Fréttablaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 12
15. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12 SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR AKUREYRI AÐFERÐAFRÆÐIN Hringt var í 1.201 þar til náðist í 804 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki þriðjudaginn 13. maí. Svarhlutfallið var 67 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur skipt- ust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Alls tóku 64,4 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. Akureyri Dalvík Hrísey Akureyri er stærsta sveitarfélag landsins utan höfuðborgarsvæð- isins. Íbúar sveitarfélagsins voru í ársbyrjun 18.103 og hefur íbúum fjölgað um rúmlega 500 manns á kjörtímabilinu. Sveitarstjórnarkosningarnar árið 2010 voru um margt söguleg- ar á Akureyri. L-listi fólksins vann þá sinn stærsta kosningasigur og fékk hreinan meirihluta í bæjar- stjórn Akureyrar. Fjórflokkurinn svokallaði fékk hver um sig einn mann kjörinn og A-listi Bæjarlist- ans einn mann einnig. L-listinn tapar um helmingi fylgis síns frá kosningum 2010 samkvæmt skoðanakönnun Frétta- blaðsins. Hann mælist nú með 22,1 prósents fylgi og fær þrjá menn kjörna í bæjarstjórn. Ljóst er að nýr meirihluti verður myndaður að loknum kosningum í vor. Sjálfstæðisflokkurinn mælist stærstur, með um 23 prósenta fylgi og þrjá menn. Björt framtíð býður fram í fyrsta sinn til sveitarstjórn- ar á Akureyri og fær tvo menn kjörna samkvæmt könnuninni og 18,3 prósenta fylgi. Samfylking- in mælist með 13,9 prósenta fylgi og einn mann í könnuninni en lítið þarf að breytast svo annar maður Samfylkingar komist í bæjarstjórn á kostnað þriðja manns L-lista. Framsókn fær 11,8 prósenta fylgi og einn mann og VG nær einnig inn manni í bæjarstjórn, mælist með 8,3 prósenta fylgi. Dögun nær ekki inn manni í kosningunum í vor samkvæmt könnuninni, mælist með um 2 prósenta fylgi. Verði niðurstaða könnunarinnar úrslit kosninganna í lok mánaðar munu aðeins tveir bæjarfulltrú- ar af ellefu setjast aftur í bæjar- stjórn. Aðeins tveir flokkar geta myndað saman tveggja flokka meirihluta, Sjálfstæðisflokkur og L-listinn. Flugvöll áfram í Vatnsmýri Gunnar Gíslason er oddviti Sjálf- stæðisflokksins. Framboðið vill stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi, standa vörð um fyrirtæki og stofn- anir í bænum og stytta biðtíma eftir læknisþjónustu. Flokkurinn leggur mikla áherslu á samgöngumál, að tryggja veru Reykjavíkurflugvall- ar í Vatnsmýri og tryggja raforku- flutninga til bæjarins. „Sjálfstæðis- flokkurinn leggur á það áherslu að byggja áfram upp í Hlíðarfjalli og hækka frístundaávísun fyrir börn í bænum,“ segir Gunnar. Einnig vill Sjálfstæðisflokkurinn vinna að því að stytta sumarlokanir í leikskólum og bjóða foreldrum meiri sveigj- anleika varðandi sumarfrí barna sinna. Minni sóun Margrét Kristín Helgadóttir er oddviti Bjartrar framtíðar. „Björt framtíð vill skapa stemningu sem sýnir svart á hvítu að á Akureyri er best að búa. Við eigum magnað- an bæ og hæfileikaríkt fólk – við viljum sýna ást okkar á Akureyri í verki með því að huga að þessum tveimur máttarstólpum. Við viljum vera græn í gegn og skapa okkur sérstöðu sem bæjarfélag sem veit að það er aðeins ein jörð og starf- ar á þeim grunni,“ segir Margrét Kristín. Einnig leggur Margrét Krist- ín áherslu að þjóna íbúum bæjar- ins. „Stóru kosningamálin hvað okkur varðar eru til að mynda að koma hugmyndafræði þjónandi for- ystu inn í stjórnkerfi bæjarins. Við viljum miðbæ fullan af lífi, hvetja frumkvöðla og dugnaðarforka til dáða, styðja fjölbreytileika í skól- um og tómstundastarfi og almennt alla góða hluti sem minnka sóun á tíma, fé og orku.