Fréttablaðið - 13.06.2014, Page 36
FRÉTTABLAÐIÐ Fólk og Tíska. Jóganámskeið og Markaður. Natalie Guðríður Gunnarsdóttir. Sumarréttir. Fataskápurinn. Samfélagsmiðlarnir.
10 • LÍFIÐ 13. JÚNÍ 2014
1VESKIÐMér fannst vanta einhvern fylgihlut hérna með. Mér
finnst ekkert leiðin-
legt að eiga veski
fyrir hvert og eitt til-
efni eða dress svo
ég á nokkur. Þetta er
úr Friis & Company.
Það er svo frískandi
og sumarlegt þann-
ig að mér fannst vel við hæfi að leyfa
því að fylgja með.
3
2RAUÐI KJÓLLINNÉg held mikið upp á þessa sumardásemd! Kjóllinn rifjar upp skemmtilegar minning-
ar um sól, sumar og brúðkaup bestu vina
minna en hann hannaði ég og saumaði ég
sjálf fyrir þetta ákveðna tilefni.
FATASKÁPURINN
ELEGANT EIGIN HÖNNUN
Auður Jónsdóttir er að læra viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík. Ásamt náminu starfar
hún sem meðstjórnandi hjá rafverkstæðinu Agli. Áhugasviðið er fjölbreytt en tíska, fjármála-
markaðir og stjórnun eru í miklu uppáhaldi. Í mörg ár hefur hún hannað og saumað eigin fl íkur.
3
SVARTI KJÓLLINN
Er ekki nauðsynlegt fyrir alla
fataskápa að innihalda einn
lítinn svartan kjól? Allavega
vantaði mig slíkan og var
ekki lengi að uppfylla þá
kröfu og hannaði þennan kjól
sem passar við nánast allt.
4RÖNDÓTTI JAKKINNÉg elska „sailor“ á sumrin. Það er svo elegant og gengur við svo margt. Ég fer í hann til dæmis við rifnar gallabux-ur, hvíta blússu og létta skó. Það skemm-
ir ekkert að skella hatti á höfuðið í góða
veðrinu. Ég keypti þennan jakka í Zöru,
búð sem klikkar sjaldan.
LEÐURJAKKINN
Skinnjakkinn er frá mér líka. Mér finnst hann
óttalega gæjalegur og svolítill pilot-fílingur yfir
honum. Hann poppaði ég upp með lítilli haus-
kúpu á rennilás og kraga. Hann er ekki þessi
týpíski leðurjakki svo það er gaman að breyta til
og slíta sig frá þessum hversdags leðurjakka.