Fréttablaðið - 06.05.2014, Blaðsíða 28
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
10 6. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1,6 BENSÍNVÉL
180 HESTÖFL
Fjórhjóladrif
Eyðsla 4,9 l/100 km
í bl. akstri
Mengun 138 g/km CO2
Hröðun 6,9 sek.
Hámarkshraði 220 km/klst.
Verð 4.090.000 kr.
Umboð Brimborg
● Aksturseiginleikar
● Útlit
● Verð
● Hastur
● Veghljóð
FORD FIESTA ST
FORD FIESTA ST
Finnur Thorlacius reynsluekur
S
ú ágæta þróun hefur
orðið hérlendis að
aftur fást nú sport-
útgáfur bíla, en þeir
hurfu að mestu úr úr-
vali umboðanna við
hrun. Einn þessara
bíla er Ford Fiesta ST sem mikið
hefur verið mærður erlendis og
kemur það undirrituðum ekki á
óvart eftir að hafa prófað hann.
Aðrir bílar í þessum flokki sem
bjóðast nú eru til dæmis Volks-
wagen Golf GTI, Kia Cee´d Pro
GT, Renault Clio RS, Peugeot
208 GTI og Skoda Octavia VRS.
Allt mjög skemmtilegir bílar og
kraftaútgáfur af mörgum af vin-
sælustu fólksbílum heims. Það
er mikið fagnaðarefni að þessir
bílar séu aftur í boði og vonandi
finna þeir sem flesta eigendur
hérlendis á næstunni.
Ódýrastur „hot hatch“-bílanna
Ford Fiesta ST er 180 hest-
afla og þau koma frá lítilli 1,6
lítra vél með forþjöppu. Þetta
afl er nægt til að koma honum
í 100 km hraða á 6,9 sekúndum.
Hann er því ámóta snöggur og
hinir ofantöldu sport bílarnir
þrátt fyrir að vera vopnaður
færri hestöflum. Þar sem
hann er minni og léttari bíll en
hinir er hann enginn eftirbát-
ur hinna í snerpu. Það jákvæða
hins vegar við Ford Fiesta ST
er að hann er talsvert ódýr-
ari en hinir. Hann kostar aðeins
4.090.000 kr, en hinir eru allir
á verði um og yfir 5 milljónir.
Renault Clio RS er á 4.990.000,
Kia Cee´d GT á 5.490.000, Golf
GTI á 5.590.000 og Skoda Oc-
tavia VRS á 5.680.000 krónur.
Þarna ber talsvert í milli og því
má segja að Ford Fiesta ST hafi
nokkurt forskot í flokknum um
hylli kaupenda, en hafa verður í
huga að allir hinna bílanna eru
þó nokkru stærri.
Mikil akstursgeta
Það fyrsta sem ökumaður finnur
fyrir við akstur Ford Fiesta
ST er hversu harður bíllinn er,
alveg glerharður. Það á svo sem
ekki að koma á óvart þegar um
sportara er að ræða en hægt
er að fullyrða að hann sé harð-
ari við akstur en allir keppi-
nautarnir. Þessi harða fjöðrun
hans eykur líka á aksturseigin-
leika hans og hann ræður ótrú-
lega vel við beygjurnar fyrir
vikið. Hrikalega gaman er að
henda honum í þær og veg gripið
er undarlega mikið. Fyrir vikið
er hann trúrri ætlunarverki sínu
að vera hreinræktaður sport-
bíll sem fórnar nokkuð þægind-
unum fyrir aksturseiginleik-
ana. Þetta þurfa ökumenn hans
bæði að sætta sig við og í leið-
inni njóta til fullnustu. Þessi
bíll beinlínis hvetur ökumann
til að aka rösklega og er það
góður eiginleiki. Í leiðinni hvet-
ur hann einnig ökumann til að
láta hann snúast hratt í hverjum
gír og hann nýtur sín best á
háum snúningi. Að því leytinu
minnir hann á Toyota GT86/Sub-
aru BRZ. Beinskiptingin í Ford
Fiesta ST hæfir karakter bíls-
ins vel og skiptihnúðurinn leik-
ur í hendi. Bremsurnar eru einn-
ig góðar, enda diskar bæði að
framan og aftan, en Ford Fiesta
ST er fyrsti Fiesta-bílinn sem er
svo búinn. Undarlega mikið tog
er í þessari litlu 1,6 lítra vél, svo
mikið að furðu vekur, vel gert
hjá Ford. Þrátt fyrir að Ford
Fiesta ST skorti 20 hestöfl í sam-
anburði við Renault Clio, sem
einnig þykir mjög skemmtilegur
sportbíll, þá hefur Fiestan Clio-
bílinn á braut, þökk sé frábær-
um aksturseiginleikum hans.
Hreinræktaður sportbíll
Venjulegur Ford Fiesta er
fallegur bíll, en þessi útgáfa
hans er enn fallegri og talvert
kraftalegri. ST-útgáfa hans er
þriggja hurða og þannig verður
hann sportlegri bíll og ekki
skemma 17 tommu felgurnar. Að
innan tekur ekki verra við, flott
sportsæti og lagleg innrétting.
Gírhnúður og pedalar úr áli gefa
honum það sportlega yfirbragð
sem honum sæmir. Bíllinn er
ekki hlaðinn tæknibúnaði, en
ef svo hefði verið hefði hann
svikist um ætlunarverkið og
verið þyngri bíll sem komið hefði
niður á aksturseiginleikum hans.
Hann er ætlaður fyrir fólk sem
gerir meiri kröfur til aksturs-
getu en þæginda. Þannig á það
líka að vera. Ástæða er til að
minnast á eitt sem ekki gladdi
ökumann, en það var mikið
veghljóð og virðist einangrun
bílsins aðeins ábótavant. Líklega
er hér kominn bíll þar sem
kaupendur fá einna mest fyrir
peninginn hvað akstursgetu
varðar. Hann er á frábæru verði
og því ætti hann að geta fundið
marga glaða kaupendur, en víst
er að enginn annar bíll með slíka
akstursgetu fæst á 4 milljónir
hérlendis.
MIKIÐ FYRIR LÍTINN PENING
Glerharður, hreinræktaður sportbíll með frábæra aksturseiginleika og á mjög góðu verði.
Kemur á óvart
Hve öflug
þessi litla
vél er
Ótrúlegt
veggrip bílsins
Gæði og útlit
framsæta
Ford Fiesta ST – lítil og sportleg spyrnukerra
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA