Fréttablaðið - 28.06.2014, Síða 78
28. júní 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 30
TEIKNAR ÞÚ
FLOTTAR
MYNDIR?
Sendu okkur myndina þína í pósti til
Fréttablaðsins, Skaft ahlíð 24, 105 Reykjavík
eða með tölvupósti á krakkar@frettabladid.is
Heilabrot
Ásgeir BjarniLestrarhestur vikunnar
eru pör nema einn. Finndu þann sem er ekki eins og neinn annar.“ „Við reynum
samt,“ sagði Lísaloppa. „Auðvitað,“ sagði Kata. „Alltaf að reyna.“
neinn annar?
A
E
H
K
N
B
F
I
L
O
D
G
J
M
P
SVAR: O
Bragi Halldórsson
102
Húlladúlla og
harðsvíraður
bófi
Sirkus Íslands sýnir sýninguna S.I.R.K.U.S. um
allt land í sumar en sýningin er hugsuð fyrir börn
á leikskólaaldri. Sýningin er um klukkutími að
lengd og kennir þar ýmissa grasa– allt frá ósvífn-
um bófa til loft fi mleikaprinsessunnar Dimma-
limm. Á sýningunni verður hið ómögulega allt í
einu mögulegt og er hún samansafn af sirkus-
atriðum víðs vegar að.
ÞRJÁTÍU HRINGIR Unnur María Bergsveinsdóttir, betur
þekkt sem Húlladúllan í sýningunni, sýnir, eins og nafnið
gefur til kynna, list með húllahringjum. Hún lætur þrjá
hringi duga að mestu en í lok atriðisins húllar hún
þrjátíu hringjum í stutta stund.
LÍMIÐ Í SÝNINGUNNI Þeir félagar Bjarni og Jóakim
eru límið í sýningunni og binda hana saman með gríni.
Þeir kynna hin atriðin til sögunnar og þurfa einnig að
kljást við ósvífinn bófa sem hótar að stela sýningunni.
Þeir þurfa þó ekki á örvænta því þeir fá góða hjálp frá
Spiderman.
Sirkusinn skemmtir á eftirfarandi stöðum í sumar:
● Reykjavík: 25. júní–13. júlí á Klambratúni
● Ísafjörður: 14.–20. júlí á Eyrinni við Ægisgötu
● Akureyri: 21. júlí–3. ágúst við Drottningarbraut
● Selfoss: 4.–10. ágúst í Sigtúnsgarði
● Keflavík: 11.–17. ágúst á Ægisgötu
● Reykjavík: 18.–24. ágúst á Klambratúni
Á heimasíðu sirkussins, sirkus.is, er hægt að nálgast dagatal
með öllum sýningartímum. Börn undir 2 ára aldri fá ókeypis
inn á S.I.R.K.U.S. ef þau sitja í fangi foreldra eða forráða-
manna.
Hvar get ég séð S.I.R.K.U.S.?
Hvað er skemmtilegast við
bækur? Skemmtilegast við
bækur er að fræðast, vita
meira og skemmta sér.
Hvaða bók lastu síðast og um
hvað var hún? Það var Harry
Potter og viskusteinninn.
Hún er mjög skemmtileg og
gaman þegar Harry lendir
í ævintýrum. Bókin er um
strákinn Harry sem á heima
hjá fjölskyldu sem er ekki
góð við hann og svo kemur
maður sem sækir hann og
fer með hann í galdraheim,
þar sem allir nota galdra og
eru galdramenn. Manstu
eftir fyrstu bókinni sem var
í uppá haldi hjá þér? Það var
Kári litli og klósettskrímslið
(Þórgunnur Oddsdóttir) sem
ég elskaði. Hvers lags bækur
þykja þér skemmtilegastar?
Mér finnst fræðibækur
skemmtilegastar því ef ég
veit eitthvað sérstakt þá er
gaman að vita meira um hlut-
ina. Svo finnst mér teikni-
myndasögur skemmtilegar
líka. Í hvaða skóla gengur þú?
Laugarnesskóla. Ferðu oft á
bókasafnið? Já, það geri ég.
Mér finnst gaman að lesa og
les mjög mikið og á bóka-
safninu finn ég það sem ég
leita að. Hver eru þín helstu
áhugamál? Fótbolti er helsta
áhugamál mitt og nú fylg-
ist ég með HM og held með
Þýskalandi!!!
Að venju efna Borgarbókasafn og Reykjavík Bókmenntaborg til sumarlesturs á meðal barna. Fyrir hverja lesna bók skrá les-
endur nafn sitt og titil bókarinnar á þar til gerða miða og skila í kassa sem eru í öllum söfnum Borgarbókasafns. Vikulega
er dregið eitt nafn úr kassanum og Lestrarhestur vikunnar útnefndur, sem hlýtur að launum bók frá Forlaginu.
HUGUÐ PRINSESSA
Loftfimleikaprinsessan
Dimmalimm, sem er
listamannsnafn Þór-
dísar Schram, er aldeilis
huguð og sýnir loftfim-
leika í silki í þriggja til
fimm metra hæð.
MYND/DANÍEL
Leikur fyrir krakka frá fimm ára aldri
Gettu hver ég er!
Þátttakendur sitja í hring og tónlist er
leikin. Fyrirfram valinn hlutur (t.d. bolti
eða kubbur) er látinn ganga á milli
barnanna þar til tónlistin er stöðvuð.
Þá á sá sem heldur á hlutnum að
fara inn í hringinn og leika eitthvert
hlutverk, til dæmis dýr eða persónu.
Hinir reyna að giska á hvað verið
er að leika. Þegar þátttakendur hafa
fundið út hvað er verið að leika byrjar
leikurinn upp á nýtt.