Fréttablaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 24
28. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 24
Michael Jackson keypti búgarðinn árið
1988.Reglulega skjóta sögusagnir
upp kollinum um að Neverland
verði breytt í eins konar safn
til minningar um popp-
kónginn líkt og Graceland,
glæsihýsið sem Elvis
Presley kallaði heimili
sitt. Fjölskylda Jacksons
hefur hins vegar vísað
þessum sögum á bug.
Poppkóngurinn eignaðist þrjú börn: Michael Joseph Jackson, Jr.,
betur þekktan sem Prince Michael Jackson I, sautján ára,
Paris-Michael Katherine Jackson, sextán ára og Prince Michael
„Blanket“ Jackson II, tólf ára. Eldri börnin tvö átti Michael með
Debbie Rowe en ekki er ljóst hver móðir Blankets er.
Eftir andlát goðsins
fékk móðir hans, Kath-
erine, forræði yfir börnunum
þremur en Debbie fékk
heimsóknarrétt. Árið 2012
skiptu Katherine og T.J.
Jackson, sonur Titos Jackson,
bróður Michaels, með sér for-
ræði yfir þeim.
Prince varð fréttamaður
hjá Entertainment Tonight
árið 2013. Hann þreytti frum-
raun sína í leiklist í sjónvarps-
seríunni 90210 sama ár og
hefur lýst því yfir að hann vilji
leika meira.
Paris vill líka feta leiklistar-
brautina og leikur í Lundon‘s
Bridge and the Three Keys
sem er væntanleg á næsta
ári. Árið 2013 reyndi hún að
fremja sjálfsvíg með því að
gleypa tuttugu verkjatöflur og skera úlnlið sinn með kjötsaxi. Í kjölfarið
var hún send í meðferð í heimavistarskólanum Diamond Ranch
Academy í Utah.
Prince, Paris og Blanket, ásamt ömmu sinni, settu saman heimild-
armyndina Remembering Michael árið 2013 sem var hægt að horfa
á á netinu gegn tíu dollara gjaldi.
Ég man að
ég fraus um stund
og trúði ekki
mínum eigin
eyrum og síðan
helltist yfir mig
eins konar tóm
sem er erfitt að
lýsa.
Erla Gunnarsdóttir
aðdáandi
POPP-
KÓNGURINN
LIFIR
Fimm ár eru síðan poppkóngurinn Michael Jackson lést fyrir aldur fram. Þegar hann dó var hann á barmi gjaldþrots en
síðan hann féll frá hefur hann þénað tæplega áttatíu milljarða króna– meira en nokkur núlifandi listamaður
á svo skömmum tíma. Þó kóngurinn sé allur þá blómstrar vörumerkið Michael Jackson.
„Ég gleymi aldrei stað og stund þegar ég frétti af andláti
poppkóngsins en það var í tíufréttum Sjónvarpsins og
Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir kom því að í lok fréttatímans
að fregnir hermdu að Michael Jackson hefði látist á heim-
ili sínu,“ segir fjölmiðlafræðingurinn Erla Gunnarsdóttir,
einn gallharðasti aðdáandi Michaels Jackson.
„Ég man að ég fraus og trúði ekki mínum eigin eyrum
og síðan helltist yfir mig eins konar tóm sem er erfitt að
lýsa. Síðan kom sorgin í öllu sínu veldi og ég fór til baka
til æskuára í huganum en ég var ekki nema níu ára
þegar hann varð að átrúnaðargoði mínu fyrir lífstíð.“
Erla náði þó að gera gott úr hlutunum, þó draumar henn-
ar um að hitta poppgoðið hefðu orðið að engu á augabragði,
og hyllti kónginn eins og henni einni er lagið.
„Það var ekkert annað að gera en að hóa æskuvinkon-
unum heim í erfidrykkju. Þar var kóngsins minnst með
dansi og söng á pallinum fram á nótt og að sjálfsögðu voru tekin fram
nokkur gömul plaköt til að skreyta veggi og borð með,“ segir Erla með bros
á vör. Hún keypti sér miða á tónleika Jacksons í London sem voru hluti af
tónleikaferðalaginu This Is It sem átti að hefjast 13. júlí árið 2009.
