Fréttablaðið - 06.05.2014, Side 13
ÞRIÐJUDAGUR 6. maí 2014 | SKOÐUN | 13
Þegar maður veltir fyrir sér
merkingu orða og tengingu
þeirra við sjúkdóma getur verið
skemmtilegt að tengja saman hin
ýmsu orð og einkenni. Læknar
þekkja það býsna vel að ein
algengasta ástæðan fyrir því að
sjúklingur leitar til þeirra er bak-
vandamál. Mætti segja í gamni
að þá hæfist í upphafi svokallað
baktal í óeiginlegri merkingu þar
sem fjallað er um einkenni og
líðan viðkomandi, en ekki í hinum
hefðbundna skilningi að tala illa
um viðkomandi án þess að hann
viti af því.
Oftar en ekki kemur í ljós að
um þursabit eða skessuskot er að
ræða, hvora óvættina sem maður
velur að tengja verkinn við. Hvað
sem veldur eru bakverkir ein
algengasta orsök fjarveru frá
vinnu í hinum vestræna heimi.
Það er talsvert á reiki hversu
hátt hlutfall fullorðinna fær
bakverki eða einkenni frá baki,
en flest þekkjum við að finna
fyrir því á einn eða annan hátt. Í
nýlegri könnun um heilsu og líðan
Íslendinga kemur fram að ríflega
26% hafa á einhverjum tíma-
punkti haft langvinna bakveiki
eins og það er kallað, en ein skil-
greining á því er að einkenni hafi
staðið í meira en þrjá mánuði sam-
fleytt. Þá er auðvelt að ímynda sér
að líklega tvöfalt eða þrefalt fleiri
hafi fengið skammvinna verki líkt
og vættaskotin ofangreindu.
Flokkun bakverkja er mikil-
væg, þeim er skipt upp eftir bráð-
leika og staðsetningu en einnig
orsakasamhengi og undirliggjandi
vanda sjúklings. Þannig reynir
læknirinn að átta sig á því í hverju
vandinn liggur, auk þess að stuðla
þannig að meðferð við hæfi. Þá
getur verið mjög mikilvægt að
vita hvort viðkomandi hafi fengið
slíkt áður og/eða hvort um er að
ræða versnun einkenna. Í yfir-
gnæfandi meirihluta tilvika er
engin þörf á sértækri meðferð og
verkurinn fer án teljandi inngripa
á nokkrum dögum eða vikum og
viðkomandi ætti að fara til vinnu
og virkni hið fyrsta.
Ástæðurnar fjöldamargar
Ástæðurnar eru fjöldamargar
en þær allra algengustu tengjast
almennri kyrrsetu, hreyfingar-
leysi, offitu og lélegri líkams-
beitingu. Sértækari ástæður
eins og beinir áverkar, brjósklos,
gigtarsjúkdómar, beinþynning,
samfallsbrot, sýkingar og jafn-
vel krabbamein geta valdið bæði
bráðum og langvinnum verkjum í
baki og má ekki gleyma.
Það sem er áhugavert í
tengslum við verki er að það
er ekki með góðu móti hægt að
mæla þá. Einstaklingar hafa
misháan sársaukaþröskuld og
alvarlegustu sjúkdómarnir gefa
ekki endilega mestu verkina.
Þannig verður „baktalið“ og skoð-
unin verulega lituð af því hvað
sjúklingnum finnst sjálfum. Vel
er þekkt að menn og reyndar
konur líka séu alveg að „drepast“
úr bakverkjum sem hvorki er
hægt að sjá, finna né greina með
neinni annarri aðferð en frásögn
viðkomandi.
Togstreita
Þetta getur valdið á stundum
togstreitu varðandi þá meðferð
sem veitt er og þær rannsóknir
sem boðið er upp á. Við vitum til
dæmis að meirihluti þeirra tölvu-
sneiðmynda sem gerðar eru af
mjóbaki leiða ekki til neinnar
breytingar á meðferð eða nálgun
á vandamálið. Þannig er verið að
geisla umtalsvert meira en þörf
er á. Ég ætla engu að síður að
undirstrika nauðsyn þess að fá
slíkar myndir fyrir ákveðinn hóp,
þá sérstaklega ef ekki er um að
ræða bata með hefðbundinni með-
ferð.
Erlendis hefur verið reynt að
láta sjúkraþjálfara vera fyrsta
fagaðila sem einstaklingur með
bakverki hittir og hefur það
gagnast vel. Hreyfing og leiðbein-
ingar um líkamsstöðu eru lykilat-
riði og aldrei of oft sagt. Ólyfseð-
ilsskyld lyf ættu að vera fyrsta
val en oft þarf sterkari verkja-
lyf, taugalyf, slakandi og jafnvel
þunglyndislyf.
