Fréttablaðið - 15.05.2014, Page 12
15. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR AKUREYRI
AÐFERÐAFRÆÐIN Hringt var í 1.201 þar til náðist í 804 manns samkvæmt lagskiptu úrtaki þriðjudaginn 13. maí. Svarhlutfallið var 67 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Svarendur skipt-
ust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til sveitarstjórnarkosninga í dag? Ef ekki fékkst svar var spurt: Hvaða flokk er líklegast að þú myndir kjósa? Ef ekki
fékkst svar var spurt: Er líklegra að þú myndir kjósa Sjálfstæðisflokkinn, eða einhvern annan flokk? Alls tóku 64,4 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar.
Akureyri
Dalvík Hrísey
Akureyri er stærsta sveitarfélag
landsins utan höfuðborgarsvæð-
isins. Íbúar sveitarfélagsins voru
í ársbyrjun 18.103 og hefur íbúum
fjölgað um rúmlega 500 manns á
kjörtímabilinu.
Sveitarstjórnarkosningarnar
árið 2010 voru um margt söguleg-
ar á Akureyri. L-listi fólksins vann
þá sinn stærsta kosningasigur og
fékk hreinan meirihluta í bæjar-
stjórn Akureyrar. Fjórflokkurinn
svokallaði fékk hver um sig einn
mann kjörinn og A-listi Bæjarlist-
ans einn mann einnig.
L-listinn tapar um helmingi
fylgis síns frá kosningum 2010
samkvæmt skoðanakönnun Frétta-
blaðsins. Hann mælist nú með 22,1
prósents fylgi og fær þrjá menn
kjörna í bæjarstjórn. Ljóst er að
nýr meirihluti verður myndaður
að loknum kosningum í vor.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
stærstur, með um 23 prósenta fylgi
og þrjá menn. Björt framtíð býður
fram í fyrsta sinn til sveitarstjórn-
ar á Akureyri og fær tvo menn
kjörna samkvæmt könnuninni og
18,3 prósenta fylgi. Samfylking-
in mælist með 13,9 prósenta fylgi
og einn mann í könnuninni en lítið
þarf að breytast svo annar maður
Samfylkingar komist í bæjarstjórn
á kostnað þriðja manns L-lista.
Framsókn fær 11,8 prósenta fylgi
og einn mann og VG nær einnig inn
manni í bæjarstjórn, mælist með
8,3 prósenta fylgi. Dögun nær ekki
inn manni í kosningunum í vor
samkvæmt könnuninni, mælist
með um 2 prósenta fylgi.
Verði niðurstaða könnunarinnar
úrslit kosninganna í lok mánaðar
munu aðeins tveir bæjarfulltrú-
ar af ellefu setjast aftur í bæjar-
stjórn. Aðeins tveir flokkar geta
myndað saman tveggja flokka
meirihluta, Sjálfstæðisflokkur og
L-listinn.
Flugvöll áfram í Vatnsmýri
Gunnar Gíslason er oddviti Sjálf-
stæðisflokksins. Framboðið vill
stuðla að fjölbreyttu atvinnulífi,
standa vörð um fyrirtæki og stofn-
anir í bænum og stytta biðtíma eftir
læknisþjónustu. Flokkurinn leggur
mikla áherslu á samgöngumál, að
tryggja veru Reykjavíkurflugvall-
ar í Vatnsmýri og tryggja raforku-
flutninga til bæjarins. „Sjálfstæðis-
flokkurinn leggur á það áherslu að
byggja áfram upp í Hlíðarfjalli og
hækka frístundaávísun fyrir börn í
bænum,“ segir Gunnar. Einnig vill
Sjálfstæðisflokkurinn vinna að því
að stytta sumarlokanir í leikskólum
og bjóða foreldrum meiri sveigj-
anleika varðandi sumarfrí barna
sinna.
Minni sóun
Margrét Kristín Helgadóttir er
oddviti Bjartrar framtíðar. „Björt
framtíð vill skapa stemningu sem
sýnir svart á hvítu að á Akureyri
er best að búa. Við eigum magnað-
an bæ og hæfileikaríkt fólk – við
viljum sýna ást okkar á Akureyri
í verki með því að huga að þessum
tveimur máttarstólpum. Við viljum
vera græn í gegn og skapa okkur
sérstöðu sem bæjarfélag sem veit
að það er aðeins ein jörð og starf-
ar á þeim grunni,“ segir Margrét
Kristín.
Einnig leggur Margrét Krist-
ín áherslu að þjóna íbúum bæjar-
ins. „Stóru kosningamálin hvað
okkur varðar eru til að mynda að
koma hugmyndafræði þjónandi for-
ystu inn í stjórnkerfi bæjarins. Við
viljum miðbæ fullan af lífi, hvetja
frumkvöðla og dugnaðarforka til
dáða, styðja fjölbreytileika í skól-
um og tómstundastarfi og almennt
alla góða hluti sem minnka sóun á
tíma, fé og orku.“
Jöfnuður, jafnrétti og velferð
„Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð hefur það markmið að bæta líf
okkar allra í gegnum öfluga sam-
félagslega þjónustu með áherslu á
umhverfið, jöfnuð, jafnrétti og vel-
ferð íbúanna. Við leggjum áherslu á
að meta að verðleikum störf og huga
að vellíðan opinberra starfsmanna.
Með því að hækka laun undir með-
allaunum leiðum við launaþróun í
rétta átt.“ Þetta segir Sóley Björk
Stefánsdóttir, oddviti VG.
Sóley vill einnig afnema mörk
meiri- og minnihluta í nefndum bæj-
arins. „Við ætlum að standa vörð um
og efla Heilsugæslustöðina á Akur-
eyri og berjast hraustlega fyrir
réttmætum framlögum frá ríkinu.
Einnig viljum við bæta upplýsinga-
gjöf til íbúa, auka þátttöku í ákvarð-
anatöku og afnema hefðbundna
meiri- og minnihlutaskiptingu við
skipan í nefndir.“
Umboðsmaður barna
Logi Már Einarsson er oddviti Sam-
fylkingarinnar. Hann leggur höfuð-
áherslu á að jafna stöðu bæjarbúa,
með sérstaka áherslu á börn, ung-
linga og aldraða. „Við höfum gengið
alltof nærri skólum og öldrunar-
þjónustu í sparnaði. Nauðsynlegt er
að skila þangað auknum fjármunum
til þess að þau geti sinnt betur hlut-
verki sínu,“ segir Logi.
Einnig vill Samfylkingin setja á
laggirnar umboðsmann fyrir börn.
„Vinnuumhverfi starfsmanna þarf
að laga til muna. Við viljum skipa
hverju barni umboðsmann sem
fylgist heildstætt með námi þess og
þroska frá upphafi skólagöngu til 18
aldurs.“
Samgöngumál og skipulagsmál
verða einnig ofarlega á baugi að
mati Loga. Flokkurinn vill bæta
strætósamgöngur og leggur áherslu
á hagkvæmari uppbyggingu bæjar-
ins með nýjum íbúðum. „Hagkvæm
uppbygging bæjarins er ein for-
senda þess að gera rekstur Akur-
eyrarbæjar sjálfbæran,“ segir Logi
Már.
Beint lýðræði
Hlín Bolladóttir er oddviti Dögun-
ar. Hún vill stórauka vægi íbúanna
í ákvarðanatöku. „Framboðið vill
stuðla að jákvæðri, upplýsandi og
lýðræðislegri umræðu um málefni
bæjarins og hagsmuni íbúanna. Sér-
staklega verði kappkostað að veita
bæjarbúum aðgang að ákvörðunum
sem snerta þá sjálfa, sem og að auka
upplýsingagjöf og aðgang að gögn-
um sem varða rekstur og ráðstöfun
fjármuna.
Beinar atkvæðagreiðslur og ráð-
gefandi atkvæðagreiðslur verði inn-
leiddar sem hluti af rafrænni stjórn-
sýslu og unnið að valddreifingu og
auknu sjálfstæði og ábyrgð stjórn-
enda í einstökum stofnunum bæjar-
ins,“ segir Hlín.
Hún leggur áherslu á að skera
niður kostnað í yfirbyggingu og
nýta fjármuni frekar í starfsemi
stofnana.
Átak í heilsueflingu barna
„Við leggjum mikla áherslu á að
styrkja innviði samfélagsins og að
þess verði gætt, með betri afkomu
sveitarfélagsins, að fjármunum
verði varið til þeirra málaflokka
sem mest hafa þurft að spara á liðn-
um árum,“ segir Guðmundur Bald-
vin Guðmundsson, oddviti Fram-
sóknarflokksins.
Hann leggur áherslu á stöðu
barna og ungmenna og vill stórauka
hreyfingu þeirra. „Þá viljum við
gera stórátak í heilsueflingu barna
og unglinga, hækka frístundaávís-
anir og viljum einnig bjóða upp á
frístundaávísanir fyrir eldri borg-
ara.“
Hann telur húsnæðismál þurfa að
vera eitt af stóru málunum í kosn-
ingunum. „Við viljum stuðla að upp-
byggingu á öflugum leigumarkaði
í samvinnu við lífeyrissjóði og hús-
næðissamvinnufélög.“
Nýsköpun í atvinnumálum
Matthías Rögnvaldsson er nýr
oddviti L-listans. L-listinn er eina
staðbundna framboðið sem starf-
ar ekki á landsvísu. „L-listinn er
eina óháða framboðið og hefur
verið í fararbroddi varðandi sam-
vinnu allra í bæjarstjórn og skilað
hvað bestum rekstri sveitarstjórna
á Akureyri undanfarin kjörtíma-
bil,“ segir hann.
