Fréttablaðið - 06.05.2014, Page 46
6. maí 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 30
„Zinger twister hjá Kenny frænda
toppar allt, eða Eldofninn. Þetta
tvennt er að slást um besta bitann
hjá mér.“
Jóel Sæmundsson leikari.
BESTI BITINN
„Mig langaði alltaf að gera myndband við
þetta lag. Hildur Sigrún á heiðurinn af hug-
myndinni á bak við myndbandið en sögu-
þráðurinn snýst um brjálaða kattarkonu sem
ferðast aftur í fyrri líf og það er búið að vera
mikið grín í kringum í þetta allt saman,“
segir Ragnheiður Gröndal tónlistarkona
aðspurð um nýja myndbandið sem hún frum-
sýnir í dag.
Ragnheiður á sjálf tvo ketti og annar
þeirra, hinn þrífætti Bangsi, lék burðarhlut-
verk í myndbandinu. Bangsi er þó ekki að
stíga sín fyrstu skref í veröld sviðslistanna
því hann lék aukahlutverk í þáttunum „Fólkið
í blokkinni“ sem sýndir voru á RÚV árið 2013.
„Þetta lag er tileinkað ástinni, lífinu og
Bangsa. Ég er samt að reyna að draga úr
því að semja um kettina mína,“ segir hún
hlæjandi.
Lagið „Bangsi“ kom út á síðustu plötu
Ragnheiðar, „Astrocat Lullaby“.
Hildur Sigrún Valsdóttir leikstýrði mynd-
bandinu og sá jafnframt um búninga og
heildarútlit. Kvikmyndataka og eftirvinnsla
var í höndum Martynu Daniel og Waddling
Pictures & Co. Tómas Oddur Eiríksson er
höf undur danshreyfinga og Guðbjörg Huldís
Kristinsdóttur sá um förðun og hár. - mm
Þrífætti kötturinn Bangsi í burðarhlutverki
Ragnheiður Gröndal frumsýnir splunkunýtt myndband við lagið Bangsi í dag.
BRJÁLUÐ KATTARKONA Ragnheiður Gröndal í
hlutverki sínu í myndbandinu.
„Ég hef stundað fallhlífarstökk í um það bil þrjú ár,“
segir Gunnar Örn Marteinsson fallhlífarstökkvari
sem er nýkominn heim frá Bandaríkjunum þar sem
hann varð sér úti um kennsluréttindi í íþróttinni.
Hann segist hafa lært gríðarlega mikið í ferðinni. „Ég
fór fyrst í fallhlífarstökk fyrir tilstilli vinar míns.
Hann var á leiðinni í stökk og ég bað um að fá að fara
með. Ég held að þetta sé eitthvað sem flestalla langar
til að gera en vantar að vera hreinlega ýtt út í. Þarna
var tækifærið fyrir mig og ég stökk á það og hef ekki
litið til baka síðan,“ útskýrir Gunnar og bætir við að
gríðarleg þekking sé á fallhlífarstökki í Bandaríkjun-
um. „Skólinn sem ég var í er einn sá besti í heimi.“
Auk þess að stunda fallhlífarstökk af miklum móð
er Gunnar sjómaður. „Það má eiginlega segja að ég
sé sjómaður í hjáverkum. Ég geri það bara til að lifa
af og borga reikninga, og náttúrlega til að fjármagna
fallhlífarstökkið,“ segir Gunnar, sem segir næsta
mál á dagskrá að breiða út boðskapinn. „Ég ætla að
aðstoða lærifeður mína hjá Fallhlífarstökksfélaginu
Frjálsu falli við að kenna.“ - ósk
Lærði fallhlífarstökk hjá þeim bestu
Gunnar Örn Marteinsson ætlar að kenna fallhlífarstökk á Íslandi.
SJÓMAÐUR Í HJÁVERKUM Gunnar Örn segist stunda
sjómennsku til að borga reikninga og stunda fallhlífarstökkið.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Æskuvinirnir Róbert Elmarsson
og Guðjón Geir Geirsson hafa haft
áhuga á tískufatnaði lengi vel. Eftir
að hafa unnið í nokkrum fataversl-
unum ákváðu þeir að stíga skrefið
til fulls og hanna fatnað fyrir herra
undir eigin nafni. Samanlagt lögðu
þeir fram áttatíu þúsund krónur af
sumarlaununum sínum til að stofna
vörumerkið Inklaw, sem nú hefur
vakið athygli frægra fótbolta-
manna og söngstjarna erlendis.