“ Jöfnuður, jafnrétti og velferð „Vinstrihreyfingin – grænt fram- boð hefur það markmið að bæta líf okkar allra í gegnum öfluga sam- félagslega þjónustu með áherslu á umhverfið, jöfnuð, jafnrétti og vel- ferð íbúanna. Við leggjum áherslu á að meta að verðleikum störf og huga að vellíðan opinberra starfsmanna. Með því að hækka laun undir með- allaunum leiðum við launaþróun í rétta átt.“ Þetta segir Sóley Björk Stefánsdóttir, oddviti VG. Sóley vill einnig afnema mörk meiri- og minnihluta í nefndum bæj- arins. „Við ætlum að standa vörð um og efla Heilsugæslustöðina á Akur- eyri og berjast hraustlega fyrir réttmætum framlögum frá ríkinu. Einnig viljum við bæta upplýsinga- gjöf til íbúa, auka þátttöku í ákvarð- anatöku og afnema hefðbundna meiri- og minnihlutaskiptingu við skipan í nefndir.“ Umboðsmaður barna Logi Már Einarsson er oddviti Sam- fylkingarinnar. Hann leggur höfuð- áherslu á að jafna stöðu bæjarbúa, með sérstaka áherslu á börn, ung- linga og aldraða. „Við höfum gengið alltof nærri skólum og öldrunar- þjónustu í sparnaði. Nauðsynlegt er að skila þangað auknum fjármunum til þess að þau geti sinnt betur hlut- verki sínu,“ segir Logi. Einnig vill Samfylkingin setja á laggirnar umboðsmann fyrir börn. „Vinnuumhverfi starfsmanna þarf að laga til muna. Við viljum skipa hverju barni umboðsmann sem fylgist heildstætt með námi þess og þroska frá upphafi skólagöngu til 18 aldurs.“ Samgöngumál og skipulagsmál verða einnig ofarlega á baugi að mati Loga. Flokkurinn vill bæta strætósamgöngur og leggur áherslu á hagkvæmari uppbyggingu bæjar- ins með nýjum íbúðum. „Hagkvæm uppbygging bæjarins er ein for- senda þess að gera rekstur Akur- eyrarbæjar sjálfbæran,“ segir Logi Már. Beint lýðræði Hlín Bolladóttir er oddviti Dögun- ar. Hún vill stórauka vægi íbúanna í ákvarðanatöku. „Framboðið vill stuðla að jákvæðri, upplýsandi og lýðræðislegri umræðu um málefni bæjarins og hagsmuni íbúanna. Sér- staklega verði kappkostað að veita bæjarbúum aðgang að ákvörðunum sem snerta þá sjálfa, sem og að auka upplýsingagjöf og aðgang að gögn- um sem varða rekstur og ráðstöfun fjármuna. Beinar atkvæðagreiðslur og ráð- gefandi atkvæðagreiðslur verði inn- leiddar sem hluti af rafrænni stjórn- sýslu og unnið að valddreifingu og auknu sjálfstæði og ábyrgð stjórn- enda í einstökum stofnunum bæjar- ins,“ segir Hlín. Hún leggur áherslu á að skera niður kostnað í yfirbyggingu og nýta fjármuni frekar í starfsemi stofnana. Átak í heilsueflingu barna „Við leggjum mikla áherslu á að styrkja innviði samfélagsins og að þess verði gætt, með betri afkomu sveitarfélagsins, að fjármunum verði varið til þeirra málaflokka sem mest hafa þurft að spara á liðn- um árum,“ segir Guðmundur Bald- vin Guðmundsson, oddviti Fram- sóknarflokksins. Hann leggur áherslu á stöðu barna og ungmenna og vill stórauka hreyfingu þeirra. „Þá viljum við gera stórátak í heilsueflingu barna og unglinga, hækka frístundaávís- anir og viljum einnig bjóða upp á frístundaávísanir fyrir eldri borg- ara.“ Hann telur húsnæðismál þurfa að vera eitt af stóru málunum í kosn- ingunum. „Við viljum stuðla að upp- byggingu á öflugum leigumarkaði í samvinnu við lífeyrissjóði og hús- næðissamvinnufélög.