Fréttablaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 84
28. júní 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 36TÍMAMÓT
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN GUNNAR HARALDSSON
Víðidal, Skagafirði,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 24. júní.
Aðstandendur
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
KOLBRÚN ÁRMANNSDÓTTIR
frá Tindum, Neskaupstað,
Funalind 7, Kópavogi,
andaðist fimmtudaginn 26. júní
á Landspítalanum í Fossvogi.
Útförin verður auglýst síðar.
Hallveig Hilmarsdóttir Ingimundur Sigurpálsson
Birna Hilmarsdóttir Samir Hasan
Tómas Hilmarsson Valgerður Halldórsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín,
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
BÁRA KJARTANSDÓTTIR
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
aðfaranótt föstudagsins 27. júní.
Guðni Adolfsson
Pálmar Ingi Guðnason Kristjana Jenný Ingvarsdóttir
Gunnar Bjarki Guðnason Rúna Gunnarsdóttir
Kristinn Geir Guðnason Eva Björg Jónsdóttir
og barnabörn.
551 3485 • udo.is
Óli Pétur
út fararstjóri
Jóhanna Erla
guðfræðingur
út fararþjónusta
Davíð
út fararstjóri
Hjartans þakkir færum við öllum þeim
sem sýnt hafa okkur samúð og stuðning,
í orði og á borði, vegna fráfalls
okkar elskuðu og einstöku dóttur,
systur, unnustu og barnabarns,
TINNU INGÓLFSDÓTTUR
f. 6.7.1992, d. 21.5.2014.
Inga Vala Jónsdóttir Ingólfur Samúelsson
Steinar, Logi og Ragnhildur Ingólfsbörn
Kristján Helgi Hjartarson
Sólveig Guðmundsdóttir
Ragnhildur Ingólfsdóttir Samúel Jóhannsson
önnumst við alla þætti
þjónustunnar með virðingu
og umhyggju að leiðarljósi
Þegar andlát
ber að höndum
Vesturhlíð 2 - Fossvogi - Sími: 551 1266 - www.utfor.is
Við þjónum allan sólarhringinn
„Pælingin er að vera með smá kapp-
hlaup þar sem fólk keppist um að safna
ýmsu efni sem þarf að skila og flokka
á ákveðinn stað. Hér reynir því á kunn-
áttu og getu í flokkun og vistvænni
hugsun,“ segir Helga Maureen Gylfa-
dóttir, safnvörður á Árbæjarsafni, en í
tilefni nýrrar sýningar sem ber heitið
NEYZLAN – Reykjavík á 20. öld, verður
efnt til neyslukapphlaups kl. 14 á sunnu-
daginn. Helga segir að um liðakeppni
verði að ræða en þar sækja keppendur
efni víða af safnsvæðinu og skila því og
flokka á ákveðna staðni. „Við dreifum
efninu um safnsvæðið og inn í húsin og
svo fær fólk fjölnota poka til þess að
safna efninu saman. Gefin verða stig
fyrir rétta flokkun og munu stigahæstu
liðin eiga möguleika á vinningum,“
segir Helga og bendir á að verðlaunin
muni ekki enda á ruslahaugunum. „Við
viljum ekki stuðla að enn frekari sor-
paukningu,“ segir hún í léttum dúr.
Hún segir tuttugustu öldina hafa
verið tíma mikilla breytinga. Á Íslandi
þróaðist samfélagið frá sjálfsþurftar-
búskap til tæknivædds markaðs-
búskapar á nokkrum áratugum. Með
þessu hafi neyslan aukist til muna.
„Sýningin er ætluð til að vekja fólk til
umhugsunar. Maður upplifir það bara
sjálfur í þjóðfélaginu í dag að fólk er að
vakna meira til vitundar um umhverf-
ið og verndun þess. Fæðuframleiðsla
hefur mikil áhrif á umhverfið, þessu
fylgir mengun og ýmislegt fleira. Við
sóum ofboðslega miklum mat og er
áætlað að um 1,3 milljarðar tonna af
matvælum fari til spillis árlega. Ég er
ansi hrædd um að forfeður okkar væru
gapandi ef þeir vissu þetta.“
Neyslukapphlaupið hefst kl. 14 á
morgun en einnig verður boðið upp á
fjölskylduleiðsögn um sýninguna kl.
13. Helga hvetur fólk til þess að mæta
og undirstrikar að það sé alltaf heitt á
könnunni á Árbæjarsafninu.
kristjana@frettabladid.is
Verðlaunin munu ekki
enda á ruslahaugunum
Árbæjarsafn efnir til neyslukapphlaups á sunnudaginn í tilefni sýningarinnar NEYZLAN–
Reykjavík á 20. öld. Keppendur safna ýmsum efnum sem skila þarf og fl okka.
UMHUGAÐ UM UMHVERFIÐ Helga segir að
þjóðfélagið sé smám saman að vakna meira
til vitundar um umhverfið og verndun þess.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SELUR ÓDÝRAST Thomsens Magasin stóð lengi vel við Hafnarstræti 17 og þar var þó nokkuð
vöruúrval. Myndin er tekin árið 1910 af óþekktum frönskum ferðamanni.
Það var að kvöldi laugardagsins
28. júní árið 1997 að tveir af bestu
hnefaleikaköppum sögunnar,
Mike Tyson og Evander Holyfield,
mættust í hringnum í MGM Grand
Garden Arena-höllinni í Las Vegas.
Keppt var um WBA-beltið í þunga-
vigt og átti bardaginn svo sannar-
lega eftir að verða eftirminnilegur.
Hinn 35 ára Holyfield hafði fram
að þessum bardaga þrisvar unnið
þungavigtarbeltið eftirsótta og vildi
hinn 31 árs gamli Tyson freista
þess að ná því af honum. Kapparnir
höfðu mæst í hringnum tæpum sjö
mánuðum fyrr og vann Holyfield
þá sannfærandi sigur. Bardaginn
þetta laugardagskvöld fór vel af
stað og hafði Holyfield betur í
fyrstu tveimur lotunum. Það var svo
í þriðju lotu sem allt sauð upp úr,
Tyson lét höggin dynja á Holyfield
og þegar 40 sekúndur voru eftir af
lotunni beit Tyson stykki af hægra
eyra Holyfields. Bardaganum var þó
haldið áfram um stund eða þar til
Tyson endurtók leikinn og beit nú
í vinstra eyra Holyfields. Dómarinn
endaði bardagann og dæmdi Mike
Tyson úr leik. Tyson var sektaður
um 3 milljónir Bandaríkjadala fyrir
atvikið og settur í keppnisbann.
Árið 2009 bað hann Holyfield
opinberlega afsökunar á hegðun
sinni hjá spjallþáttadrottningunni
Opruh Winfrey.
ÞETTA GERÐIST: 28. JÚNÍ 1997
Mike Tyson beit í eyra Evanders Holyfi eld