Fréttablaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 49
| ATVINNA |
Upplýsingar veitir:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 7. júlí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsókn fylgi ítarleg starfsferilskrá
og kynningarbréf þar sem gerð
er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Sérfræðingur
LÍFSVERK lífeyrissjóður er 14. stærsti lífeyrissjóður landsins með 51,3 milljarða í hreina eign í árslok 2013.
Sjóðurinn var stofnaður árið 1954 og rekur samtryggingar- og séreignardeild. LÍFSVERK var fyrsti
lífeyrissjóðurinn sem tók upp beint sjóðfélagalýðræði, sá fyrsti til að aldurstengja réttindaávinning og
sá fyrsti sem stóð að rafrænu stjórnarkjöri. Sjá nánar á www.lifsverk.is.
Starfs- og ábyrgðarsvið
• Greining og mat fjárfestingakosta
• Kaup og sala verðbréfa
• Samskipti við markaðsaðila
• Skýrslugjöf og eftirfylgni fjárfestinga
• Þátttaka í mótun fjárfestingarstefnu
Menntunar- og hæfniskröfur
• B.Sc próf í viðskipta-, hag- eða
verkfræði eða öðrum raungreinum
• Framhaldsmenntun og/eða próf í
verðbréfaviðskiptum æskileg
• Góð reynsla af fjármálamarkaði
• Góð greiningarhæfni
Eiginleikar
• Traust og öguð vinnubrögð
• Frumkvæði og metnaður í starfi
• Samstarfsvilji og starfsgleði
• Sveigjanleiki
Upplýsingar veita:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Sigurjón Þórðarson
sigurjon@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 13. júlí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsókn um starfið þarf að
fylgja ítarleg starfsferilskrá og
kynningarbréf þar sem gerð er
grein fyrir ástæðu umsóknar.
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Bæjarstjóri
Hafnarfjörður er þriðji stærsti bær landsins með um 27.600 íbúa. Hafnarfjörður er framsækið
sveitarfélag sem byggir á fjölskylduvænu umhverfi, fyrirmyndarþjónustu og öflugu atvinnulífi.
Starfssvið
• Starfar samkvæmt samþykktum Hafnarfjarðarbæjar, sem birtar eru á
vef bæjarfélagsins, www.hafnarfjordur.is
• Hefur yfirumsjón með starfsemi bæjarfélagsins og annast framkvæmd
þeirra ákvarðana sem bæjarstjórn og bæjarráð taka
• Skipuleggur og undirbýr dagskrár funda, situr fundi bæjarstjórnar,
bæjarráðs og annarra ráða og nefnda eftir atvikum
• Er framkvæmdastjóri og æðsti yfirmaður starfsfólks sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Þekking og farsæl reynsla af stjórnun, stefnumótun
og rekstri
• Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu æskileg
• Leiðtogahæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
Upplýsingar veita:
Katrín S. Óladóttir
katrin@hagvangur.is
Sigurjón Þórðarson
sigurjon@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og
með 7. júlí nk.
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
www.hagvangur.is
Skólastjóri
Í sveitarfélaginu Garði búa rúmlega 1.400 íbúar. Sveitarfélagið er á nyrsta odda Reykjaness. Í Garði er blómlegt
tómstunda-, íþrótta- og menningarlíf. Lögð er áhersla á að allir aldurshópar íbúanna fái notið sín í fjölbreyttu
félagslífi. Góð aðstaða er til íþróttaiðkunar í vel búinni íþróttamiðstöð. Nánari upplýsingar um Garð er að finna á
vefsíðunni www.svgardur.is
Um 200 nemendur stunda nám við Gerðaskóla og býr skólinn við mjög góðan aðbúnað og aðstöðu.
Einkunnarorð skólasamfélagsins í Garði eru: Árangur, virðing, gleði, leikur, sköpun og ábyrgð.
Staða skólastjóra við Grunnskólann í Garði er laus til umsóknar. Ráðið er í stöðuna
til eins árs frá og með 1. ágúst 2014.
Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn til að viðhalda og byggja upp öflugt
skólasamfélag af metnaði og dugnaði með virðingu og ánægju að leiðarljósi.
Markmið og verkefni
• Stjórnun og ábyrgð á daglegri starfsemi, fjárhagsáætlunum
og rekstri skólans
• Fagleg forysta
• Stuðla að framþróun skólastarfsins
• Ráðningar og mannauðsstjórnun
• Þekking og góður vilji til að leiða samstarf skólasamfélagsins
út frá skólastefnu sveitarfélagsins og gagnvart samstarfs-
verkefnum/samningum sem skólinn á við aðrar stofnanir
Menntun, færni og eiginleikar
• Grunnskólakennaramenntun og önnur
reynsla skv. lögum nr. 87/2008, 12. gr.
• Menntun í stjórnun menntastofnana æskileg
• Reynsla af skipulagi og stjórnun kostur
• Mjög góð færni í samskiptum og góð meðmæli þar um
• Geta til að tjá sig í ræðu og riti
• Frumkvæði og styrkur í ákvarðanatöku
• Hvetjandi og góð fyrirmynd
LAUGARDAGUR 28. júní 2014 7