“ Nýsköpun í atvinnumálum Matthías Rögnvaldsson er nýr oddviti L-listans. L-listinn er eina staðbundna framboðið sem starf- ar ekki á landsvísu. „L-listinn er eina óháða framboðið og hefur verið í fararbroddi varðandi sam- vinnu allra í bæjarstjórn og skilað hvað bestum rekstri sveitarstjórna á Akureyri undanfarin kjörtíma- bil,“ segir hann. Matthías vill leggja áherslu á atvinnumál og nýsköpun næstu fjögur árin. „Við viljum fara nýjar leiðir í atvinnumálum þar sem mikil áhersla verður lögð á nýsköpun. Þá viljum við efla íbúa- lýðræðið til muna og gefa bæjarbú- um sterkari rödd inn í stjórnsýslu bæjarins,“ segir hann. L-listinn er með hreinan meiri- hluta í bænum og hefur stýrt bæj- arfélaginu eftir hrun, oft við erf- iðar aðstæður. „Við leggjum mikla áherslu á að með bættri afkomu bæjar- sjóðs gefist tækifæri til þess að efla þjónustu og bæta hag starfs- fólks og bæjarbúa. Við viljum láta bæjarbúa um bæjarmálin,“ segir Matthías. Níu af ellefu nýliðar í bæjarstjórn Ljóst er að nýr meirihluti verður myndaður í bæjarstjórn Akureyrar eftir kosningar. Hreinn meirihluti L-listans fellur sam- kvæmt könnun Fréttablaðsins og Sjálfstæðisflokkur og L-listinn geta einir flokka myndað saman tveggja flokka meirihluta. FRAMBOÐSLISTAR Á AKUREYRI 1. sæti Margrét Kristín Helgadóttir, lögmaður og nemi 2. sæti Áshildur Hlín Valtýsdóttir, kennari og húsmóðir 3. sæti Preben Jón Pétursson, sjálfstæður atvinnurekandi og mjólkurtæknifræðingur 4. sæti Þorsteinn Hlynur Jónsson, framkvæmdastjóri og nemi 1. sæti Hlín Bolla- dóttir, bæjarfulltrúi og kennari 2. sæti Inga Björk Harðardóttir, gullsmiður 3. sæti Erling Ingvason, tannlæknir 4. sæti Machael Jón Clarke, tónlistarmaður Björt framtíð DögunÆ T Listi fólksinsL 1. sæti Guðmundur Baldvin Guðmunds- son, bæjarfulltrúi 2. sæti Ingibjörg Isaksen, forstöðumaður 3. sæti Siguróli Magni Sigurðsson, nemi 4. sæti Elvar Smári Sævarsson, kennari 1. sæti Matthías Rögnvaldsson, framkvæmdastjóri 2. sæti Silja Dögg Baldursdóttir, markaðsfulltrúi 3. sæti Dagur Fannar Dagsson, hugbúnaðarráðgjafi 4. sæti Tryggvi Þór Gunnarsson, bæjarfulltrúi/ Sölumaður FramsóknF 1. sæti Logi Einarsson, arkitekt 2. sæti Sigríður Huld Jónsdóttir, aðstoðar- skólameistari 3. sæti Bjarki Ármann Oddsson, þjálfari 4. sæti Dagbjört Pálsdóttir, háskólanemi 1. sæti Gunnar Gíslason, fræðslustjóri 2. sæti Eva Hrund Einarsdóttir, starfsmannastjóri 3. sæti Njáll Trausti Friðbertsson, flugumferðarstjóri 4. sæti Bergþóra Þórhallsdóttir, aðstoðarskólastjóri Samfylkingin SjálfstæðisflokkurinnS D 1. sæti Sóley Björk Stefánsdóttir, fjölmiðlafræðingur 2. sæti Edward H. Huijbens, prófessor við HA og varaþing- maður 3. sæti Hildur Friðriksdóttir, meistaranemi í félagsvísindum 4. sæti Valur Sæmundsson, tölvunarfræðingur Vinstri grænirV Sveinn Arnarsson sveinn@frettabladid.is FYLGI FLOKKANNA Kosningar 2010 12,8% 13,3 45,0% 9,8% 10,4% 8,7% Sjálfstæðisflokkurinn Framsókn Listi fólksins Vinstri grænir Samfylkingin Fjöldi bæjarfulltrúa Björt framtíð Dögun Bæjarlistinn 23,0%Könnun 2014 18,3% 11,8% 22,1% 13,9% 2,0% 8,2% ÁRIÐ 2010 17.573 bjuggu á Akureyri ÁRIÐ 2014 18.103 búa á Akureyri JANÚAR 2013 112% skuldaviðmið JANÚAR 2014 124% skuldaviðmið JANÚAR 2014 23,3 milljarðar króna heildarskuldir Akureyrar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.