„Ég á tónleikamiðann enn og held mikið upp á hann og mér fróðari menn
segja að hann geti orðið verðmætur þegar fram líða stundir.
Hóaði vinkonum saman
í erfi drykkju
MIÐINN SEM
ALDREI VAR
NOTAÐUR
Erla með
tónleikamiðann.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
„Ég var að dansa á Borginni 1980 þegar Don’t Stop
’Till You Get Enough kom allt í einu ofan úr loftinu.
Í miðju pönki og nýbylgju var það eins og tónlist
frá öðrum hnetti en ég heillaðist strax. Þetta var
svo allt annað grúv,“ segir rithöfundurinn Hall-
grímur Helgason sem heldur mikið upp á poppgoð-
ið. Hann var svo heppinn að sjá Jackson á tónleik-
um í Madison Square Garden í New York.
„Það var Bad-túrinn og ég var eini hvíti maður-
inn í salnum, fyrir utan hann sjálfan, en hann var
farinn að fölna vel þá. Síðan hvarf hann lengra og
lengra inn í sérviskuþokuna og var orðinn síð-
asta sort undir lokin en bjargaði sér með því að
deyja. Þá tók almenningur við sér og hann varð
loks viðurkenndur alla leið, líka af popp-fræðing-
unum,“ segir Hallgrímur. Hann var í Hrísey þegar
hann fékk fregnir af andláti stjörnunnar en dóttir hans var með á hreinu af
hverju hann lést.
„Daginn eftir vaknaði dóttir mín, þá 4 ára, með útskýringu á dauða hans
sem hún endurtók allt sumarið: „Hann dó af því hann dansaði svo mikið!“
Fyrir mér var hann mikill gleðigjafi og dæmi um snilld í sínum geira,“ en
uppáhaldslag rithöfundarins er Workin’ Day and Night.
„Hann dó af því hann
dansaði svo mikið!“
HEILLAÐIST
STRAX
Hallgrímur
heldur mikið
upp á Jackson.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Vörumerkið Michael Jackson
hefur blómstrað frá því hann
lést eins og kemur fram í nýrri
bók, Michael Jackson Inc., eftir
Zack Greenburg. Þar kemur fram
að vörumerkið hefur halað inn
um sjö hundruð milljónir dollara
síðan hann lést, tæplega áttaíu
milljarða króna. Þó að Jackson
hafi þénað á tá og fingri var
dánarbú hans í skuld þegar
hann lést. Þá tóku skiptaráð-
endur dánarbúsins málin í sínar
hendur. Samningur var gerður
um útgáfu myndarinnar This Is
It. Nokkrum mánuðum eftir and-
lát hans var einnig skrifað undir
plötusamning við Sony upp á sjö
plötur á tíu árum. Þá voru gerðir
samningar við Cirque du Soleil
um sýninguna Michael Jackson:
The Immortal World Tour.
79,5
MILLJARÐAR
Á FIMM ÁRUM
➜ Michael (2010)
Átta af tíu lögum á plötunni voru samin
af Michael sjálfum. Flest laganna voru
tekin upp á árunum 2007 til 2009.
Aðdáendur og fjölskylda Jacksons hafa
hins vegar efast um að þrjú lög á
plötunni sem tekin voru upp í
kjallara Eddie Cascio, Breaking
News, Keep Your Head Up og
Monster, séu í raun sungin
af Michael. Sony hefur vísað
þessum ásökunum á bug. Þá
voru margir sem gagnrýndu útgáfu
plötunnar og héldu því fram að Jack-
son hefði verið fullkomnunarsinni
og hefði ekki viljað gefa út efni sem
væri óklárað.
➜ Xscape (2014)
Á plötunni eru áður óútgefin lög
eftir poppkónginn en hún hefur að
geyma átta lög, þar á meðal Love
Never Felt So Good, dúett með
Justin Timberlake. Lagið var upp-
runalega tekið upp af Michael árið
1983. Platan fór á topp vinsældalista
í Bretlandi, Belgíu, Danmörku, Frakk-
landi og á Spáni. Í Bandaríkjunum
fór platan beint í annað sæti.
BÖRNIN
Reyndi sjálfsvíg
fi mmtán ára
NEVERLAND