Fréttablaðið - 28.06.2014, Side 8
28. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
STJÓRNMÁL „Það er rangt sem menn
hafa haldið fram að það sé ekki
hægt að hafa upplýsta umræðu um
Evrópumálin og þá spurningu hvort
Ísland eigi að vera aðili að sam-
bandinu án þess að fyrir liggi samn-
ingur við ESB,“ segir Illugi Gunn-
arsson menntamálaráðherra. Illugi
blés nýju lífi í ESB-umræðuna með
ræðu sem hann hélt á Hrafnseyri á
þjóðhátíðardaginn.
Illugi segir að menn séu allt of
fastir í að ræða spurninguna hvern-
ig Ísland eigi að aðlaga sig reglu-
verki ESB.
„Við höfum ekki svarað því sem
samfélag hvort við viljum fara inn
í evrusamrunann sem er augljós
og fyrirsjáanlegur. Það er verið að
auka samruna innan evrusvæðisins
meðal annars með því að stefna að
meiri samruna ríkisfjármála evru-
ríkjanna,“ segir Illugi og bætir við
að Íslendingar verði að svara því
hvort þeir vilji fara inn í slíkt sam-
band eða hvort þjóðin telji hags-
munum sínum betur borgið á þann
hátt. Þetta þurfi að ræða áður en við
förum að ræða hvernig samningur
getur litið út.
„Við þurfum að svara því hvort
við viljum taka þátt í þeirri vegferð
sem augljós er,“ segir Illugi.
– En hvernig á þjóðin að svara
þessari spurningu?
„Þjóðir hafa svarað þessari
spurningu áður en þær sækja um
með því að kjósa flokka í meiri-
hluta á þjóðþing sín sem leggja
áherslu á ESB-aðild og sótt um
aðild á grundvelli þess. Annar
möguleiki er, eins og Sjálfstæðis-
flokkurinn lagði til 2009, að það
fari fram þjóðaratkvæðagreiðsla
um málið. Þá vöruðu sjálfstæðis-
menn við því að það væri farið af
stað með umsókn þar sem annar
stjórnarflokkurinn var á móti því
Ef við
lítum til
sögunnar þá
hefur okkur
vegnað
ágætlega þó
við séum
ekki í ESB.
Illugi Gunnarsson,
mennta- og menn-
ingarmálaráðherra
ÞRETTÁN ÁRA SKILIN Maimuna Abdullahi á leiðinni heim til sín í Kadúna í
Nígeríu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
NÍGERÍA, AP Maimuna Abdullahi er aðeins ein af þúsundum stúlkna á
barnsaldri sem hafa gengið í gegnum hjónaskilnað í norðaustanverðri
Nígeríu. Ýmist flúðu þær sjálfar misnotkun eiginmannsins eða eigin-
menn þeirra hentu þeim út.
Þegar Maimuna flúði var andlit hennar svo bólgið eftir barsmíðar
eiginmannsins að læknar óttuðust að hún væri farin úr kjálkalið. Þá
voru bak hennar og handleggir þakin förum eftir svipuhögg, sem faðir
hennar veitti henni fyrir að hafa flúið eiginmanninn.
Hún er því flúin frá foreldrum sínum og þorir ekki heim: „Ég veit að
þau munu neyða mig til að fara aftur til eiginmanns míns,“ segir hún.
Hún er, eins og aðrar í sömu sporum, fórnarlamb herferðar öfga-
samtakanna Boko Haram, sem hafa krafist þess að stúlkur gangi í
hjónaband frekar en að fara í skóla. Samtökin hafa gengið hart fram
og rænt hundruðum stúlkna sem sátu á skólabekk. - gb
Afleiðingar einstrengingsháttar Boko Haram í Nígeríu:
Þúsundir stúlkna eru á flótta
MENNTUN Reykjavíkurborg birti
í gær niðurstöður PISA-könnun-
arinnar árið 2012 eftir grunn-
skólum.
Fellaskóli kom verst út úr könn-
uninni. Tæplega helmingur nem-
enda skólans náði ekki fyrsta stigi
af sex í stærðfræði.
Hildur Björk Svavarsdóttir,
sviðstjóri hjá skóla- og frístunda-
sviði Reykjavíkurborgar, segir
að ekki sé hægt að horfa fram
hjá hve margir innflytjendur séu
í skólanum. Prófið er þreytt á
íslensku en 67 prósent nemenda
Fellaskóla eru af erlendu bergi
brotnir.
Borgarskóli kom best út úr
könnuninni. Skólin sameinaðist
Engjaskóla árið 2012 og heitir nú
Vættaskóli. Jóhanna S. Vilbergs-
dóttir, skólastjóri Vættaskóla,
þakkar færum kennurum og
hópaskiptingu nemenda árangur-
inn. „Hóparnir fara mishratt yfir
efnið og geta nemendur sjálfir
metið í hvaða hópi þeir vilja vera.“
Að mati Hildar á að taka niður-
stöðum PISA-könnunarinnar
með fyrirvara. Nemendur viti að
niður staða könnunarinnar skipti
þá engu máli. Vísar Hildur í viðtöl
við nemendur að könnuninni lok-
inni sem kláruðu prófið eins hratt
og mögulegt var til að komast sem
fyrst heim.
