Fréttablaðið - 15.05.2014, Síða 28

Fréttablaðið - 15.05.2014, Síða 28
4 ÍSLENSKT GRÆNMETIVOR 2014 6-8 plómutómatar, þroskaðir 4 msk ólífuolía 1 tsk sykur, helst hrásykur nýmalaður pipar salt 1/2 tsk basilíka, þurrkuð (má sleppa) balsamedik 300 g pasta, t.d. tagliatelle hnefafylli af íslensku klettasalati Tómatplantan er upprunnin í Mið-Ameríu og Perú en barst fyrst til Evrópu á tímum landafundanna miklu. Nafnið er komið frá Aztekum þar sem tómaturinn heitir tumatl. Lengi vel var tómatplantan ræktuð eingöngu til skrauts, þar sem menn töldu að hin dökkrauðu aldin hennar væru eitruð. Upphaflega voru aldin tómatplöntunnar mun minni en þau eru nú eða á stærð við kirsuber, en þaðan er einmitt komið nafnið á litlu kirsuberjatómatana. Það var fyrst í byrjun 19. aldar sem ræktun á tómat sem matjurt hófst að marki en nú er tómatur eitt algengasta aldinmetið sem við leggjum okkur til munns. NÆRINGARGILDI Í tómötum er A- og C-vítamín, en auk þess eru þeir ríkir af steinefnum og ávaxtasýru. Í þeim eru fáar hitaeiningar. Í 100 g. eru aðeins 23 hitaeiningar. Lycopene sem er karótínefni gefur tómötum rauða litinn. Það er flokkað með plöntuefnum (phytonutrient) og liggur hollustugildi þess í því hversu öflugt andoxunarefni það er. Vísindamenn við Kuopio háskólann í Austur-Finnlandi hafa rannsakað áhrif lýkópens. Það dregur úr bólgum og kemur í veg fyrir að tappar myndist í blóði. Rannsóknin náði til um eittþúsund manns og stóð í 12 ár. Í ljós kom að þeir sem höfðu mest af lýkópen í blóðinu voru síður í hættu en aðrir að fá heilablóðafall. Í ljós kom að þeir sem borðuðu mikið af tómötum drógu úr hættu á heilablóðfalli um allt að 55 prósent. Talið er að andoxunarefni verji frumur líkamans gegn stakeindum (free raidcals) sem geta skemmt frumuhimnur, valdið þránun (oxun) fitusýra og ráðist á DNA erfðaefnið og skemmt það. Þránun slæma kólesterólsins, LDL, er einmitt fyrsta skrefið í keðjuverkandi ferli þar sem LDL verður fyrir oxun og afleiðing þess er meiri viðloðun við æðaveggina sem að lokum getur orðið til þess að æðin stíflast. Rannsóknir hafa sýnt fram á að lycopene nýtist líkamanum betur þegar búið er að elda tómatinn og því er tilvalið að setja tómata á grillið, baka þá í ofni eða nota þá í ýmis konar rétti. Við hitunina rofna frumuhimnurnar í tómatinum og þannig á lycopenið greiðari leið út. Mest má finna af næringarefnum í vökvanum sem umlykur fræin og er því mikilvægt að sá vökvi sé hafður með í matreiðslunni. GEYMSLA Tómatar eru ákaflega viðkvæmir fyrir kæliskemmdum og þá má ekki geyma í kæli, hitinn á að vera 10 – 12°C. Tómatar sem hafa orðið fyrir kæliskemmdum verða fljótt linir og bragðlitlir. TÓMATAR Eldrauðir og bráð hollir TÍU TEGUNDIR AF TÓMÖTUM Margar tegundir af tómötum eru á markaði frá íslenskum grænmetisbændum. Þeir hafa lagt sig fram við að þjóna íslenskum neytendur sem best og hafa því undanfarin ár bryddað upp á mörgum nýjungum í ræktun. Garðyrkjubændur rækta tómatana með fullkominni tækni á umhverfisvænan hátt með grænni orku, tæru vatni og lífrænum vörnum. Hefðbundnu tómatarnir sem allir þekkja eru einstaklega bragðgóðir og ómissandi í hvers konar matargerð. Bragðgæði allra íslenskra tómata eru m.a. tilkomin af því að þeir fá að fullþroskast á plöntunni. Konfekttómatar eru mjög bragðgóðir, sætir og mildir. Þeir eru minni en hefðbundnir tómatar en stærri og kjötmeiri en kirsuberjatómatar. Konfekttómatar sem og aðrir tómatar eru einnig hollt og gott snakk. Stórir Heilsutómatar. Í þeim er þrefalt meira magn af andoxunarefninu lýkópene en í hefðbundnu tómötunum. Litlir Heilsutómatar. Í þeim er einnig þrefalt meira magn af andoxunarefninu lýkópene en í hefðbundnum tómötum. Þessir eru sérlega bragðgóðir, sætir og mildir á