Fréttablaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 42
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 20142
Á meðal stjarna
Draumaferðir Þegar veðrið er eins og það hefur verið undanfarið, að minnsta
kosti á höfuðborgarsvæðinu, leitar hugurinn til fjarlægra landa, hvítra stranda
og fallegra staða sem lausir eru við rigningu og hafa meðalhitastig hærra en tíu
gráður. Þetta eru staðir sem eru svo dásamlegir að stórstjörnur eru þar
fastagestir. Í það minnsta er í lagi að láta sig dreyma um þá.
BONDI-STRÖND Bondi-ströndin hefur lengi dregið að sér
stjörnur eins og flugur að ljósi. Staðurinn er þekktur fyrir brim-
reiðar og siglingar og þangað halda stjörnur eins og Leonardo
DiCaprio, Hugh Jackman, Paris Hilton og Nicole Richie þegar
þau langar að lenda í ævintýrum.
AMALFI-STRÖND Gagnkvæm hrifning Brads Pitts og Angelinu
Jolie er sögð hafa hafist á hótelinu Santa Caterina sem stendur á
hinum hrífandi klettum Amalfi-strandar á Ítalíu. Og með útsýni
eins og þar gefur að líta ætti engan að undra.
ANGUILLA Það er nóg að líta himinbláan sjóinn undan
ströndum Anguilla augum til að skilja af hverju staðurinn laðar
að sér stjörnur eins og Umu Thurman, Michael Jordan og Liam
Neeson til að slaka á í hinu sólríka Karíbahafi.
ST. BARTS Þessi töfrandi eyja í Karíbahafi státar af skrautlegu
skemmtanalífi og sællegum sólarströndum, svo sem St. Jean-
strönd þar sem töluverðar líkur eru á að hitta hjónakornin Jay-Z og
Beyoncé eða Jessicu Alba en þau geyma snekkjurnar sínar í höfn-
inni þar. MYNDIR/GETTY
OKKAR ÓDÝRASTA
ALLT INNIFALIÐ
Gildir eingöngu nýjar bókanir,
með minnst tvo saman í herbergi.
ÍSLENSKIR
BARNAKLÚBBAR!
Gildir eingöngu nýjar bókanir,
með minnst tvo saman í herbergi.
1 vika 2 vikur
16/7 159.599 229.599
23/7 119.599 199.599
30/7 129.999 Örfá sæti laus
20/8 119.599 159.599
1 vika 2 vikur
02/7 59.599 79.599
09/7 67.599 85.599
23/7 99.599 149.599
30/7 95.999 Örfá sæti laus
nazar.is · 519 2777