Fréttablaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 92
28. júní 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 44
BAKÞANKAR
Hildar
Sverrisdóttur
1 bolli ísmolar
1 bolli möndlumjólk
1 lítið grænt epli án hýðis,
skorið í teninga
1 lítill banani
115 g grísk jógúrt
¼ bolli haframjöl
1 msk. saxaðar valhnetur
½ tsk. kanill
Epla- og val-
hnetu þeytingur
Ótrúlega frískandi drykkur og hollur líka.
Setjið öll hráefnin í blandara og blandið þangað til
þeytingurinn er orðinn kekkjalaus.
Fengið af síðunni pickfreshfoods.com
Allir borga barnaverð
EGILSHÖLLÁLFABAKKA
KRINGLUNNI
AKUREYRI
KEFLAVÍK
SPARBÍÓ
HOLLYWOOD REPORTER NEW YORK DAILY NEWS
„ÉG GAPTI AF UNDRUN!“
- GUARDIAN
TRANSFORMERS 2D
TRANSFORMERS 3D
TRANSFORMERS 3DLÚXUS
AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL
AÐ TEMJA DREKANN 2 3DÍSL. TAL
22 JUMP STREET
FAULT IN OUR STARS
TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL
X-MEN 3D
VONARSTRÆTI
KL. 1 - 4
KL. 8 - 10.30
KL. 1 - 5 - 9
KL. 1 - 3.15 – 5.30
KL. 1 - 3.15 – 5.30
KL. 5.30 - 8 - 10.40
KL. 8
KL. 1
KL. 10.40
KL. 8
WELCOME TO NEW YORK
AÐ TEMJA DREKANN 2 2D ÍSL. TAL
AÐ TEMJA DREKANN 2 3D ÍSL. TAL
TRAIN. . . DRAGON 3DENS. TAL ÓTEXT.
22 JUMP STREET
GRACE OF MONACO
FAULT IN OUR STARS
TÖFRALANDIÐ OZ 2D ÍSL. TAL
VONARSTRÆTI
KL. 8 - 10.40
KL. 3 - 5.45
KL. 3
KL. 8 - 10.15
KL. 8 - 10.30
KL. 5.40
KL. 5.20
KL. 3
KL. 3 - 5.20 - 8 - 10.40
-T.V., BIOVEFURINN.IS
-FRÉTTABLAÐIÐ-DV S.R.S
TRANSFORMERS 3D 4, 7, 8, 10:10(P)
TEMJA DREKANN SINN 2D 2, 4:30
TEMJA DREKANN SINN 3D 2
BRICK MANSIONS 11:10
22 JUMP STREET 8
MILLIOM WAYS, DIE WEST 10:20
VONARSTRÆTI 5
TÖFRALANDIÐ OZ 2D 2
ÍSL TAL
ÍSL TAL
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
www.laugarasbio.isSími: 553-20755%
ANTBOY
HM Í FÓTBOLTA
Í BEINNI
ANDRI & EDDA VERÐA
BESTU VINIR
LAU & SUN: 16.00
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
Ég samþykki deitbeiðnina eftir að hafa njósnað á Facebook og kortlagt sameig-
inlega vini okkar. Um leið og við göngum
inn á veitingastaðinn sé ég þrjá kunningja
mína sem forvitnum augum fylgjast laumu-
lega með okkur.
VIÐ borðhaldið grípum við til þjóðlegu
samtalshækjunnar og spyrjum út í skóla-
göngu hvort annars sem er í raun inn-
gangur að þjóðaríþróttinni „þekkir þú þá
þennan?“. Við erum í miðju kafi við að
tengja saman að gamall bekkjarbróðir
hans vinnur með mér og að vinkona
mín sé barnsmóðir vinnufélaga hans
þegar inn kemur kona sem ég þekki
úr lagadeildinni. Mér til skelfingar
gengur hún askvaðandi til okkar og
ekki batnar það þegar í ljós kemur
að þau þekkjast greinilega líka. Svo
kemur spurningaflóð þar sem hún
spyr æst hvenær við höfum byrjað
saman. Við muldrum að við séum nú
ekki saman; skömmustuleg þögnin
sem fylgir kemur henni í skilning um
hvað klukkan slær og glottið breiðist
út á kinnar hennar. Svo stendur hún
yfir okkur kankvís og útlistar hátt og
snjallt möguleika okkar á hamingju-
samri framtíð meðan við reynum að flýja
aðstæður inn í eftirréttaseðilinn. Dómur
fellur og við ku eiga séns þó við séum ólík.
Þá vitum við það.
Á rölti eftir matinn kemur hann auga á
fyrrverandi kærustu sína (sem ég man
eftir frá því í grunnskóla) og við afstýrum
hugsanlega vandræðalegum endurfundum
með því að stinga okkur inn í fyrsta leigu-
bíl sem silast niður Laugaveginn. Undir
stýri situr Gunni frændi og heilsar með
virktum. Kveðjustundin í Vesturbænum
var því skiljanlega með eindæmum óþægi-
lega dönnuð. Ég geri ráð fyrir að öll móður-
fjölskyldan hafi svo heyrt af piltinum sem
skutlaði Hildi heim.
NÆSTU daga barst mér fjöldi skilaboða
frá spyrjandi vinum, því eins og góðu sjáv-
arþorpi sæmir þá flýgur fiskisagan. Við
kauði hins vegar sammæltumst um að vera
ekkert í frekari samskiptum okkar í milli.
Það er þó aldeilis gott að ég get gert ráð
fyrir að rekast á hann alls staðar það sem
eftir er.
ÞAÐ vantar fleira fólk á þetta land. Slökum
á innflytjendastefnunni.
Reynslusaga úr stórborginni