Sprautumeðferð og skurðað-
gerðir eru álitin úrræði sem fáir
þurfa, en engu að síður nauð-
synleg í ákveðnum tilvikum og
með réttri ábendingu. Mismuna-
greining og útilokun alvarlegri
sjúkdóma hjá sjúklingum með
langvinna bakverki er nauðsyn.
Fræðsla er mikilvæg og sértæk
nálgun á vandamál hvers og eins
en oft og tíðum reynir á þolin-
mæði í þessari glímu.
Baktal og þursabit
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Hreyfing og leiðbein-
ingar um líkams-
stöðu eru lykilatriði og
aldrei of oft sagt.
Mikið hefur verið
þráttað um fram-
tíð Reykjavíkur-
flugvallar, einkum
frá aldamótum.
Ríkið og Reykja-
víkurborg hafa
verið í alls kyns
hrossakaupum
um samgöngu-
miðstöð, aðflug-
sljós, trjáklipping-
ar, kennsluflug,
neyðarflugbraut
og loks niðurrif Reykjavíkurflug-
vallar.
Til tíðinda dró þó þann 25. októ-
ber sl. þegar undirrituð voru tvö
samkomulög í Hörpu. Annað var
undirritað af forsætisráðherra,
innanríkisráðherra, borgarstjóra,
formanni borgarráðs og forstjóra
Icelandair Group og sneri að því að
fresta lokun aðalflugbrautar, N/S-
brautar, frá 2016 til 2022, til sam-
ræmis við gildandi samgönguáætl-
un og setja á laggirnar nefnd sem á
að kanna til hlítar hvort önnur stað-
setning finnist fyrir flugvöll á höf-
uðborgarsvæðinu.
Hitt samkomulagið varð til
vegna þess að forsætisráðherra
þvertók fyrir að skrifa undir þau
ákvæði sem þar eru, meðal annars
lokun neyðarbrautarinnar (NA/SV)
og úthýsingu kennslu- og æfinga-
flugs af Reykjavíkurflugvelli.
Þegar þetta var undirritað þá lá
ekki fyrir áhættumat vegna lok-
unar á neyðarbrautinni eða mögu-
leg staðsetning fyrir kennslu- og
æfingaflug. Hins vegar lá fyrir að
Reykjavíkurflugvöllur færi í rusl-
flokk á alþjóðlegan mælikvarða við
lokun neyðarbrautarinnar.
Við þetta má
ekki una. Ef
enginn stendur
vörð um miðstöð
innanlandsflugs
nú, þá er raun-
veruleg hætta
á því að flug-
vallarandstæð-
ingar í núver-
andi meirihluta
borgarstjórnar
fái tækifæri til
að ljúka ætlun-
arverki sínu og rífa Reykjavíkur-
flugvöll í flumbrugangi þrátt fyrir
að ljóst sé að um 72% borgarbúa
séu því mótfallin. Það yrði þá ekki
í fyrsta sinn sem meirihluti Sam-
fylkingar og Besta flokksins, nú
Bjartrar framtíðar, færi í van-
hugsaðar framkvæmdir sem spilla
samgöngum, eins og dæmin sanna.
Þar standa upp úr framkvæmdir
við Hofsvallagötu, Borgartún, að
ógleymdri Snorrabraut, sem spillt
var þrátt fyrir öflug mótmæli
Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins
á þeim grundvelli að það ógnaði
öryggi íbúa norðurborgarinnar.
Þá er rétt að nefna að eftir að
í hámæli komust draumkennd-
ar og yfirgangssamar hugmyndir
meirihluta Samfylkingar og Besta
flokksins við hverfisskipulag, þá
sáu þau þann kostinn vænstan að
fella eigin tillögur í borgarráði.
Vinnubrögð sem þessi, þar sem
unnið er gegn vilja borgarbúa og
reynt að fara á bak við þá, mega
ekki líðast í opinberri stjórnsýslu.
Stöndum vörð um vilja borgarbúa,
kjósum Framsókn og flugvallar-
vini til að tryggja opna og faglega
stjórnsýslu.
Stöndum vörð um
hjartað í Vatnsmýri
SKIPULAGSMÁL
Sveinbjörg Birna
Sveinbjörnsdóttir
Greta Björg
Egilsdóttir
höfundar eru í 1. og 3. sæti á lista Fram-
sóknar og fl ugvallarvina.