Fréttablaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 15.05.2014, Blaðsíða 29
 5ÍSLENSKT GRÆNMETIVOR 2014 1 pk nan brauð (má nota pizzubotn eða jafnvel smjördeig) 2 stk tómatar 40 g sólþurrkaðir tómatar 2 msk furuhnetur 50 g rjómaostur 1 stk shallottulaukur 1 rif hvílaukur salt og pipar Álegg á pizzuna: Þunnt skornir tómatar og fersk basilikka. Olivuolía Gróft sjávarsalt og pipar Þetta er í fyrsta sinn sem framleiddar eru tómatvörur úr íslenskum tómötum. Þetta var mjög ánægjulegt og vandasamt“, segir Helga Mogensen en hún leiddi framleiðslu Sölufélags garðyrkjumanna á nýjum vörum úr íslenskum tómötum. Helga og samstarfsmenn hennar hjá Sölufélaginu hafa þróað tómatsósu, tómatgrunn og pastasósu. Helga segir að í tómatsósuna, tómatgrunninn og pastasósuna séu notaðir íslenskir tómatar sem komast ekki í úrvalsflokk vegna stærðar. „Þetta er úrvalsvara en tómatarnir komast ekki í upprunamerktar neytendaumbúðir vegna þess að þeir eru t.d. of stórir eða of litlir. Þá er auðvitað upplagt að nota þá í alls konar tómatvörur. Með þessu ná garðyrkjubændur að fullnýta uppskeru sína. Tómatvörurnar eru auðvitað framleiddar samkvæmt ströngustu gæðakröfum og innihalds- og næringargildi eru einnig unnin samkvæmt nýjustu reglugerðum Matvælastofnunar – MAST“, segir Helga. Helga Mogensen er brautryðjandi þegar kemur að hollu matarræði. Hún hefur leitt þróun í veitingahúsarekstri í áratugi. „Það hefur orðið bylting á neysluvenjum landsmanna og frábært að sjá hvað landsmenn eru orðnir meðvitaðir um gæði matvæla. Ég á mér þann draum að landsmenn geti orðið sjálfum sér nógir hvað varðar grænmeti og þurfi alls ekki að flytja það inn. Það sparar gjaldeyri og skapar störf. Ég ber mikla virðingu fyrir því sem grænmetisbændur eru að gera og þeir senda úrvalshráefni á markaðinn með mikilli fyrirhöfn“, segir Helga. Þar sem þetta er í fyrsta sinn sem tómatvörur eru framleiddar úr íslenskum tómötum hér á landi þá hlýtur það að vera vandasamt verk að finna hið eina rétta bragðið. „Auðvitað var það stórmál, það veltur allt á bragðinu. Ég hef unnið við matargerð í um þrjátíu ár og hef gert óteljandi uppskriftir. Þetta kemur með æfingunni. Í þessu tilfelli studdi ég mig við ítalskar hefðir í matargerð og ég tel að okkur hafi tekist vel til. Við fengum í lið með okkar matgæðinga til að ná rétta bragðinu“, segir Helga. Tómatsósan er krydduð með úrvalskryddum sem Helga valdi og eins pastasósan, en í tómatgrunninum eru engin krydd. Engin rotvarnarefni eru í sósunum né heldur þykkingar- eða bindiefni. Sýrðar íslenskar gúrkur eru einnig komnar á markaðinn. „Sýrðar gúrkur er klassískt meðlæti t.d. með fiski og kjöti. Ég leitaði fyrirmynda í Danmörku þegar ég var að vinna þessa vöru“, segir Helga. Tómatsósa, pastasósa og tómatgrunnur úr íslenskum tómötum -Helga Mogensen þróaði nýju vörurnar „Ég á mér þann draum að landsmenn geti orðið sjálfum sér nógir hvað varðar grænmeti ... Lasagnasósa Djúsi lasagna stútfullt af grænmeti með eða án kjöts... 1 krukka af tilbúni pastasósu. 