Fréttablaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 33

Fréttablaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 33
Það hefur náttúrlega ekkert gengið upp í þessum skúr hingað til en það þykir mér bara betra og mjög skemmtileg áskorun,“ segir Agnar sem í fyrstu fussaði og sveiaði þegar vinur hans, Gylfi Harðarson matreiðslu- maður, stakk upp á þeir opnuðu einstakan skyndibitastað í gömlu Nestis-sjoppunni við Miklubraut. „Við Gylfi lærðum saman til kokks og höfum grínast með að opna saman veitingastað heima á Íslandi í gegnum tíðina. Ég hvatti hann svo í rælni til að svipast um eftir húsnæði í miðbænum en eftir árangurslausa leit ók Gylfi fram hjá skúrnum góða á Miklubraut og sendi mér myndir. Mér fannst hugmyndin af og frá í fyrstu en þegar ég sá lúguna og möguleikann á heimteknum lúgumat varð ég viss um að skúr- inn væri betri staður en nokkur annar,“ segir Agnar brosmildur og fullur tilhlökkunar. Agnar hefur undanfarin sextán ár búið í Lundúnum og rekur þar Michelin-veitingastaðinn Texture við Portman Square og þrjá vínbari undir nafninu 28°50° sem bjóða upp á léttan franskan mat með góðum vínum á góðu verði. „Ég þori nú ekki að lofa Mic- helin-stjörnu á Miklubraut en við viljum gera þetta eins gott og það gerist og vöndum okkur í hvívetna. Þannig vinnum við,“ segir Agnar sem hefur metnað í fyrirrúmi. BRAGÐSTERKT AF GÖMLUM BELJUM Þeir Agnar og Gylfi hafa um- turnað skúrnum á Miklubraut, með dyggri hjálp föður Agnars, en til stendur að opna staðinn um miðjan júlí. „Við erum að opna nokkuð sem aldrei hefur sést né þekkst á Íslandi og bjóðum eingöngu upp á tvo rétti á matseðli; ostborg- ara og svínarif. Mér hefur lengi þótt vanta slíkan stað heima, þar sem boðið er upp á toppgæða skyndibita sem hægt er að elda á skammri stund. Hér á Englandi njóta slíkir staðir vinsælda því fólk kann að meta að geta fengið sér almennilega hamborgara, svínarif eða annað gómsætt án þess að það taki langan tíma að lesa matseðil eða elda matinn.“ Agnar hefur HAMINGJA Á HÓLMAVÍK Hamingjudagar standa nú yfir á Hólmavík. Íbúar leggja sitt af mörkum í hamingju, hugarró, gleði og kærleika og taka vel á móti gestum, jafnt brottfluttum sem öðrum. Fyrst voru hamingju- dagar haldnir á Hólmavík árið 2005 og hafa jafnan verið mjög vel heppnaðir. MICHELIN-MAÐUR Agnari líður vel í London og er ekki á heimleið. „Mér finnst gaman að hafa fullt í fangi og mikið fyrir stafni. Veitingabransinn er harður og dagurinn sem maður slakar á og heldur að maður sé að gera rétt veður dagurinn sem allt fer niður á við.“ MYND/ÚR EINKASAFNI MICHELIN-BITI Á MIKLUBRAUT? TILVERAN Niðurnídd lúgusjoppa við Miklubraut fær á sig stjörnuglampa í júlí þegar Michelin-matreiðslumeistarinn Agnar Sverrisson opnar þar hágæða skyndibitastað og teflir fram tveimur mjög klístruðum og djúsí réttum. framhald á síðu 6 Opið alla daga! Kíktu til okkar á Fiskislóð 29 Opið alla daga frá 08:00-19:00 Svampburstastöð, 54 m löng Snertilaus sjálfvirk bílaþvottastöð Háþrýstiþvottur Bónstöð 12 STAÐIR Aldrei löng bið! Kíktu inn á www.lodur.is og kynntu þér glænýjar staðsetningar Löðurs! Flórída Skemmtisiglingar í Karabíska hafinu Hentar öllum aldurshópum. Akstur til og frá skipi. Leiguíbúðir og raðhús. www.Floridafri.com Gunna90@hotmail.com Sími: 546-0109 GSM: 856-4800 Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.