bragðið. Kirsuberjatómatar eru litlir og sérlega bragðgóðir. Bragðið er sætt og afgerandi. Þeir henta mjög vel til að bragðbæta og skerpa salöt eða í nestisboxið. Plómutómatar einkennast af góðu og kröftugu bragði. Þeir eru kjötmiklir og henta því vel í salöt, sem álegg og í hvers konar matreiðslu. Lögun plómutómata gerir þá ennfremur frábugðna öðrum tómötum í útliti. Buff tómatar eru mildir og frískandi á bragðið. Þeir eru stórir og mjög kjötmiklir. Henta mjög vel í salöt og eru frábærir á hamborgara. Kokteiltómatar eru dökkrauðir, frekar kjötmiklir og sætir. Þeir eru heldur minni en konfekttómatar. Piccolotómatar eru litlir, rauðir, sætir og safaríkir. Það þarf sérstakt leyfi til að rækta þessa litlu og bragðgóðu tómata og aðeins útvaldir fá það. Þau Helena og Knútur á Friðheimum geta verið stolt af því að uppfylla þau skilyrði sem sett eru fyrir ræktuninni. Sólskinstómatar eru á stærð við kokteiltómata. Þeir eru dökkrauðir, sætir og safamiklir og eru upplagðir í salatið og í nestisboxið. Bleik ídýfa, flott með öllu!! 100 ml tómata grunnur 1 dós sýrður ½ - 1 tsk gróft salt 2 tsk hunang eða agavesýróp ¼ tsk cayennapipar Hræra hráefnin vel saman og saxa nokkur blöð (ca 1 msk)af basil saman við. Góð sem ídýfa á grænmetið eða sósa með grillmatnum. Tómatasósa með engifer... 1 dós sýrður rjómi Hræra saman við 60 ml tómatasósa Ásamt ½ tsk salt og 2 tsk engifer safi Saxa smá myntublöð saman við og skreyta Tómatasúpa með steiktum brauðmolum 1 stk krukka tómatagrunnur 1stk laukur smátt saxaðir 2 stk gulrætur smátt saxaðar 2 stk hvítlaukur marinn og smátt saxaður 1 tsk lárviðrarlauf Smátt saxaður steinselja 2 msk 2 tsk laukduft 1 tsk pipar 1 tsk paprikuduft 2 tsk gróft salt 3 msk olía Hita olíu í góðum potti, létt steikja laukinn og hvítlauk ásamt salti. Gulrætur og önnur krydd sett útí ásamt 100 ml af vatni. Láta suðuna koma upp þá að setja tómatagrunninn saman við. Lækka undir og láta malla í Ca 15 mín. Fjarlægja lárvirðalaufið. Taka fram töfrasprotann og mauka súpuna. Smakka til með salti. Skreyta súpuna með sýrðum og saxaðri steinselju. Þessi súpa er dásamlega góð með krydduðum brauðmolum. Heilhveitpastaréttur með pastasósu – þessi einfaldi Sjóða heilhveitipasta samkvæmt leiðbeiningum á pakkningu Hita pastasósuna upp. Og setja yfir pastað . Súper gott að rifa niður pharmasanost og njóta með góðu súrdeigsbrauði. Tikka Masala sósa! Þessi sósa er góð með grænmetisréttum , kjötréttum og fiski... Sósan; 1 msk sítrónusafi 2 msk rifinn engifer ferskur 1 ½ tsp salt 1 hvítlauksgeiri smátt saxaður ½ tsk cayennapipar 2 msk olífuolía 200 ml hrein jógúrt 1 ½ stk laukur smátt skorinn laukur 3 tsk garam masala. 200 ml tómatasósa. Handfylli af söxuðum kóríander. Byrjar á því að setja ólíu á pönnuna ásamt söxuðum lauk, hvítlauk og kryddum. Mýkja laukinn á lagum hita , bæta tómatasósu saman við . Láta malla í 15 mín . Slökkva undir og setja sítrónusafa og kóríander útí og jógúrtið hræra vel saman. Balsam plómutómatar með tagliatelle Ofninn hitaður í 140°C. Tómatarnir skornir í fjórðunga eftir endilöngu. Dálítilli olíu dreift í eldfast mót og tómötunum raðað í það (hýðið látið snúa niður). Svolitlum sykri dreift yfir, tómatarnir kryddaðir með pipar, salti og e.t.v. þurrkaðri basilíku, og síðan er balsamedikinu ýrti yfir ásamt afganginum af olíunni. Sett í ofninn og bakað í 45-60 mínútur, eða þar til tómatarnir eru hálfþurrir og unaðslega bragðmiklir. Pastað soðið í saltvatni samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum, hellt í sigti og síðan hvolft í skál eða á fat. Olíunni af tómötunum ýrt yfir og klettasalatinu blandað saman við. Tómötunum raðað ofan á. Nanna Rögnvaldardóttir Uppskriftir: Helga Mogensen

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.