Breytingarnar eiga að einfalda stjórnsýslu og eftirlit.
ORRI VIGFÚSSON
HEIMURINN
1 2
3