Fréttablaðið - 06.05.2014, Side 19
ÞRIÐJUDAGUR 6. MAÍ 2014
BÍLAR
S
annkölluð hátíðarhöld
voru í Brimborg um
liðna helgi en þar var
haldin heljarinnar sýn-
ing á Ford Mustang-
bílum. Þessi sýning er
árlegur viðburður og
var nú haldin í fimmta skiptið.
Sýningin í ár var þeirra vegleg-
ust, enda Ford Mustang 50 ára nú
í ár. Það var því vel við hæfi að
fjöldi Mustang-bílanna sem virða
mátti fyrir sér þetta árið væri
einmitt 50. Sýningin um helgina
tókst sérlega vel og áætlaði
starfsfólk Brimborgar að á bilinu
sjö til átta þúsund manns hefðu
komið og skoðað bílana fallegu.
Brimborg hélt sýninguna í sam-
starfi við Mustang-klúbbinn, en
í honum eru 220 meðlimir og þar
eru allir velkomnir. Samkvæmt
Umferðarstofu eru 380 skráðir
Mustang-bílar, en frá upphafi
hafa verið skráðir 800 slíkir og
víst er að margir þeirra eru ekki
á númerum en bíða þess að verða
aftur settir á götuna, fallega upp-
gerðir.
Mustang ’71 kosinn fallegastur
Á sýningunni voru margir gull-
fallegir Mustang-bílar og sam-
tals voru þarna samankomin um
20.000 hestöfl. Sá öflugasti þeirra
var Mustang Shelby GT-500 ár-
gerð 2007, 850 hestöfl, en bíllinn
er í eigu Ingimundar Helgasonar
og er hann margfaldur Íslands-
meistari í kvartmílu. Sýningar-
gestir völdu bæði fallegasta og
áhugaverðasta bílinn. Einstak-
lega vel uppgerður Mustang, ár-
gerð 1971, í eigu Björns Emils-
sonar, var valinn fallegasti bíll-
inn. Það tók mörg ár að gera hann
upp og tókst Birni þar afar vel
upp. Áhugaverðasti bíllinn var
valinn Mustang Boss, árgerð
2013, sem er jafnframt nýjasti
Mustang-bíllinn á landinu. Hann
er í eigu Björns Kristinssonar.
Sýningarnefnd útnefndi einnig
áhugaverðasta bílinn og fyrir val-
inu varð Mustang, árgerð 1986, í
eigu Kjartans Kjartans sonar. Sá
bíll er eini bíllinn á landinu sem
hefur farið undir tíu sek úndur
í kvartmílukeppni. Björn Ingi
Berndsen fékk sérstaka viður-
kenningu fyrir að vera yngsti
þátttakandinn á sýningunni.
Hann er sjö ára gamall og var
með Mini Mustang til sýnis.
Brautryðjandi
Ford Mustang er bíllinn sem
ruddi braut „pony car“-bílanna í
Bandaríkjunum, bíla með langt
húdd og stuttan afturenda, lag
bíla sem í dag kallast „coupe“.
Margir bílar annarra framleið-
enda fylgdu í kjölfarið með sams
konar lag. Bílar eins og Chevr-
olet Camaro, Pontiac Firebird,
Plymouth Barracuda, Dodge
Challenger og fleiri. Þá er einn-
ig sagt að bílar eins og Toyota
Celica og Ford Capri hafi fengið
útlit sitt frá Mustang. Svo vel
var Mustang tekið að á fyrstu
árunum seldust allt að 600.000
slíkir á ári bara í Banda-
ríkjunum, en á þeim tíma hafði
fólk ekki miklar áhyggjur af
eyðslu bíla þar vestra. Á síðustu
árum hafa selst um 80.000 bílar
þar á ári. Stutt er í sjöttu kyn-
slóð af Mustang, en hann verður
af árgerð 2015.
SJÖ ÞÚSUND GESTIR Á MUSTANG-SÝNINGU
Á 50 ára afmæli Mustang voru sýndir 50 bílar í Brimborg, samtals um 20.000 hestöfl.
ÖRUGGT START
MEÐ EXIDE RAFGEYMUM
Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir
bifreiða. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda.
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
18
58 Exide rafgeymarnir fást hjá: