Fréttablaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 8
15. maí 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 8
Málþingsstjóri: Ólafía Jakobsdóttir,
forstöðumaður Kirkjubæjarstofu.
Þinggjald: kr. 2.000
Fyrir nemendur, félaga í SSF og félaga í FÍSOS: kr. 1000
skráning á info@sagatrail.is - www.sagatrail.is
Vægi safna, sýninga og sögu í ferðaþjónustu 2025
13.00 Ávinningur af eflingu Samtaka um söguferðaþjónustu
Rögnvaldur Guðmundsson, formaður SSF.
13.20 Skapandi greinar í ferðaþjónustu, samlegð og tækifæri
Kristjana Rós Guðjohnsen, verkefnastjóri hjá Íslandsstofu.
13.40 Stórt safn á litlum stað
Steinunn María Sveinsdóttir, fagstjóri Síldarminjasafnsins á Siglufirði.
14.00 Hvernig birtist þjóðararfurinn í handverkinu
og hver eru tækifærin?
Sunneva Hafsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Handverks og hönnunar.
14.20 Kaffi og með því
15.00 Vinsældir Íslendingasagna og nýjar útgáfur þeirra
á norrænum málum
Örnólfur Thorsson, íslenskufræðingur og ritstjóri útgáfna
á íslenskum miðaldatextum.
15.20 Sagan og söfnin í Reykjavík:
fortíð, samtíð og framtíðarsýn
Guðbrandur Benediktsson, safnstjóri.
15.40 Að markaðssetja menningu
Hjörvar Sæberg Högnason, forstöðumaður markaðs - og viðskiptaþróunar
hjá ferðaskrifstofunni Iceland Travel
16.00 Klemma lygarans: krókar og keldur í söguferðaþjónustu
Stefán Pálsson, sagnfræðingur.
16.20 Samantekt:
Skúli Björn Gunnarsson, Skriðuklaustri.
Málþing Samtaka um söguferðaþjónustu (SSF) í
samvinnu við Íslandsstofu. Þar verður fjallað um stöðu,
nýsköpun og framtíðartækifæri safna, sýninga og
söguferðaþjónustu við markaðssetningu á Íslandi.
S
A
M
T
Ö
K
UM
S Ö
G U F E R ‹AÞJÓ
N
U
S
T
U 16. maí kl. 13:00-16:30Þjóðminjasafni Íslands
Rögnvaldur
Guðmundsson
Steinunn María
Sveinsdóttir
Örnólfur
Thorsson
Hjörvar Sæberg
Högnason
Skúli Björn
Gunnarsson
Kristjana Rós
Guðjohnsen
Sunneva
Hafsteinsdóttir
Guðbrandur
Benediktsson
Stefán
Pálsson
Ólafía
Jakobsdóttir
TYRKLAND, AP Nærri 450 námu-
verkamenn höfðu í gær fundist
á lífi eftir mikla sprengingu sem
varð í kolanámu í borginni Soma
í vestanverðu Tyrklandi á þriðju-
dag.
Nærri 250 lík höfðu fundist og
óttast var að um hundrað í viðbót
hefðu látið lífið.
Hundruð manna, bæði ættingjar
þeirra sem fórust og námuverka-
menn sem komust lífs af, söfnuð-
ust saman í Soma í gær og beind-
ist reiði þeirra að Recep Tayyip
Erdogan forsætisráðherra og rík-
isstjórn hans.
Sumir hrópuðu að Erdogan væri
morðingi og þjófur. Grjóti var
kastað í lögregluna og einhverjir
voru handteknir.
Í Istanbúl var einnig efnt til
mótmæla fyrir utan fyrirtækið
sem rekur námuna. Þá safnaðist
fólk einnig saman í höfuðborginni
Ankara, en lögreglan greip þar inn
í og rak fólkið burt.
Nærri átta hundruð manns voru
að vinna í námunni þegar spreng-
ingin varð á þriðjudag. Þetta er
versta námuslys í Tyrklandi frá
árinu 1992 þegar sprenging varð í
námu skammt frá hafnarborginni
Zonguldak við Svartahafið, með
þeim afleiðingum að 263 námu-
verkamenn létust.
Tyrknesk stjórnvöld sögðu að
síðast í mars á þessu ári hefðu
yfirvöld farið yfir öryggismál í
námunni. Ekkert hefði fundist sem
ábótavant teldist.
Erdogan forsætisráðherra lýsti í
gær yfir þriggja daga þjóðarsorg.
Hann frestaði jafnframt utan-
landsför en hélt í staðinn til Soma
að skoða vettvanginn og ræða við
námuverkamenn og aðstandendur
þeirra.
gudsteinn@frettabladid.is
Mikil reiði
og sorg vegna
námuslyss
Námuverkamenn og ættingjar þeirra sem fórust í
sprengingu í kolanámu í Tyrklandi gagnrýna tyrknesk
stjórnvöld harðlega. Óttast er að um 350 manns hafi
látið lífið. Lýst var yfir þriggja daga þjóðarsorg.
■ 2013 Stór aurskriða féll á gullnámusvæði í Tíbet og kostaði 83
verkamenn lífið.
■ 2012 Að minnsta kosti 60 manns létu lífið eftir að aurskriða féll á gull-
námu í norðaustanverðu Kongó.
■ 2011 Gassprenging varð djúpt niðri í kolanámu í Sorange í Pakistan, og
kostaði hún 62 menn lífið.
■ 2010 Versta námuslys á Nýja-Sjálandi áratugum saman þegar mikil
gassprenging varð djúpt niðri í námu á Suður-Eyjunni. Þar létu 29 menn
lífið, en þeir höfðu verið innilokaðir frá því sams konar sprenging varð í
námunni fimm dögum fyrr.
■ 2010 33 námuverkamönnum var bjargað úr gull- og kolanámu í
Atacama-eyðimörkinni í Chile, eftir að þeir höfðu verið þar innilokaðir
í 69 daga.
■ 2010 Sprenging varð í Upper Big Branch-kolanámunni í Vestur-Virginíu í
Bandaríkjunum, með þeim afleiðingum að 29 námuverkamenn létust.
Mannskæð námuslys síðustu árin
BUGAÐIR Tyrkneskir námuverkamenn syrgja félaga sína sem fórust þegar spreng-
ing varð í kolanámu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SVÍÞJÓÐ Innflytjendur í Svíþjóð
sendu í fyrra sem samsvarar 17,6
milljörðum sænskra króna, um
300 milljörðum íslenskra króna,
til heimalanda sinna samkvæmt
mati fyrirtækisins Ria Financial
Services.
Í frétt á vef Dagens Nyheter
segir að velþekkt sé að peninga-
sendingar innflytjenda til heima-
landa sinna skipti oft meira máli
en alþjóðlegt hjálparstarf. Bent
er á að á Filippseyjum og í Jemen
samsvari heimsendingarnar mörg-
um prósentum af vergri þjóðar-
framleiðslu.
Flestar peningasendingarnar
frá innflytjendum í Svíþjóð fara
til Íraks. Í fyrra voru rúmir 1,5
milljarðar sænskra króna sendir
þangað. Það jafngildir tæplega 26
milljörðum íslenskra króna. Til
Póllands sendu innflytjendur tæp-
lega 900 milljónir sænskra króna
eða tæpa 15 milljarða íslenskra
króna. Þar á eftir fylgja Íran,
Tyrkland og Bosnía.
Peningasendingarnar fara flest-
ar frá stórborgunum í Svíþjóð og
svæðunum í kringum þær. - ibs
Peningasendingar mikilvægari en hjálparstarf:
Sendu 300 milljarða
Í ÍRAK Innflytjendur í Svíþjóð sendu í
fyrra 1,5 milljarða sænskra króna heim
til Íraks. NORDICPHOTOS/AFP
KÖNNUN Flestir á heimsvísu
telja spillingu vera alvarlegasta
vandamál mannkynsins, eða um
21 prósent. Flestir Íslendingar
telja hins vegar fátækt og ójöfnuð
vera helsta vandamálið, eða rúm-
lega 25 prósent.
Þetta kemur fram í niðurstöðu
könnunar Alþjóðlegu Gallupsam-
takanna, sem birta árlega niður-
stöður skoðanakönnunar sem
framkvæmd var í 65 löndum um
heim allan.
Tæplega 10 prósent íslenskra
svarenda telja trúarofstæki vera
það alvarlegasta og rúm 9 prósent
telja umhverfismál vera það sem
helst ætti að taka á.
Flestir nefndu efnahagsleg
vandamál í Afríku, en 27 prósent
Keníubúa svöruðu spurningunni
á þann veg, á meðan 10,5 prósent
Íslendinga gerðu hið sama. - kóh
Gallup spyr um vandamál:
Spilling alvar-
legasti vandinn
SVISS Á síðasta ári voru 33,3 milljónir manna á
flótta innan landamæra heimalands síns í heim-
inum öllum. Fólki á vergangi hafði fjölgað um
4,5 milljónir frá árinu áður, og munar þar mest
um ástandið í Sýrlandi.
Að meðaltali hrekst ein fjölskylda heiman frá
sér í Sýrlandi á hverri einustu mínútu. Þetta
kemur fram í yfirliti frá Flóttamannastofnun
Sameinuðu þjóðanna og Norska flóttamanna-
ráðinu.
Á síðasta ári hröktust 8,2 milljónir manna
að heiman vegna ofbeldis og átaka, þar af 3,5
milljónir í Sýrlandi einu.
„Þetta er fólk sem býr við algjört neyðar-
ástand,“ sagði Jan Egeland, framkvæmdastjóri
Norska flóttamannaráðsins, á blaðamannafundi
í Genf í gær.
Hann segir að fjöldi þeirra sem eru á ver-
gangi innan eigin landamæra sé orðinn meiri en
sést hefur frá tímum þjóðarmorðanna í Rúanda
og Bosníu á síðasta áratug síðustu aldar, en þá
náði fjöldinn hámarki í 28 milljónum.
Fram kom í tölum stofnananna að 63 prósent
allra þeirra sem eru á vergangi innan eigin
landamæra séu í fimm löndum: 6,5 milljónir í
Sýrlandi, 5,7 milljónir í Kólumbíu, 3,3 milljónir
í Nígeríu, 2,9 milljónir í Austur-Kongó og 2,4
milljónir í Súdan. - gb
Að meðaltali hrekst ein fjölskylda heiman frá sér í Sýrlandi á hverri einustu mínútu:
Yfir þrjátíu milljónir manna á vergangi
FLÓTTAFÓLK Í SÝRLANDI Hvergi hefur fleira fólk
hrakist að heiman en í Sýrlandi. NORDICPHOTOS/AFP
ORKUMÁL Hagnaður varð af venju-
bundnum rekstri Orkubús Vest-
fjarða í fyrra. Í tilkynningu segir
að framleiðsla vatnsaflsvirkj-
ana fyrirtækisins hafi verið með
minna móti vegna tíðarfarsins.
Þar segir að flutningslínur hafi
brotnað og verulegar truflanir
orðið á dreifikerfinu í aftaka-
stomi síðustu dagana í janúar.
Hagnaðurinn í fyrra var 223
milljónir króna. Eignir eru 6,5
milljarðar króna en skuldir
tæpur milljarður. - gar
Enn gott ár hjá Orkubúinu:
Hagnaður þrátt
fyrir erfiðleika