Fréttablaðið - 06.05.2014, Qupperneq 20
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
2 6. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Sími 512 5457
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Næstkomandi laugardag, 10.
maí, verður árlegur þjónustu-
dagur hjá viðurkenndum sölu-
og þjónustuaðilum Toyota víða
um land. Þetta er tíunda árið í
röð sem Toyotaeigendur geta
komið til sölu- eða þjónustu-
aðila og fengið vorhreingern-
ingu á bílnum. Allir Toyota eig-
endur eru velkomnir milli kl. 11
og 15 á laugardag og verður vel
tekið á móti þeim af starfsmönn-
um Toyota og hjálparkokkum
sem sápuþvo bílana og þurrka.
Þegar bíllinn hefur fengið sitt
bíður grill og gos auk þess sem
sumar glaðningur fylgir fyrir
börn og fullorðna.
Sýningarsalir verða opnir hjá
söluaðilum þar sem skoða má
það nýjasta frá Toyota. Toyota-
eigendur geta rennt við á þjón-
ustudeginum hjá Toyota á Akur-
eyri, Selfossi, í Reykjanesbæ og
Kauptúni, hjá Bifreiðaverkstæði
KS á Sauðárkróki, Bílageiranum
í Reykjanesbæ, Bifreiðaverk-
stæði Reykjavíkur á Bæjarflöt,
Bifreiðaverkstæði Austurlands
á Egilsstöðum og hjá Arctic
Trucks á Kletthálsi.
ÞJÓNUSTUDAGUR
TOYOTA Á LAUGARDAG
Árlegur vorboði hjá Toyotaeigendum, nú í tíunda sinn.
Trident er lítill bílasmiður í Bret-
landi sem hefur verið starf-
andi frá 1965. Trident fram leiðir
þennan eina bíl í dag sem heitir
Trident Iceni. Hann er um margt
merkilegur bíll, er með 6,6 lítra
dísilvél sem skilar 395 hestöflum
til afturhjólanna og er ekki nema
3,7 sekúndur í hundraðið. Há-
markshraði hans er 321 km/klst.
Ef honum er hins vegar ekið var-
lega kemst hann meira en 3.200
kílómetra á hverri tankfylli, eða
nærri tvo og hálfan hring í kring-
um Ísland. Er þá miðað við að
honum sé ekið á 110 km hraða.
Þá snýst vél hans aðeins á 980
snúninga hraða og eyðir aðeins
3,4 lítrum á hverja hundrað kíló-
metra. Það þýðir reyndar að tank-
urinn tekur ríflega 100 lítra.
Trident Iceni er ekki ódýr bíll
og kostar í Bretlandi 96.000 pund
eða 18,2 milljónir króna. Hægt
er að kaupa öflugri uppfærslu
vélarinnar í bílinn og er hann þá
660 hestöfl og með 1.050 Nm tog.
Þá verður bíllinn líka 5,9 millj-
ónum dýrari og heildar verðið
komið í 24,1 milljón króna. En
hvern munar nokkuð um það?!
Heyrst hefur að enn öflugri út-
gáfa bílsins sé í pípunum, en þá
er eins gott að eigendur þess bíls
séu tilbúnir að eyða miklum fjár-
munum í dekk, sem hann hlýtur
að éta upp eins og smjör með
harðfiski.
Trident Iceni er breskt dísilskrímsli
Skammt er síðan ON setti upp
fyrstu hraðhleðslu stöðvarnar
fyrir rafbíla í samstarfi við
BL og Nissan í Evrópu og í vik-
unni var fjórða hraðhleðslustöð-
in opnuð á Fitjum í Reykjanesbæ.
ON setur upp stöðvarnar í sam-
starfi við BL og Nissan í Evrópu
og verða þær tíu talsins. Síðan í
mars hafa fjórar stöðvar verið
opnaðar, ein við höfuðstöðvar ON
að Bæjarhálsi 1, ein við BL við
Sævarhöfða og ein við Smára-
lind, auk áðurnefndrar stöðvar
á Fitjum sem er nýjust í röðinni.
Með hraðhleðslustöð er hægt
að fá 80% hleðslu á rafbíl á að-
eins 20-30 mínútum en reikna má
með að ökumenn rafbíla muni
oft velja styttri hleðslu og nota
stöðvarnar oftar.
Tíu stöðvar settar upp víða um land
Þegar allar tíu hraðhleðslustöðv-
arnar hafa verið teknar í notkun
verður lítið mál að ferðast um
stór svæði landsins á raf bílum
eins og Nissan Leaf og það með
afar hagkvæmum hætti, enda
er raforkan ódýr. Fyrir um ári
prófuðu íslenskir bílablaðamenn
Nissan Leaf og greindu þeir frá
að bíllinn færi 195 kílómetra á
einni hleðslu, þó styttri vega-
lengd í kulda. Það þýðir að með
þéttu neti hraðhleðslustöðva
verður Nissan Leaf með hag-
kvæmari bílum í rekstri fyrir þá
sem aka mikið. Það má reikna
með að fleiri stöðvar ýti undir
eftirspurn eftir rafbílum enda
eru sennilega fá lönd, ef nokkur,
sem henta betur fyrir rafbíla
en einmitt Ísland. Nissan í Evr-
ópu og BL leggja til stöðvarnar
og eru sjálfar hleðslu stöðvarnar
tíu um 25 milljóna króna virði.