Þeir stefna hátt þrátt fyrir að
vera einungis rétt um tvítugt en
draumurinn er að eiga virt vöru-
merki sem er þekkt út um allan
heim. „Þetta er stór draumur en
við ætlum að láta hann verða að
veruleika. Við fáum mikinn stuðn-
ing og skilning frá skólanum. Við
fáum meira að segja frídag einu
sinni í viku til að sinna fyrirtæk-
inu okkar sem er komið á góðan
skrið á skömmum tíma,“ segir
Róbert Elmarsson, annar eigandi
götutískumerkisins Inklaw. Róbert
stundar nám í Flensborg en Guð-
jón Geir Geirsson, félagi hans og
besti vinur, er að læra fatatækni í
Tækniskólanum.
Vinirnir framleiða og sauma
allan fatnaðinn sjálfir á sauma-
stofu í Hafnarfirði með hjálp vin-
konu sinnar, Báru Atladóttur sem
er menntaður fatahönnuður. Pant-
anirnar streyma inn í gegnum net-
verslun þeirra en Róbert segir að
Instagram hafi virkilega komið
þeim á kortið. „Samskiptamiðl-
arnir í dag hjálpa mikið til. Flest-
ar sölurnar koma í gegnum Insta-
gram því um leið og einn glaður
viðskiptavinur póstar mynd af sér
í flík frá okkur þá koma fleiri pant-
anir. Með netinu höfum við náð að
komast á erlendan markað og nú
erum við að selja til 25 landa.“
Viðskiptavinirnir eru ekki af verri
endanum en nýlega var haft sam-
band við þá félaga fyrir hönd hins
enska Daniels Sturridge sem spilar
sem framherji hjá Liverpool. Stur-
ridge óskaði eftir fatnaði frá Ink-
law fyrir nýtt hipphopp-verkefni
sem nefnist FOE, eða Family Over
Everything. Portúgalski knatt-
spyrnumaðurinn Raul Meireles
sást einnig fyrir skömmu í Inklaw-
bol og söngvarinn Liam Ferrari
sem tók þátt í Australia Got Talent
er viðskiptavinur. Í sumar munu
Inklaw-félagarnir starfa sjálfstætt
í fyrsta sinn heilt sumar og segjast
hlakka til að geta eytt öllu sumrinu
í að reka fyrirtækið og sinna pönt-
unum. marinmanda@frettabladid.is
Fótboltastjörnur
hrifnar af Inklaw
Róbert Elmarsson og Guðjón Geir Geirsson hanna götutískufatnað sem selst
eins og heitar lummur erlendis en þeir sauma allar fl íkurnar sjálfi r.
Veitir
stuðning þar
sem þú þarft
hann.
Leggur grunn að góðum degi
D Ý N U R O G K O D D A R
20%
afsláttur
í maí
TEMPUR DAGAR
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ!
TEMPUR® Original & Cloud heilsurúm
C&J stillanlegt rúm með TEMPUR® dýnu
TEMPUR Original eða Cloud heilsudýna
með Standard botni og löppum
Verðdæmi: 160x200 cm. Fullt verð kr. 390.700
TILBOÐSVERÐ: kr. 312.560
C&J stillanlegt rúm með
TEMPUR Original eða Cloud heilsudýnu.
Verðdæmi: 2x90x200 cm. Fullt verð kr. 803.800
TILBOÐSVERÐ: kr. 643.040
V
A
X
T
A
LA
U
SA
R
AFBORGANIR Í 1
2
M
Á
N
*
Aðeins
55.627
kr. á mán.
V
A
X
T
A
LA
U
SA
R
AFBORGANIR Í 1
2
M
Á
N
*
Aðeins
27.123
kr. á mán.
Samskiptamiðlarnir í
dag hjálpa mikið til.
Flestar sölurnar koma í
gegnum Instagram því um
leið og einn glaður við-
skiptavinur póstar mynd
af sér í flík frá okkur þá
koma fleiri pantanir.
UNGIR Á
UPPLEIÐ Róbert
Elmarsson,
Anton Darri
fyrirsæta og
Guðjón Geir
Geirsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN