Fréttablaðið - 21.06.2014, Side 30
21. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 30
1 4
2
6
5
7
8 9
12
10
1139
Gönguferðir, gallerí og hellar
Vesturland býr yfir gróðursælum dölum, glitrandi bergvatnsám og heitum lindum. Kynngimagnaður Snæfellsjökull
setur á það svip og merkir sögustaðir eru við hvert fótmál. Vestanlands getur fólk skemmt sér við að renna fyrir
fisk, skella sér í sund, spila golf, skoða söfn og listhús, klífa fjöll, kanna hella, ganga um fjörur og fara í siglingar.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
1. Ofan við Undirdjúpin
Vatnshellir á Snæfellsnesi er
ævintýraveröld í iðrum jarðar.
Hann er í Purkhólahrauni á utan-
verðu nesinu. Í Vatnshelli eru
meðal annars dropasteinsmynd-
anir. Undir aðalhellinum eru þrír
aðrir hellar sem saman heita því
dulúðuga nafni Undirdjúp. Leið-
sögumaður fer með fólki í Vatns-
helli allt árið.
2. Allir í fótabað
Snorralaug í Reykholti er vel
þekkt. Færri vita um Guðrúnar-
laug í Sælingsdal í Dalasýslu
sem heitir eftir kvenskörungnum
Guðrúnu Ósvífursdóttur. Laugin
var hlaðin upp nýlega ásamt litlu
búningsskýli rétt hjá sundlaug-
inni á Laugum, og þar með var
endurgerð baðlaug sem getið er
um í Laxdælu en fór undir skriðu
á 19. öld.
3. Namm … nesti
Á Vesturlandi vantar ekki vina-
lega staði fyrir nestisstopp.
Þeirra á meðal eru trjágarðurinn
Tröð á Hellissandi og Einkunnir
í Borgarnesi sem beygt er inn í
af þjóðvegi 1 gegnt golfskálanum
Hamri. Á báðum stöðum er grill-
aðstaða. Aðeins lengra labb er í
Paradísarlaut við fossinn Glanna
í Norðurárdal, að henni er göngu-
stígur frá golfskálanum á Mið-
engjum í grennd við Bifröst.
4. Einstök leið
Milli Hellna og Arnarstapa á
Snæfellsnesi liggur ekta göngu-
leið fyrir fjölskylduna. Þar ber
fyrir augu fjölbreytt fuglalíf,
kúnstuga kletta og gjár. Þegar
sjórinn er æstur spýtist hann
í gegnum Músagjá og í klett-
inum Valasnös niðri við strönd-
ina er Baðstofuhellir með ótal lit-
brigðum sem hin síkvika náttúra
myndar. Reikna má með að gang-
an taki einn og hálfan til tvo tíma.
5. Baðströnd
Langisandur er ein af perlum
Akraness. Hann er náttúruleg
baðströnd með ljósum sandi þar
sem ljúft er að sóla sig á góð-
viðrisdögum. Þar er staður hinna
reisulegustu sandkastala sem
MYND/HILMAR MÁR ARASON
Fyrir börnin
Stelpan Saga og
álfa strákurinn
Jökull hafa lent í
ýmsum ævintýrum. Hægt er
að fara í ratleiki með þeim á
Bjarteyjarsandi í Hvalfirði, í
Grundarfirði, á Eiríksstöðum,
í Landnámssetrinu í Borgar-
nesi, Reykholti og víðar. Á
vesturland.is er leiknum
hlaðið niður í smá forriti fyrir
snjallsíma og spjaldtölvur.
Ævintýri
með Sögu
og Jökli
Útivist
Eftir góða gönguferð er ljúft að slaka á í volgri laug
Leifsbúð í Búðardal
kl. 12-18
Skemman á Hvann-
eyri kl. 13-18
Edduveröld í
Borgarnesi kl.
10-23 og lengur um
helgar en matur er
afgreiddur til kl. 21
Kaffi Emil í
Grundar firði kl. 9-22
Ljómalind í Borgar-
nesi kl. 11-18
Afgreiðslutími
8. Gæðakaffi á góðum stað
Skemman er nýtt kaffihús sem
opnað var á Hvanneyri fyrir
síðustu helgi. Það er í elsta húsi
Hvanneyrar sem var byggt sem
matarskemma og er allt í upp-
runalegum stíl. Þar ráða húsum
þær Stephanie Nindel og Rósa
Björk Jónsdóttir og þær leggja
upp úr alvöru gæðakaffi og
flottum vöfflum.
9. Edduveröld
Í kaupfélagshúsunum við Eng-
lendingavík í Borgarnesi er veit-
inga- og kaffihús. Þar er boðið
upp á mat sem er unninn frá
grunni á staðnum og leitast við
að nýta hráefni úr héraði. Goða-
fræðisýning er í neðra pakkhúsi
og uppi er barnasvæðið Iðavellir
og setustofan Himinbjörg.
10. Súpa og saga
Kaffi Emil er í Sögumiðstöðinni,
Grundargötu 35 á Grundarfirði.
Þar er súpa og heimabakað brauð í
hádeginu en heimabakaðar kökur,
kaffi, kakó og öl allan daginn.
Neytum og njótum
Sitthvað í boði fyrir sælkerana
MYND/HELENA GUTTORMSDÓTTIR
11. Markaðir
Ljómalind er markaður
á Sólbakka 2 í Borgar-
nesi. Þar eru matvara
úr héraðinu, hekluð teppi og
annað handverk, krem og smyrsl
og blóm á pallinn. Við Akratorg á
Akranesi er antík- og matarmark-
aður um helgar og í sumar verða
þrír sveitamarkaðir í Borgarfirði.
Sá fyrsti í dag í Reykholti. Þar er
áherslan á rabarbara.
Matvara
og handverk
VESTURLAND
ÚTIVIST OG AFÞREYING
3 7
11
8
EINKUNNIR Fjölbreyttur
fólkvangur við Borgarnes.
verða svo öldum að bráð á næsta
flóði. Á Langasandi er sturta með
heitu vatni og margir skella sér
í sjósund þaðan. Þess má geta að
Langisandur hefur hlotið Bláfán-
ann sem er alþjóðleg umhverfis-
vottun Landverndar.
6. Söguslóðir
Við smábátahöfnina í Búðar-
dal stendur Leifsbúð sem hefur
að geyma bæði fróðleik og fæðu
því hún er upplýsingamiðstöð
og kaffihús. Þar er sýning um
landafundi víkinga í Vestur-
heimi og á líkani af Dölunum
sjást helstu sögustaðir Sturlungu
og Laxdælu. Myndir frá Eiríks-
stöðum í Haukadal prýða veggi
en þar er tilgátubær landkönnuð-
arins Eiríks rauða og konu hans
Þjóðhildar.
7. Gaman að veiða
Ótal vötn eru á Vesturlandi. Á
Þór isstöðum í Svínadal eru seld
leyfi í Svínavatn á 1.600 krónur
fyrir hálfan dag og 2.500 heilan.
Leyfi í Bauluvallavatn og Hrauns-
fjarðarvatn sem eru á heiðinni
milli Vegamóta og Stykkishólms
fást í veiðihúsinu við Straumfjarð-
ará, vestan Vegamóta. Þar kostar
stöngin 1.000 krónur yfir daginn.
MYND BJÖRN FÁLKI
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
12
STYKKISHÓLMUR Þaðan er farið í ævintýrasiglingar út á Breiðafjörð. Þar
er níu holu golfvöllur, sundlaug, sex gallerí, Vatnasafn og Eldfjallasafn svo
nokkuð sé nefnt. Svo er stutt á Helgafell og þar geta menn hitt á óskastund.