Fréttablaðið - 06.05.2014, Síða 26
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
8 6. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR
Stærsti bílamarkaður heims í
Kína heillar alla bílaframleiðend-
ur og háar endurgreiðslur kín-
verska ríkisins til handa þeim
sem kaupa rafmagns- eða tvinn-
bíla hafa fengið þá til að auka
úrval sitt á slíkum bílum.
Volkswagen-bílasam stæðan
ætlar að taka þátt í þessu átaki
kínverskra yfirvalda til að
minnka útblástur bíla í Kína með
því að bjóða ekki færri en tíu
gerðir af rafmagns- eða tvinn-
bílum í Kína fyrir árið 2018. Nú
þegar býðst þar Porsche Pana-
mera S E-Hybrid og seinna á
þessu ári mun Volkswagen kynna
E-Up og E-Golf.
Á næsta ári bætast svo
Volkswagen Golf GTE og Audi
A3 E-tron við flóruna. Allir munu
þessir bílar verða fluttir inn frá
Þýskalandi. Árið 2016 ætlar svo
Volkswagen að smíða plug-in-
hybrid-gerð af Audi A6 í Kína í
samstarfi við China FAW Group
og SAIC Motor Corp og fleiri
koma svo í kjölfarið. Í Kína greið-
ir ríkið allt að 1 milljón króna
með hverjum seldum rafmagns-
bíl og 580.000 krónur með hverj-
um plug-in-hybrid-bíl. Á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs seldi
Volkswagen 880.700 bíla í Kína
og jók söluna um 15% á milli ára.
Stefnan er að selja 3,5 milljónir
bíla í Kína í ár, en salan nam 3,27
milljónum bíla þar í fyrra.
Tíu grænir VW til Kína
Hinn nýi og netti sportjeppi
Mercedes-Benz GLA verður
kynntur á Íslandi í júní sam-
kvæmt upplýsingum frá bílaum-
boðinu Öskju. Mercedes Benz
GLA var frumsýndur á bílasýn-
ingunni í Frankfurt sl. haust.
Eftir vænting hefur ríkt víða
fyrir komu GLA en þetta er fyrsti
bíllinn í þessum stærðarflokki
sem Mercedes-Benz fram leiðir.
Talsvert er lagt í innanrými
GLA, sem mun svipa mjög til
hinna nýju A-Class og CLA. Lítið
mun skorta á kraftinn þrátt fyrir
að vélarnar verði eyðslugrannar
og umhverfismildar. Fyrsti fram-
leiðslubíllinn er GLA 250 4Matic
með tveggja lítra vél sem skilar
208 hestöflum. Sportjeppinn er
með 7 gíra DCT-gírkassa. Hann
er aðeins 6,4 sekúndur úr kyrr-
stöðu í hundraðið.
Stefnt gegn Audi Q3 og BMW X1
AMG-ofurútfærslan á GLA verður
með tveggja lítra, fjögurra strokka
vél með túrbínu. Þetta er sams
konar vél og í A 45 AMG og CLA 45
AMG. Vélin er geysiöflug og skilar
355 hestöflum. Sportjeppinn verður
með 4MATIC-fjórhjólakerfinu sem
bætir bæði veggrip og stöðugleika
bílsins auk þess sem það eykur
snerpu og öryggi í akstri. Stefnt
er að því að GLA komi einnig með
framhjóladrifi en sú útgáfa er lík-
lega ekki væntanleg á markað fyrr
en 2015. Mercedes-Benz ætlar nýja
sportjeppanum stórt hlutverk og
er honum stefnt í harða samkeppni
við Audi Q3 og BMW X1.
Mercedes Benz GLA
nálgast Íslandsmið
Oft spá fjölmiðlar í hvaða bílar
seljast mest en það er hins vegar
sjaldgæft að vöngum sé velt
yfir því hvaða bílar seljast hrað-
ast. Í Bretlandi heldur heima-
síðan glassbusiness.co.uk utan
um þær upplýsingar. Samkvæmt
nýjustu tölum heimasíðunnar
eru það nýjar kynslóðir bíla sem
seljast hraðast. Þar fara fremst-
ir í flokki Nissan Qashqai og Hy-
undai i10 en það tekur að meðal-
tali 25,3 daga að selja hvern Qas-
hqai af lager og 26,9 daga að selja
hvern Hyundai i10. Það er áhuga-
vert að skoða svona tölur, þótt ís-
lenskt samhengi gefi þeim ekki
mikið vægi.
Til samanburðar má skoða þá
bíla sem lengstan tíma tekur að
selja í Bretlandi og er sölutím-
inn þá í kringum 70 til 100 dagar.
Aðrir bílar sem seljast hratt í Bret-
landi þessa dagana eru Volkswa-
gen Bora, Audi Q3, Audi TT, Niss-
an Almera, Peugeot 2008, Audi A1,
Ford Fiesta og Peugeot 3008 en
fæstir af þessum bílum eru sölu-
háir á Íslandi. Vefsíðan telur að
vinsældir hins splunkunýja Nissan
Quashqai séu til marks um að jepp-
lingar njóti nú aukinnar hylli.