150 gr sveppi smátt saxaðir 1 stk smátt söxuð gulrót skræld og skorin i litla bita. ½ stk sæt kartafla skræld og smátt skorin. 1 stk paprika fræhreinsaðar og smátt söxuð.. Handfylli af saxaðri steinselju og handfylli af basil 2 tsk tímían 1 tsk oregano 1 tsk salt og 1 tsk hvítur pipar 1 tsk paprika 50 ml góð repjuolia Hita olíuna á góðri pönnu ásamt kryddum, setja grænmetið saman við og steikja i 5 mín, hræra vel í.Setja 150 ml af vatni sama við og sjóða i nokkra mín til viðbótar . Þá kemur pastasósan saman við. Lækka undir og láta malla þar til að grænmetið er orðið mjúkt. Saxa fersku jurtirnar útí. Þessi grunnur er góður sem grænmetislasagna, setja pastaplötur á milli grænmetislaga . En þetta er lika dásamleg sósa fyrir kjötlasagna. Toppaðu þetta með kotasælu og góðum osti. Frábærlega einfalt og svo gott. Njótið í góðum félagsskap... Kartöflusalat með sýrðum agúrkum! 600 gr kartöflur soðnar , kældar niður og skornar í bita 1 stk sellerístöng smátt söxuð 50 gr saxaðar ólíur 100 gr saxað agúrkur Handfylli af smátt saxaðri steinselju 1 msk capers ½ stk rauð paprika smátt söxuð, Sósan saman stendur af 1 dós sýrðum 1 msk sætt sinnep 2 tsk limesafi 1-2 tsk salt ½ tsk pipar. Hræra öllu hráefninu vel saman og blanda saman við kartöflurnar, láta standa í 1 klst áður en það er borið fram og borðað, Flott að skreyta salatið með sneiddum radísum.. Gott með grillmat… p.s En ekkert eins gott og smurt brauð að hætti dana að þessu sinni vel ég gott rúgbrauð með lifrakæfu og fullt af sýrðum agúrku, glas af góðum bjór. Vá er suarið komið? Súpergóð og einföld pizzasósa! 1 krukka tómatagrunnur(maukaðir tómatar) 30 gr rifinn parmesan ostur 2 stk ríf af smátt söxuðum hvítlauk 1 msk af hunang 21/2 tsk laukkrydd ½ tsk þurrkað oreganó ½ tsk marjoram ½ tsk þurrkað basil ½ tsk svartur pipar 1/2 tsk cayennapipar 1 ½ tsk gróft salt. Setja hvítlaukinn og tilbúnu sósuna í pottinn og leyfa hitanum að koma upp. Lækka undir og láta malla í 5 mín, setja öll kryddin saman við , hræra vel. Láta sósuna taka sig á lágum hita.rífa pharmasanóstinn saman við. Þessi sósugrunnur geymist vel í góðu íláti í ísskáp.. Sumarlegar samlokur með relish rjómaosti! 150 gr Hreinn rjómaostur 1 stk hvítlauksrif 4 msk relish frá SFG Gott brauð Salat Tómatar Spírur Kreista hvítlaukinn saman við rjómaostinn og hræra saman við relish. Smyjra góðu þykku lagi ofan á brauðsneiðina, skreyta fallega með salati og tómötum og skreyta með spírum. Toppa með annari smurðri brauðsneið,. Fersktar og góðar hvenær sem er… Partýpizzur – tilvaldar í veisluna! Setjið tómatana (fersku og sólþurrkuðu), shallottulaukinn, hvítlaukinn og rjómaostinn í matvinnsluvél. Bætið furuhnetunum út í og maukið létt. Kryddði með salti og pipar. Stingið nan-brauðið út í litla hringi og smyrjið pesóinu á brauðið. Raðið svo tómatsneiðum og basil laufum til skiptis á pizzuna og kryddið með grófu sjávarsalti og svörtum pipar. Að lokum smá hellið smá olivuolíu á toppinn. Hrefna Sætran
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.