Fréttablaðið - 06.05.2014, Qupperneq 22
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
4 6. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR
Þegar hinir þekktu M-bílar frá
BMW eru annars vegar eru fáir
sem eru jafn þekktir og hinn
goðsagnakenndi BMW M3 CSL,
sem var sérstaklega léttur og
aðeins framleiddur í 1.400 ein-
tökum fyrir tíu árum. Það er því
magnað að hinn nýi M235i skuli
jafna tíma M3 CSL á reynslu-
akstursbraut Auto Express-tíma-
ritsins því að M3 CSL er búinn
360 hestafla vél og er auk þess
sérstaklega léttur. Hann er með
þynnra gleri en venjulegur M3,
léttari hljóðeinangrun og minni
búnaði, auk þess sem yfirbygg-
ingin er að miklu leyti út kol-
trefjaefnastyrktu plasti. Niður-
staðan er sú að M3 CSL vegur
aðeins 1.385 kíló.
Fer aðrar leiðir
M235i fer nokkuð aðrar leiðir
til að ná árangri en M3 CSL en
niðurstaðan er sú sama eins og
áður kemur fram. M235i notast
við þriggja lítra línuvél með
túrbínu og skilar hún 320 hest-
öflum á móti 360 hestöflum
M3 CSL. Tog M235i-bílsins er
hins vegar meira, auk þess sem
þróun í hemlun skilar mikilli
bætingu á tíma. Þá er M235i vit-
anlega búinn öllum nútímaþæg-
indum og tæknibúnaði, en margt
af slíku var auka búnaður í CSL.
Hröðun í 100 km/klst. tekur um
fimm sekúndur og því er um
alvöru kraftabíl að ræða enn
eina ferðina frá BMW. Umboð
fyrir BMW á Íslandi hefur BL
og má reikna með að einhverj-
ir sýni nýja M235i áhuga enda
er töluvert magn M-bíla til á
landinu.
BMW M235I JAFNAR TÍMA HINS
GOÐSAGNAKENNDA M3 CSL
FÍB kannaði á dögunum verð á
sumarhjólbörðum. Í könnuninni
var spurt um verð á fjórum hjól-
börðum eða einum hjólbarða-
gangi undir bílinn. Kannað var
verð á einum dekkjagangi undir
bílinn þar sem söluaðilar hafa
gefið í skyn að neytendur kaupi
oftast fjögur dekk og það geti
verið hagstæðara að kaupa einn
gang en einn hjólbarða. Könn-
unin var gerð í 15. viku ársins
og fór þannig fram að haft var
símasamband við seljendur hjól-
barða um allt land og þeim síðan
sendar fyrirspurnir.
Spurt var um verð á nýjum hjól-
börðum af tveimur algengum
stærðum fyrir fólksbifreiðar og
jeppa/jepplinga. Beðið var ann-
ars vegar um verð á sumarhjól-
börðum fyrir fólksbíla, stærð
195 / 65 R15 og hins vegar verð
sumarhjólbarða fyrir jeppa/
jepplinga af stærð 235 / 65 R17.
Í kjölfar þessarar könnunar fór
starfsmaður félagsins í heim-
sókn til allra stærri sölu- og inn-
flutningsaðila á höfuðborgar-
svæðinu til að sannreyna upp-
gefnar tölur.
Þar sem könnun þessi er ein-
ungis verðkönnun er engin af-
staða tekin til gæða hjólbarð-
anna að öðru leyti en því sem
felst í ESB-merkingum hjólbarð-
anna þar sem það á við. Mark-
tæk svör bárust frá 21 seljanda
um verð á sumarhjól börðum.
Verð í könnuninni er listaverð
og án afsláttar en margir selj-
endur bjóða margvíslegan af-
slátt. Hér má sjá niðurstöður
könnunar FÍB.
HJÓLBARÐAVERÐKÖNNUN FÍB
Hvað kosta nýju sumarhjólbarðarnir?
Efnahagur í Brasilíu hefur farið
mjög batnandi á síðustu árum
þó svo að nú sé nokkurt bakslag.
Efn uðum Brasilíumönnum hefur
fjölgað um meira en helming frá
árinu 2002. Af einstökum löndum
er Brasilía fjórði stærsti bíla-
markaður í heimi og Brasilía er
sjöundi stærsti bílaframleiðandi
í heimi – sum af stærri bílafyrir-
tækjunum eru með verk smiðjur
þar, en fáir af lúxusbílafram-
leiðendunum. Sala á lúxusbílum
í Brasilíu jókst um 32% á fyrsta
fjórðungi þessa árs þrátt fyrir að
heildarsala bíla hafi fallið um 5%.