Matthías vill leggja áherslu á
atvinnumál og nýsköpun næstu
fjögur árin. „Við viljum fara
nýjar leiðir í atvinnumálum þar
sem mikil áhersla verður lögð á
nýsköpun. Þá viljum við efla íbúa-
lýðræðið til muna og gefa bæjarbú-
um sterkari rödd inn í stjórnsýslu
bæjarins,“ segir hann.
L-listinn er með hreinan meiri-
hluta í bænum og hefur stýrt bæj-
arfélaginu eftir hrun, oft við erf-
iðar aðstæður.
„Við leggjum mikla áherslu
á að með bættri afkomu bæjar-
sjóðs gefist tækifæri til þess að
efla þjónustu og bæta hag starfs-
fólks og bæjarbúa. Við viljum láta
bæjarbúa um bæjarmálin,“ segir
Matthías.
Níu af ellefu nýliðar í bæjarstjórn
Ljóst er að nýr meirihluti verður myndaður í bæjarstjórn Akureyrar eftir kosningar. Hreinn meirihluti L-listans fellur sam-
kvæmt könnun Fréttablaðsins og Sjálfstæðisflokkur og L-listinn geta einir flokka myndað saman tveggja flokka meirihluta.
FRAMBOÐSLISTAR Á AKUREYRI
1. sæti Margrét
Kristín Helgadóttir,
lögmaður og nemi
2. sæti Áshildur Hlín
Valtýsdóttir, kennari
og húsmóðir
3. sæti Preben Jón Pétursson,
sjálfstæður atvinnurekandi og
mjólkurtæknifræðingur
4. sæti Þorsteinn Hlynur Jónsson,
framkvæmdastjóri og nemi
1. sæti Hlín Bolla-
dóttir, bæjarfulltrúi
og kennari
2. sæti Inga Björk
Harðardóttir,
gullsmiður
3. sæti Erling
Ingvason, tannlæknir
4. sæti Machael Jón Clarke,
tónlistarmaður
Björt framtíð DögunÆ T
Listi fólksinsL
1. sæti Guðmundur
Baldvin Guðmunds-
son, bæjarfulltrúi
2. sæti Ingibjörg
Isaksen,
forstöðumaður
3. sæti Siguróli Magni Sigurðsson,
nemi
4. sæti Elvar Smári Sævarsson,
kennari
1. sæti Matthías
Rögnvaldsson,
framkvæmdastjóri
2. sæti Silja Dögg
Baldursdóttir,
markaðsfulltrúi
3. sæti Dagur Fannar Dagsson,
hugbúnaðarráðgjafi
4. sæti Tryggvi Þór Gunnarsson,
bæjarfulltrúi/ Sölumaður
FramsóknF
1. sæti Logi
Einarsson, arkitekt
2. sæti Sigríður Huld
Jónsdóttir, aðstoðar-
skólameistari
3. sæti Bjarki
Ármann Oddsson, þjálfari
4. sæti Dagbjört Pálsdóttir,
háskólanemi
1. sæti Gunnar
Gíslason,
fræðslustjóri
2. sæti Eva Hrund
Einarsdóttir,
starfsmannastjóri
3. sæti Njáll Trausti Friðbertsson,
flugumferðarstjóri
4. sæti Bergþóra Þórhallsdóttir,
aðstoðarskólastjóri
Samfylkingin SjálfstæðisflokkurinnS D
1. sæti Sóley Björk
Stefánsdóttir,
fjölmiðlafræðingur
2. sæti Edward H.
Huijbens, prófessor
við HA og varaþing-
maður
3. sæti Hildur Friðriksdóttir,
meistaranemi í félagsvísindum
4. sæti Valur Sæmundsson,
tölvunarfræðingur
Vinstri grænirV
Sveinn
Arnarsson
sveinn@frettabladid.is
FYLGI FLOKKANNA
Kosningar
2010
12,8%
13,3
45,0%
9,8%
10,4%
8,7% Sjálfstæðisflokkurinn
Framsókn
Listi fólksins
Vinstri grænir
Samfylkingin
Fjöldi bæjarfulltrúa
Björt framtíð
Dögun
Bæjarlistinn
23,0%Könnun
2014
18,3%
11,8%
22,1%
13,9%
2,0%
8,2%
ÁRIÐ 2010
17.573
bjuggu á
Akureyri
ÁRIÐ 2014
18.103
búa á
Akureyri
JANÚAR 2013
112%
skuldaviðmið
JANÚAR 2014
124%
skuldaviðmið
JANÚAR 2014
23,3 milljarðar króna
heildarskuldir Akureyrar