Fréttablaðið - 06.05.2014, Page 48
FRÉTTIR
AF FÓLKI
Mest lesið
Sýndi gamla takta
Þingmaðurinn Steingrímur J. Sigfús-
son var á meðal keppenda á Öld-
ungamótinu í blaki sem var haldið á
Akureyri um síðustu helgi. Stein-
grímur keppti lengi vel í blaki með ÍS
og spilaði einmitt með öldungaflokki
félagsins á Akureyri. Árangurinn olli
vonbrigðum því liðið féll um deild en
Steingrímur ku engu að síður hafa
sýnt gömul og góð tilþrif uppi við
netið. Alls tóku um 1.300 blakmenn
af öllu landinu þátt í mótinu, sem er
mesti fjöldinn til þessa. Margir þeirra
létu sig ekki vanta
á skemmtistaðinn
Sjallann á föstudags-
kvöldinu þar sem
þeir slettu úr klauf-
unum í góðra vina
hópi. Steingrímur
var á meðal þeirra
og þótti fara
mikinn á
dansgólfinu
undir
taktföstum
tónum
plötu-
snúða. - fb
Með þeim kynþokkafyllstu
Guðni Finnsson, guli pollinn í hljóm-
sveitinni Pollapönk, er talinn þriðji
kynþokkafyllsti karlflytjandinn í
Eurovision að mati vefsíðunnar Good
Evening Europe sem hefur tekið
saman lista yfir þá tíu kynþokka-
fyllstu í keppninni. Á vefsíðunni
segir að hann sé blanda af
John Cusack og Ricki Lake.
„Hann virðist vera svo …
heimspekilegur. Og gulur.
Og í góðu
formi. Og
já, hann
getur gert
stafrófið með líkama
sínum. Hver veit hvað
fleira hann getur gert
með þessum hreyfing-
um?“ er meðal annars
skrifað á síðunni. Í
öðru sæti á listanum er
András Kállay-Saunders
frá Ungverjalandi og í því
fyrsta Richard Micallef frá
Möltu. - lkg
1 Brunaði inn á bílastæði og stór-
skemmdi sjö bíla
2 Umfj öllun, viðtöl, einkunnir og
myndir: KR-Valur 1-2 | Valsmenn
byrja með látum
3 Þetta var enginn fífl agangur– mynd-
band
4 Pollapönkarar mættu í ballkjólum
5 Sam-kúgun í Álfabakka
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VÍSIR
RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla og
Vesturbergi
14.990
10” SPJALDTÖLVA
Fullt verð 19.99
0