Ástæða þess er ekki bara fólgin
í bættum efnahag heldur einnig
gjaldabreytingum frá brasilíska
ríkinu, en álögur á dýrari bíla
hafa lækkað.
Enn þá eru þó sérstök gjöld á bíla
sem framleiddir eru utan Brasilíu
og því hafa sumir bílaframleið-
endur sett upp verksmiðjur þar
til að sneiða hjá þessum gjöld-
um. Það hefur Mercedes Benz þó
ekki enn gert en hyggst breyta
því með opnun verksmiðju árið
2016. BMW er langt komið með
uppsetningu verksmiðju í Brasi-
líu og verður hún opnuð á þessu
ári. BMW jók söluna um 90% á
fyrstu þremur mánuðum ársins í
Brasilíu, en Benz aðeins um 30%.
Fleiri lúxusbílaframleiðendur eru
einmitt að reisa bílaverksmiðj-
ur í Brasilíu. Jaguar/Land Rover
ætlar að opna eina slíka árið 2016
og það hyggst Audi einnig gera.
Þetta gera öll þessi fyrirtæki
þrátt fyrir bakslagið í efnahag
landsins nú, en trú þeirra bygg-
ist á því að það sé aðeins tíma-
bundið bakslag og að efnameira
fólki muni áfram fjölga verulega
í Brasilíu, en það eru tilvonandi
kaupendur bíla þeirra.
Lúxusbílaframleiðendur
veðja á Brasilíu
Nýr BMW M235i jafnaði tíma BMW M3 CSL á braut Auto Express á dögunum.
BMW jók sölu bíla sinna í Brasilíu um 90 prósent á fyrstu þremur mánuðum ársins.
Tegund Gerð Verð Sparneytni Veggrip Veghljóð Söluaðili Staður Sími
SONAR SX608 43.856 kr. E C 72 Dekkjahöllin Rvk./Ak./Eg 581-3022
Hifl y Sumar 201 50.990 kr. E C 71 Dekkjahúsið Kópavogur 533-3100
Fortuna F1500 sumar-
dekk 88t
51.492 kr. Pardus Hofsós 453-7380
Kormoran Runpro sumar-
dekk
51.960 kr. bílaverkstæði
Jóhanns
Hveragerði 483 4299
Aoteli P307 51.960 kr. E B 71 Sólning Rvk./Hf./Kóp./
Sel./Nj.
544-5000
Sailun Atrezzo SH402 52.000 kr. Dekkjasalan Hafnarfjörður 587-3757
Wanly 52.700 kr. VAKA Reykjavík 567-6700
Federal Tævan SS 657 55.600 kr. E C 70 BJB pústþjón-
ustan
Hafnarfjörður 565-1090
Infi nity INF040 55.924 kr. VAKA Reykjavík 567-6700
Interstate TOURING IST-1 55.960 kr. Bílaverið Ísafjörður 456-3501
Kingstar SK70 55.960 kr. Réttingaverk-
stæði Sveins
Neskaupsstaður 477-1169
Sava Intensa 56.400 kr. Hekla Reykjavík 590-5683
Sava Intensa 56.400 kr. E C 69 Klettur Rvk./Garðabæ 590-5280
Intensa HB 56.400 kr. E C 69 VIP dekk Reykjavík 690-9111
Sailun Atrezzo SH 402 58.000 kr. B C 71 Fossdekk Selfoss 482-2516
Nokian Line 60.304 kr. C B 71 Max1 Rvk./Hf./Ak. 515-7190
Vredestein Holland Hi-Trac si 62.000 kr. BJB pústþjónustan Hafnarfjörður 565-1090
BF Goodrich G-Force Winter 62.000 kr. Dekkjasalan Hafnarfjörður 587-3757
Hankook Kinergy ECO 62.000 kr. Dekkjasalan Hafnarfjörður 587-3757
Cooper CS2 63.600 kr. Bílaþjónustan Húsavík 464-1122
YOKOHAMA BLUEARTH AE-01 63.924 kr. C B 69 Dekkjahöllin Rvk/Akureyri/Egilss. 581-3022
Kumho KH27 63.960 kr. B B 67 N1 Um land allt 440-1120
4 dekk m. vsk. Sterkasti og veikasti
fl okkur: A til G
Sterkasti og
veikasti fl okkur:
A til F
Hljóðstyrkur dB
Félag íslenskra bifreiðaeiganda – apríl 2014
Verðkönnun á sumarhjólbörðum – stærð 195 / 65 R15