Fréttablaðið - 06.05.2014, Síða 18
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýs-
ingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kolli@365.is, s. 512-5447
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
SYNT Í SJÓ Þessir fjórir vinir tóku þátt í Skerjafjarðarsundi í fyrra þar sem þeir syntu saman frá Grímsstaðavör á Ægisíðunni til Álfta-
ness, sömu leið og Eyjólfur synti forðum. AÐSEND MYND
Félagar í Sjósunds og sjó-baðsfélagi Reykjavíkur eru sammála um að sjósund
sé holl og góð hreyfing. „Við
teljum þetta vera eins og hverja
aðra hreyfingu sem stuðlar að
almennu heilbrigði. Það er líka
gott að skella sér í sjóinn á eftir
annarri íþróttaiðkun, svo sem
hlaupum. Það er hollt að kæla sig
niður og endurnæra líkamann.
Fólk hefur talað um að það verði
betra af vöðvabólgu, psoriasis
og fleiru við að stunda sjóböðin,“
segir Ragnheiður Valgarðsdóttir,
formaður Sjósunds og sjóbaðs-
félags Reykjavíkur. „Ein af aðal-
ástæðum fyrir stofnun félagsins
var að efla öryggi þeirra sem
stunda sjósund eða sjóböð í
Nauthólsvík og annars staðar.
Við trúum því að fjöldi iðkenda
í þessu frábæra jaðarsporti eigi
bara eftir að aukast á komandi
árum og því þörf á félagi til að
halda utan um hlutina.“
Það verður nóg um að vera í
sjónum í sumar fyrir félagsmenn
SJÓR. „Við ætlum að vera með
Fossvogssund og svo verður
synt út í Viðey föstudaginn fyrir
menningarnótt. Einnig bjóðum
við upp á Skerjafjarðarsund og
Bessastaðasund fyrir þá sem vilja
reyna sig við langar vegalengdir
en það er 4,5 kílómetra langt. Svo
verða nokkrir góðir sundstaðir
heimsóttir, til að mynda Kleifar-
vatn, Hausastaðir, Straumur og
Skötubótin í Þorlákshöfn. Við
ráðgerum einnig að fara í öldu-
sund uppi á Akranesi, sólseturs-
sund og sjósund við Garðskaga-
vita þegar veðrið er hagstætt. Í
haust stefnum við svo á dagsferð
vestur á Reykhóla þar sem við
ætlum að synda í sjónum og fara
í skoðunarferð um Þörungaverk-
smiðjuna.“
Ragnheiður segir tilganginn
með þessum ferðum vera þann
að stuðla að því að fólk sé ekki
að synda eitt. „Það býður hætt-
unni heim að synda einn. Með
ferðunum viljum við einnig kynna
fleiri skemmtilega og örugga sjó-
sundstaði fyrir fólki. Fólk er farið
að synda víðar en í Nauthólsvík
og við fáum alltaf fleiri og fleiri
fyrirspurnir um hvar sé hægt að
synda í sjónum víða um landið.“
Ragnheiður er einnig í stjórn
Víðavatnsnefndar Sundsam-
bands Íslands sem ætlar að
halda sjósundskeppnir á Seyðis-
firði, Ísafirði, Akranesi, Akureyri
og í Reykjavík í sumar. „Það eru
komnir öflugir hópar fólks sem
stundar sjósund víða um land.
Marga langar til að prófa en
hafa sig ekki í það af ein hverjum
ástæðum. Flestir prófa með ein-
hverjum öðrum og þá kemur í
ljós hvort fólk heillast eða ekki
og það eru ansi margir sem
heillast.“
Þeir sem áhuga hafa á að prófa
sjósund geta farið í Nauthólsvík
alla miðvikudaga klukkan 17.30
eftir fimmtánda maí. Þá er tekið
á móti nýliðum og þeim leið-
beint af vönum sjósundsgörpum.
„Það er sniðugt að prófa núna
og njóta þess að synda í heitari
sjó í sumar. Sjórinn er um átta
gráður nú í maí en getur farið
upp í fjórtán gráður í sumar. Það
er þó ekki endilega betra að fara
í sjóinn í átta gráðum en í fjórtán,
kalt er bara kalt,“ segir Ragn-
heiður og brosir.
