Fréttablaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 24
FÓLK|TÍSKA
GLÆSILEG Hulda Lind Kristinsdóttir hefur í nógu að snúast sem fyrirsætan Icebody og var nýlega valin ein íslenskra fyrirsæta til að
sitja fyrir hjá átján erlendum ljósmyndurum hvaðanæva úr heiminum. MYND/DANÍEL
Hvenær kviknaði tískuáhuginn? Ég
var fimm ára farin að máta föt fyrir
framan spegil og stilla mér upp
fyrir myndavélina.
Hvernig myndirðu lýsa eigin stíl?
Litríkur, þægilegur og sexí.
Hvaðan hefur þú tískuvitið? Ég tel
mig ekki hafa neitt sérstakt tískuvit
en ég fylgist með straumum og
stefnum og tileinka mér það sem
heillar mig.
Áttu þér uppáhaldstískuverslanir?
Já, ég hef mest dálæti á Guess,
Bebe, Kiss og Zara.
Eyðir þú miklu í fatakaup?
Nei, ég nýti mér verðlækkanir á
góðum fatnaði.
Hver er þinn helsti veikleiki þegar
kemur að tísku og útliti?
Ég á stundum erfitt með að velja á
milli þess sem er í boði.
Ef þú mættir kaupa þér eitthvað eitt
nýtt í dag, hvað yrði fyrir valinu?
Ég mundi velja mér ekta skart;
fallegt, stórt og áberandi.
Hver er uppáhaldsflíkin þín?
Svarti og hvíti kjóllinn sem ég
keypti í Kiss er ein af mínum
uppáhalds.
Hvaða litur klæðir þig best?
Bleikur er í uppáhaldi og
finnst mér hann klæða
mig ágætlega.
Hverju klæðistu við
sparileg tilefni?
Ég fer oftast í það fal-
legasta sem ég finn í
fataskápnum hverju
sinni.
Ertu hrifin af skart-
gripum?
Já, mjög. Ég elska
skartgripi og finnst
eyrnalokkar alveg
ómissandi.
Hvaða ilmvatn notar þú?
Um þessar mundir
nota ég ilminn Dream
Angels Heavenly frá
Victoria‘s Secret.
Ef þú ættir aðeins einn
hlut í snyrtibuddunni,
hver væri hann? Það
væri maskari.
Hvað er það besta við
sumartískuna?
Bjartir litir og léttur
fatnaður.
Áttu þér tískufyrirmynd?
Ég elska að fylgjast með súper-
módelinu Naomi Campbell
sem er alltaf flott og ég fíla
Nicki Minaj því hún klæðist
skemmtilega litríkum fatnaði.
Hvað gerir allar konur kven-
legar? Það kvenlegasta við
konur eru brjóstin.
Lumarðu á góðu tísku- eða
fegrunarráði?
Besta tískuráðið er að
klæðast því sem maður
fílar og besta fegrunar-
ráðið að vera hreinn
að innan sem utan og
ímynda sér að maður sé
flottastur af öllum.
Kjóll, pils eða buxur?
Buxur.
Einlitt eða munstrað?
Einlitt.
Háir hælar eða flatbotna?
Flatbotna skór eru bestir
en háir hælar gera útslagið.
Í hvernig fatnaði líður þér
best? Mér líður best í þægileg-
um buxum og bol.
SEXÍ ÞOKKAGYÐJA
TÍSKAN Fyrirsætan Hulda Lind Kristinsdóttir er hin kynþokkafulla Icebody.
Hún segir besta fegrunarráðið að ímynda sér að maður sé flottastur af öllum.
■ thordis@365.is
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt fyrir flottar konur
stærðir 38-58
Bleikir dagar!
15% afsláttur
af öllum jökkum og slæðum
dagana 7-17. maí.
Erum með mikið úrval af jökkum hvort sem
það er við gallabuxur eða sparikjóla.
Hlökkum til að sjá ykkur í sumarskapi
Fylgist með okkur á
facebook.com/Parisartizkan
Skipholti 29b • S. 551 0770
Opið virka daga kl.
11–18.
Opið laugardaga k
l. 11–16.
Kí
kið
á
m
yn
di
r o
g
ve
rð
á
Fa
ce
bo
ok
Laugavegi 178 (Bolholtsmegin) | Sími 555 1516
Kjóll á 12.900 kr.
Stærðir S - XXL