Enn á ON eftir að setja upp sex
hraðhleðslustöðvar en hægt er að
fylgjast með verkefninu á heima-
síðunni on.is.
ON OPNAR FJÓRÐU
HRAÐHLEÐSLUSTÖÐINA
FRÁ NISSAN Í FITJUM
Enn á ON eftir að setja upp sex hraðhleðslustöðvar.
Á síðasta ári voru keyptar 15,6
milljónir nýrra bíla í Bandaríkj-
unum en 2,5 milljónum þeirra
var aldrei reynsluekið af nýjum
eigendum. Enn fremur var 49%
þeirra ekið minna en í 30 mín-
útur áður en eigendur þeirra tóku
ákvörðun um kaup á þeim. Þetta
kemur fram í könnun á meðal
2.000 nýrra bíleigenda sem DME
Automotive gerði þar vestra. Í
könnuninni kemur einnig fram að
33% kaupenda nýrra bíla reynslu-
óku aðeins þeirri
bílgerð sem þeir síðan keyptu.
DME áætlar að helstu ástæður
þessa séu að bílkaupendur séu
nú mjög vel upplýstir um þá bíla
sem á markaðnum eru og að fólk
kynni sér oft mjög þá bíla sem
til greina koma á vefnum. Þar
geti það kynnt sér atriði eins og
eyðslu, öryggi, verð, áreiðan-
leika og allt það sem fólki finnst
skipta máli við bíla. Aðrir benda
á að mjög óráðlegt sé að kaupa
bíl án þess að prófa hann og það
sé kannski eins og að kaupa sér
buxur án þess að máta þær og
það sé nokkru meira fé að baki
fjárfestingu á bíl en buxum. Því
sé ráðlegt að þrengja val kostina
niður í nokkra bíla sem til greina
koma og reynsluaka þeim svo
öllum vel áður en að ákvörðun
kemur. Fátt sé verra en að sjá á
eftir svo stórri fjárfestingu sem í
nýjum bíl.
Margir kaupendur bíla
reynsluaka þeim ekki
Þjónustudagur Toyota verður haldinn næstkomandi laugardag, 10. maí.
On opnar fj órðu hraðhleðslustöðina en þar er hægt að hlaða rafbíla á stuttum tíma.
Líklega er áreiðanleiki það sem
mestu máli skiptir þegar kemur
að vali á bílum. Fyrst og fremst
þurfa bílar að ganga án bil-
ana og koma eigendum sínum
frá stað A til B. Þetta á við bíla
í öllum flokkum, hvort sem það
eru jepplingar, fjölskyldubílar,
jeppar eða smábílar. Auto Ex-
press í Bretlandi hefur gert viða-
mikla könnun á þeim smábílum
sem bíleigendur telja áreiðanleg-
asta og spurðu 50.000 eigendur
smábíla. Út úr því kom einkunn
fyrir hverja bílgerð fyrir sig og
var útkoman þessi:
Bílgerð Einkunn
1. Honda Jazz 98,89
2. Kia Rio 96,51
3. VW up! 96,08
4. Skoda Citigo 95,70
5. Nissan Juke 95,61
6. Toyota Yaris 94,95
7. Peugeot 107 94,55
8. Mazda 2 94,41
9. Citroën DS3 93,90
10. Suzuki Swift 93,66
Næstu tíu bílarnir á listanum
voru Kia Picanto, Audi A1, Opel
Adam, Ford Fiesta, Hyundai
iX20, Renault Clio, Peugeot 208,
Fiat Panda, Skoda Fabia og Hy-
undai i10. Neðstu bílarnir á list-
anum að neðan talið voru svo
Fiat Punto, Mini Cooper, Alfa
Romeo Mito, VW Polo, Fiat 500
og Kia Venga. Ekki var tekið
neitt tillit til þess hvað bílarnir
kosta. Athygli vekur að enn eina
ferðina eru bílar frá Japan og S-
Kóreu áberandi efst á listanum
og af tíu bestu bílunum eru fimm
þeirra frá Japan og einn frá S-
Kóreu, en af næstu tíu bílum
eiga Hyundai og Kia frá S-Kóreu
þrjá bíla. Frakkar eiga tvo á topp
tíu listanum, Þjóðverjar einn og
Tékkar einn.
Áreiðanlegustu smábílarnir
Trident Iceni