KALT ER BARA KALT
SJÓSUND Hitastig sjávar við landið er aðeins um fjórtán gráður á góðum
sumardegi. Sjósundsgarpar njóta sundsins hins vegar allt árið um kring.
Tilkynning frá Yfirkjörstjórn
Mosfellsbæjar
Laugardaginn 10. maí 2014 rennur út frestur
til að skila framboðslistum vegna bæjarstjórnar-
kosninga í Mosfellsbæ sem fram fara þann 31. maí
2014. Yfirkjörstjórn mun þá taka við framboðslistum
á skrifstofu Mosfellsbæjar að Þverholti 2, 2. hæð,
kl. 10.00-12.00.
Yfirkjörstjórn boðar til fundar þann 10. maí, kl. 14.00,
á sama stað þar sem hún úrskurðar um framkomna
framboðslista að viðstöddum umboðsmönnum listanna.
Þegar yfirkjörstjórn hefur úrskurðað um framboðin
mun hún auglýsa framboðslista í bæjarblöðunum,
bókstaf listanna og nöfn frambjóðanda á hverjum lista.
Kjörstaður vegna bæjarstjórnarkosninganna er í
Lágafellsskóla við Lækjarhlíð og stendur kjörfundur
frá kl. 09-22. Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag verður
á sama stað.
Mosfellsbæ 2. maí 2014
Yfirkjörstjórn Mosfellsbæjar
Þorbjörg Inga Jónsdóttir formaður
Haraldur Sigurðsson
Valur Oddsson
Save the Children á Íslandi
Betra blóðflæði
Umboð: www.vitex.is - www.neogenis.com
N-O = 30 flöskur af
rauðrófusafa 500 ml
eða 90 rauðrófur
Rauðrófukristall
stingur keppinautana af *
Ríkt af andoxunarefnum
Eftir fertugt framleiðir líkaminn 50% minna Nitric Oxide.
SUPER BEETS örvar Nitric Oxide framleiðslu strax. Betr a blóð-
flæði, allt að 30% æðaútvíkk un, 30% meiri súrefnis upptaka, rétt-
ur blóðsykur, aukin fitubrennsla, 20% meira þrek orka og úthald.
Bætt ris hjá körl um, aukin kynörvun kvenna. Nitric Oxid e hef-
ur áhrif á og bætir: Blóðþrýsting, kólesteról, hjarta- æða- og
taugakerfi, ofnæmiskerfi, astma, lungnaþemb u. Einkaleyfi
Neogenis Labs á rauðrófukristall tryggir einstaka yfirburði og
virkni af nit rite sem umbreytist í Nitri c Oxide í líkamanum .
Gott bragð ein tes keið blandað í vatn 100 ml sem jafngildir einni
flösku 500 ml af rauðrófu safa.
1. Superbeets dós
= 30 flöskur af
rauðrófusafa eða
90 rauðrófur
500 mlN
-O
S
ty
rk
u
r*
10
g
r
Ra
uð
ró
fu
rk
ri
st
al
l
læ
k
k
að
v
e
rð
(N-O) 1 tes keið 5g
= 3 rauðrófur
30 skammtar
= 90 rauðrófur
Fæst í Apótekum og heilsubúðum
SJÓSUNDSKEMPUR Þær Ragnheiður Valgarðsdóttir og Harpa Hrund Berndsen eru
saman í stjórn Víðavatnsnefndar SSÍ og hafa báðar verið í stjórn Sjósunds og sjóbaðs-
félags Reykjavíkur. MYND/GVA
VIÐ BRÚSASTAÐI Félagar í Sjósunds og sjóbaðsfélagi Reykjavíkur synda í sjónum
víða um land. Þarna synda þeir saman á nýjum stað við Brúsastaði í Hafnarfirði.
Ströndin þar er umvafin klettum og hólum og naut fólk þess að synda í tærum sjónum.
AÐSEND MYND