Fréttablaðið - 13.06.2014, Síða 12
13. júní 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 12
“An adrenaline rush that blasts the nine-to-five blues
into outer space. Go and see it – you’ll have a BLAM!”
Metro
„Frábær sýning“
VG, Fbl
“Jaw-dropping”
Time Out London
„Hin fullkomna skemmtun“
HSS, Mbl
“Raucous piece of slapstick
physical theatre”
The Times
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Aðeins þessar sýningar!
Fim 19/6 kl. 20 UPPSELT
Fös 20/6 kl. 20 örfá sæti
Lau 21/6 kl. 20 örfá sæti
Sun 22/6 kl. 20 lokasýn!
Suður Grænland 17-19 júní
www.northernexplorer.is info@northernexplorer.is
sími: 7700023/7824717
Tveggja daga ferð á slóðir Eiríks Rauða .Gisting í 2 nætur.
Íslensk fararstjórn. Verð frá 117.000. Sér tilboð vegna fyrsta flugs
Greenland Express. Takmarkaður sætafjöldi.
Einnig tilboð á flugi þessa daga til Köben kr. 47.000 báðar leiðir.
Norðurslóðir Ferðaskrifstofa ehf. Nánari upplýsingar á:
HEILBRIGÐISMÁL SÁÁ hefur tekið
í notkun nýja álmu á Vogi sem er
fyrir veikustu sjúklinga sjúkra-
hússins.
Með nýju álmunni er komið til
móts við þarfir veikustu sjúkling-
anna, oft er um að ræða eldra fólk
sem glímir við hreyfihömlun og
þarfnast umönnunar og aðhlynn-
ingar.
Viðbyggingin var fjármögnuð með
framlögum sem velunnarar SÁÁ
létu af hendi, án þátttöku ríkis eða
sveitarfélaga. Einn einstaklingur
styrkti framkvæmdina um heilar
fimmtíu milljónir króna.
„Við fáum ótrúlega mikla pen-
inga frá fyrirtækjum og einstak-
lingum. Á síðasta ári settum við
280 milljónir inn í reksturinn en
við erum að reka spítalann með
200 milljóna króna halla því við
fáum of litlar fjárveitingar frá rík-
inu,“ segir Þórarinn Tyrfingsson,
yfirlæknir á Vogi.
Miklir biðlistar eru á Vogi vegna
skorts á starfsfólki og fjármagni.
„Þeir veikustu sem hafa komið oft
þurfa að bíða lengst. Allar svona
sparnaðaraðgerðir bitna á veik-
ustu sjúklingunum.“ - ebg
Ný bygging fjármögnuð af framlögum velunnara SÁÁ hefur verið opnuð:
Álma fyrir þá elstu og veikustu
VOGUR Nýja álman er með betri
aðstöðu fyrir starfsfólk. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÍRAK Íraksstjórn virðist standa
ráðalaus gagnvart herskáum ísl-
amistum, sem hafa nú í vikunni
náð borgunum Mosúl og Tikrít á
sitt vald og segjast nú stefna til
höfuðborgarinnar Bagdad.
Kúrdar hafa brugðist við með
því að senda hersveitir til borgar-
innar Kirkuk og segja að stjórnar-
herinn sé flúinn þaðan. Kirkuk er í
næsta nágrenni sjálfstjórnarsvæð-
is Kúrda í norðausturhluta lands-
ins, en Kúrdar hafa lengi deilt við
stjórnina í Bagdad um yfirráðin í
Kirkuk.
Her og lögregla sýndu litla mót-
spyrnu og forðuðu sér hið snarasta
þegar uppreisnarsveitir íslamista
réðust inn í Mosúl og Tikrít.
Uppreisnarsveitir íslamista
hafa þá náð á sitt vald mestöllum
vestur hluta Íraks, þar sem súnní-
múslímar eru í meirihluta, en hafa
enn sem komið er ekki hætt sér
inn á svæði sjíamúslíma í suðaust-
urhlutanum.