Reykjavík var yfir landsmeðal-
tali í könnuninni en Ísland kom
almennt ekki vel út úr henni. Les-
skilningur, læsi í stærðfræði og
náttúrufræði voru undir OECD-
meðaltali. - ih, ktd
Fellaskóli kom verst út úr PISA-könnuninni en Borgarskóli best og Reykjavík var yfir landsmeðaltali:
Próf á íslensku skýrir niðurstöðu í Fellaskóla
KOMU VERST ÚT Fjöldi nemenda af
erlendum uppruna í Fellaskóla á þátt í
að skýra niðurstöður PISA-könnunarinn-
ar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HAFNARFJÖRÐUR Hafnarfjarðar-
bær hefur auglýst eftir umsókn-
um í starf bæjarstjóra. Sjálfstæð-
isflokkur og Björt framtíð sitja í
nýjum meirihluta bæjarstjórnar
eftir sveitarstjórnarkosningar.
Á vefsíðu bæjarins segir að
umsækjendur þurfi „þekkingu
og farsæla reynslu af stjórnun,
stefnumótun og rekstri“ sem
og „leiðtogahæfileika og hæfni
í mannlegum samskiptum“.
Umsóknarfrestur er til og með
13. júlí næstkomandi. - bá
Samkomulag um leiðtoga:
Staða bæjar-
stjóra auglýst
Vill fá upplýsta um-
ræðu um Evrópumál
Menntamálaráðherra telur umræðu um Evrópumál á villigötum. Menn séu fastir í
að ræða hvernig Ísland eigi að aðlaga sig regluverki ESB. Hann vill ekki tjá sig um
hver eigi að verða afdrif umdeildrar tillögu utanríkisráðherra um viðræðuslit.
VILL BREYTA
UMRÆÐUNNI
Illugi Gunnars-
son menntamála-
ráðherra segir
að þjóðin verði
að svara þeirri
spurningu hvort
hún vilji fara inn
í evrusamrunann
sem sé augljós og
fyrirsjáanlegur.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
að sækja um en hinn flokkurinn
meðmæltur.“ Enda hafi farið svo
að umsóknarferlið stöðvaðist.
Enn er ekki ljóst hvað verður um
afar umdeilda þingsályktunartil-
lögu Gunnars Braga Sveinsson-
ar utanríkisráðherra um að draga
eigi til baka umsókn Íslands að
Evrópusambandinu. Illugi kveðst
ekki vilja tjá sig um tillöguna eða
hugsanleg afdrif hennar, svarar því
einungis til að tillagan sé á forræði
utanríkisráðherra.
Illugi segir að þjóðin eigi ann-
arra kosta völ en að ganga í Evr-
ópusambandið.
„Ef við lítum til sögunnar þá
hefur okkur vegnað ágætlega þó við
séum ekki í ESB. Við höfum EES-
samninginn og þar með aðgang að
innri markaði sambandsins sem
skiptir miklu máli. Nýlega höfum
við gert fríverslunarsamning við
Kína og áfram er unnið á vettvangi
EFTA-ríkjanna við gerð fríverslun-
arsamninga. Við eigum góð færi á
slíkum samningum sem fámenn
þjóð sem auðvelt er að semja við.
Þegar kemur að utanríkisviðskipt-
um þá eru okkur allir vegir færir
og það er hægt að halda því fram
að við eigum ekki minni möguleika
utan ESB en innan.“
johanna@frettabladid.is
VIÐSKIPTI „Það er alveg klárt mál
að vöruverð kemur til með að
lækka hér á landi,“ sagði Mar-
grét Sanders, formaður Samtaka
verslunar og þjónustu, í viðtali
um fríverslunarsamning við Kína
í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.
Fríverslunarsamningurinn
tekur gildi á þriðjudaginn, en
honum er ætlað að bæta viðskipta-
kjör milli landanna. Íslensk sjávar-
útvegsfyrirtæki segja samninginn
því bjóða upp á gríðarleg tækifæri,
enda er í honum kveðið á um nið-
urfellingu tolla á helstu útflutn-
ingsafurðum Íslendinga.
Meðal annars verða allar sjávar-
afurðir tollfrjálsar, en algengir
tollar á þeim eru á bilinu 10 til 12
prósent.
„Við fögnum þessum samningi,“
segir Margrét Sanders. „Þetta er
eitthvað sem við erum búin að
berjast fyrir. Fríverslunarsamn-
ingur er mikið hagsmunamál fyrir
verslunina, og við teljum að þetta
sé leið til lækkunar vöruverðs.
Þannig að neytendur fagna og við
fögnum.“
Hún segist ekki óttast að net-
verslun muni aukast á kostnað
verslunar hér á landi: „Ef við erum
að bjóða samkeppnishæft verð,“
segir hún. „Þá fáum við fleiri inn í
verslanirnar og þá fjölgar starfs-
fólki og allir hagnast á þessu.“
- gag, gb
Formaður SVÞ fagnar fríverslunarsamningnum við Kína:
Segir að vöruverð lækki hér
MARGRÉT SANDERS Formaður
Samtaka verslunar og þjónustu segir
fríverslunarsamninga mikið hagsmuna-
mál fyrir verslunina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Flísasagir og -skerar
Drive LG3-70A
1800W flísasög
86x57cm borð
kr. 139.900
Drive DIY 430mm flísaskeri
kr. 3.990
Drive DIY 500mm flísaskeri
kr. 8.990
k 21 990
Drive Pro 600mm flísaskeri
kr. 14.990
r. .
Drive Pro
600mm flísaskeri í tösku
Drive LG4-570A
800W flísasög
79x39cm borð
kr. 39.900
Drive flísasög 600W
kr. 9.290