Nissan Qashqai og Hyundai i10
seljast hraðast í Bretlandi
Toyota hefur tekið ákvörðun um
að flytja höfuðstöðvar sínar í
Bandaríkjunum frá Kaliforníu til
Plano í Texas. Höfuð stöðvar To-
yota í Bandaríkjunum hafa verið
í Kaliforníu í 57 ár. Toyota er
ekki fyrsti japanski bílaframleið-
andinn til að flytja höfuðstöðvar
sínar þar frá Kaliforníu, en Niss-
an gerði það einmitt fyrir átta
árum. Einnig hefur Honda flutt
hluta af starfsemi sinni frá Kali-
forníu til Ohio. Þá flutti Ford árið
2001 frá Kaliforníu þá deild sína
er hafði með Volvo-, Jaguar-,
Land Rover- og Aston Mart-
in-merkin að gera er þau voru í
eigu Ford. Því má segja að mik-
ill flótti bílafyrirtækja hafi verið
frá Kaliforníu á undanförnum
árum. Skondið er að rifja það upp
að þegar Nissan fór með höfuð-
stöðvar sínar frá Kaliforníu fyrir
átta árum létu Toyota-menn hafa
eftir sér að það myndu þeir aldrei
gera. Ekki fór það þó þannig.
Dýrtíð og háir skattar í Kaliforníu
Það er orðið mjög dýrt að reka
fyrirtæki í Kaliforníu og einn-
ig er mjög dýrt fyrir starfsfólk að
lifa þar. Er Kalifornía nú, ásamt
New York og New Jersey, eitt
þriggja svæða Bandaríkjanna
sem dýrust eru þegar kemur að
kostnaði við að reka heimili. Er
sá kostnaður 39% hærri en á nýja
staðnum í Plano. Þá eru fyrir-
tækjaskattar háir í Kaliforníu
og á það vafalaust stóran þátt í
ákvörðun Toyota. Einn þáttur enn
spilar vafalaust inn í ákvörðun
Toyota, en Plano í Texas er einn
öruggasti staður í Bandaríkjunum
þegar kemur að glæpum og talinn
einn besti staður þarlendis varð-
andi lífsgæði almennt. Með þess-
ari ákvörðun er víst að margir
starfsmenn Toyota þurfa að flytj-
ast búferlum, en þó er talið víst að
Toyota muni nota þetta tækifæri
til að stokka aðeins upp hjá sér í
starfsmannamálum. Eftir þeim
er haft að breyting verði á mark-
aðsmálum fyrirtækisins þar sem
sumir af núverandi starfsmönn-
um þess séu ekki endilega heppi-
legir til að stýra.
TOYOTA USA FRÁ
KALIFORNÍU TIL TEXAS
Margir bílaframleiðendur hafa flutt höfuðstöðvar sínar frá
Kaliforníu vegna dýrtíðar og skatta.
Toyota fl ytur höfuðstöðvar sínar til Plano í Texas.
Fyrir áratugum voru framtíðar-
bílar eitt helsta einkenni bjart-
ari tíðar. Þetta var á tímum
kalda stríðsins og tæknikapp-
hlaups sem að miklu leyti var
drifið áfram af vopnakapphlaupi
stórveldanna. Í bíómyndum og
teiknimyndasögum var birting-
armynd tækni framtíðarinn-
ar hins vegar oftast bíll. Ýmsir
framúrstefnulegir bílar litu
dagsins ljós hjá bílaframleið-
endum, oftast hugmynda bílar.
Fólk lét sig dreyma um flug-
bíla, rafmagnsbíla, rennilega
og hátæknivædda bíla sem voru
búnir alls konar tækjum til að
þjóna eigandanum. Þessir tímar
eru liðnir en framtíðin er allt-
af ókomin. Þó kannski með einni
undantekningu því BMW hefur
framleitt bíl sem er eins og
klipptur út úr hasarblaði fram-
tíðarinnar. Það er BMW i8, sem
er kyndilberi framtíðartækni
BMW og svo framúrstefnu-
legur að það er næsta ótrúlegt
að hugsa til þess að bíllinn sé nú
þegar kominn á markað.
Tæknilegt undur – hvernig sem á
hann er litið
Ekki aðeins er BMW i8 afar
framúrstefnulegur á að líta
heldur er bíllinn mjög tækni-
væddur. Hann er útbúinn afar
óvenjulegri drifrás, 1,5 lítra,
þriggja strokka túrbínuvél sem
skilar 231 hestafli og er sú vél
að aftan í bílnum. Að fram-
an er svo rafmagnsmótor sem
skilar 129 hestöflum en sam-
tals er bíllinn þá 362 hestöfl og
nýtur hann þess að auki að hafa
drif á öllum hjólum. Þá prýða
bílinn vængjahurðir og hönnun
sem er svo óvenjuleg og glæsi-
leg að bíllinn minnir einfaldlega
á ókomna tíð. BMW hefur þegar
sagt að ekki sé um ofursport-
bíl að ræða heldur að i8 sé dæmi
um þá nálgun sem BMW hefur
í huga hvað varðar framleiðslu
framtíðarinnar. Bíllinn er afar
spennandi í útliti og akstri, ofur-
léttur, sérstaklega þegar haft er
í huga að þetta er fjögurra sæta
bíll með öflugum raf mótor og
bensínvél, en jafnframt mjög
sparneytinn. BMW i8 nær 120
km/klst. hraða á rafmagninu
eingöngu og 35 km drægi sem
þýðir að hægt er að sinna flest-
um innanbæjarakstri án þess að
nota dropa af eldsneyti. Þrátt
fyrir þessa sparsemi hraðar
bíllinn sér í 100 km/klst. á að-
eins 4,2 sekúndum og hámarks-
hraðinn er 250 km/klst.
ER BMW I8 STÖKK
INN Í FRAMTÍÐINA?
Er ekki ofursportbíll heldur dæmi um framtíðarsýn BMW.
BMW i8 er afar framúrstefnulegur og tæknivæddur.