Engu er líkara en að Írak sé að
liðast í sundur og klofna í smærri
einingar, þar sem sjíamúslímar
héldu hugsanlega eftir suðaust-
urhlutanum, Kúrdar stæðu fast-
ir fyrir í norðausturhlutanum en
hinir herskáu íslamistar næðu
völdum á svæði súnnímúslíma í
vesturhlutanum – væntanlega við
litlar vinsældir heimamanna þar.
Fréttastofan AP segir margt
benda til þess að fyrrverandi
stuðningsmenn Saddams Hussein
á meðal súnnímúslíma í her og lög-
reglu landsins hafi stutt aðgerðir
uppreisnarmanna.
Bandaríski fréttavefurinn The
Daily Beast fullyrðir að írösk
stjórnvöld bíði nú eftir því að
bandaríski herinn komi þeim til
aðstoðar með loftárásum, en tæp-
lega tvö og hálft ár er síðan Banda-
ríkjaher yfirgaf landið og lýsti því
yfir að hernaði þar væri lokið.
Barack Obama Bandaríkja-
forseti ræddi stuttlega við fjöl-
miðla í gær og sagði þar að Írakar
myndu nú þurfa hernaðaraðstoð
frá Bandaríkjunum, en gaf ekk-
ert upp um í hverju hún kynni að
verða fólgin.
Íraska þjóðþingið hefur ekki
fengist til að samþykkja kröfu
Núri al Malikis forseta, um að
lýst verði yfir neyðarástandi sem
myndi færa honum aukin völd til
að takast á við ástandið.
Al Maliki er sjálfur sjíamúslími
og hefur lítinn stuðning á meðal
súnnímúslíma, enda þykir þeim
hann hafa gert sjíum hærra undir
höfði við stjórn landsins en súnní-
um. gudsteinn@frettabladid.is
Írak virðist vera að
liðast í sundur
Íraksstjórn ræður ekkert við uppreisn íslamista, sem hafa náð stórum hluta lands-
ins á sitt vald og stefna nú til höfuðborgarinnar Bagdad. Stjórnarherinn gufaði
upp þegar á reyndi og ráðamenn eru sagðir bíða eftir aðstoð frá Bandaríkjaher.
HERINN SKILDI
DÓTIÐ SITT EFTIR
Búnaður frá íraska
hernum við eftir-
litsstöð skammt frá
borginni Mosúl, sem
uppreisnarmenn náðu
á sitt vald í vikunni.
NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Karlmaður var dæmd-
ur til tíu mánaða fangelsisvistar
í Hæstarétti í gær fyrir að hafa
sleikt kynfæri þrettán ára stúlku
og greitt henni 25 þúsund krónur
fyrir. Héraðsdómur Reykjavíkur
hafði dæmt manninn til fimmtán
mánaða fangelsisvistar.
Héraðsdómur hafði komist
að þeirri niðurstöðu að maður-
inn hefði ekki vitað um aldur
stúlkunnar. Tölvupóstsamskipti
þeirra sýndu að hún hefði sagst
vera sautján ára að verða átján.
Þá mun hún hafa gefið sama svar
þegar maðurinn hitti hana. Álit
dómsins var að ekki hefði verið
hægt að slá því föstu að hún væri
yngri en fimmtán ára miðað við
svör hennar og útlit.
Ríkissaksóknari vísaði málinu
til Hæstaréttar, en maðurinn fór
fram á að dómur héraðsdóms yrði
mildaður.
Sökum þess að meðferð málsins
dróst, maðurinn hefði leitað sér
sálfræðiaðstoðar og greitt stúlk-
unni skaðabætur og bætur vegna
kostnaðar lögmanns, var refsing
mannsins í Hæstarétti ákveðin
fangelsi í tíu mánuði. Þar af eru
átta mánuðir skilorðsbundnir til
þriggja ára.
- skó
Hæstiréttur mildaði í gær dóm yfir manni sem greiddi stúlku fyrir mök:
Vissi ekki að stelpan var 13 ára
HÆSTIRÉTTUR Maðurinn hefur leitað
sér sálfræðiaðstoðar og greitt stúlkunni
sem um ræðir skaðabætur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
➜ Her og lögregla sýndu litla
mótspyrnu og forðuðu sér
hið snarasta þegar uppreisn-
arsveitir íslamista réðust inn í
Mosúl og Tikrít.