Fréttablaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 6
12. júlí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
STJÓRNMÁL „Við stefnum nú að því
að fyrir árið 2020 verði skuldastaða
Íslands orðin ein sú besta í Evr-
ópu og það er raunhæft markmið,“
sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra á miðstjórnar-
fundi Framsóknarflokksins á Hótel
Sögu í gær.
Forsætisráðherra sagði þar enga
aðra ríkisstjórn hafa náð viðlíka
viðsnúningi, á jafn stuttum tíma,
og ríkisstjórn hans. Nefndi hann
meðal annars að nýjum störfum
hefði fjölgað um fjögur þúsund og
kaupmáttur yxi hraðar hér á landi
en í nokkru öðru landi Evrópu.
Fyrir heit um aðgerðir í skuldamál-
um heimilanna hefðu gengið eftir
og veiðigjöldum verið breytt til að
hlífa minni og meðalstórum fyrir-
tækjum.
„Við sjáum hvaða afleiðingar
áframhaldandi gjaldtaka, með
þeirri leið sem var notuð á síðasta
kjörtímabili, hefði haft í för með sér
í því sem gerðist nýlega á Húsavík,
Djúpavogi og Þingeyri,“ sagði for-
sætisráðherra.
Hormónasprautað sterakjöt
Sigmundur sagði ríkisstjórnina
undir búa mikla sókn í lýðheilsumál-
um og tengdi þau áform við umræðu
um hugsanlega komu bandarísku
verslanakeðjunnar Costco hingað
til lands.
„Þarna kom upp umræða um
hvort bandarískt stórfyrirtæki ætti
að fá að gera kröfu um að hinum og
þessum lögum yrði breytt. Því var
haldið fram að þeir sem hefðu efa-
semdir um þetta væru afturhalds-
sinnar eða einangrunarsinnar,“
sagði Sigmundur. Hann sagði reglur
EES-samningsins ekki heimila inn-
flutning á bandarísku kjöti.
„Um 99 prósent af því kjöti sem er
framleitt í þessum verksmiðju búum
í Bandaríkjunum eru sterakjöt,
sprautað með ýmiss konar hormón-
um til að láta skepnurnar vaxa hrað-
ar í þessum girðingum sem þær eru
geymdar í,“ sagði Sigmundur.
Hann sagði dýrin fóðruð með
korni en ekki grasi. Það leiddi til
þess að bakteríumyndun í þeim
væri langt umfram það sem eðli-
legt er. Við því væri brugðist með
því að þvo kjötið upp úr ammoníaki
og dæla sýklalyfjum í dýrin til að
koma í veg fyrir að smitsjúkdómar
bærust á milli þeirra.
„Hverjir eru gamaldags og aftur-
haldssamir? Þeir sem vilja fylgja
þróun í því að búa til og verja heil-
næma, góða matvöru og byggja upp
matvælaiðnaðinn fyrir þjóðina og
líka til útflutnings? Eða þeir sem
vilja láta allt slíkt fara lönd og leið
og telja það einangrunarhyggju að
leyfa sér að halda því fram að það
eigi ekki að flytja inn eins mikið
sterakjöt og menn vilja? Við sjáum
til með þessa ágætu verslun, hvort
hún kemur. Vonandi gerir hún það
og fylgir þá lögum hér og eykur á
samkeppnina.“
Nýr lágpunktur
Forsætisráðherra sagði einnig
stjórnmálaumræðuna hér á landi
þurfa að breytast. Þróun hennar að
undanförnu væri verulegt áhyggju-
efni. Hún væri of persónuleg,
byggði á níði og snérist um annað
en efnisatriðin.
„Ég hefði ekki trúað því að menn
myndu leggjast jafn lágt og þeir
gerðu í kringum sveitarstjórnar-
kosningarnar,“ sagði Sigmundur
og bætti við að reynt hefði verið að
saka Framsóknarflokkinn um kyn-
þáttahyggju. „Flokk sem í næstum
því heila öld hefur verið í farar-
broddi mannréttindabaráttu á
Íslandi og innleitt margar af mestu
framförum sem hafa orðið á þeim
sviðum. Að menn skuli nýta slík mál
til að koma höggi á andstæðinga er
nýr lágpunktur í stjórnmálaum-
ræðu seinni tíma,“ sagði Sigmundur.
Opinberum störfum fjölgað
„Við munum áfram reyna að fjölga
opinberum störfum á landsbyggð-
inni og gera það á þann hátt að við
flytjum einhver störf, einhver ný
störf verði til á landsbyggðinni, en
allt að sjálfsögðu unnið í samráði
við þá sem í hlut eiga,“ sagði Sig-
mundur.
Hann sagðist fagna því ef jafn-
mikil umræða yrði um þau störf
sem voru flutt af landsbyggðinni
eða lögð niður á undanförnum árum
og þau störf sem nú væri verið að
flytja út á land með flutningi Fiski-
stofu. haraldur@frettabladid.is
Skuldastaðan verði
ein sú besta í Evrópu
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir ríkisstjórnina hafa náð
meiri viðsnúningi á einu ári en nokkra aðra í sögu landsins. Hann vill ekki flytja
inn bandarískt „sterakjöt“. Umræðan um Framsóknarflokkinn sé nýr lágpunktur.
FORSÆTISRÁÐHERRA
Sigmundur sagði Costco
hafa verið í miklu uppá-
haldi á hans yngri árum.
Það hefði verið mikil upp-
lifun að heimsækja versl-
anir keðjunnar þar sem
kartöfluflögupokar voru „á
stærð við sængurver“ og
oststykkin í minningunni
„á við rúllubagga“.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VIÐSKIPTI Fyrirtækið Íslenskt
eldsneyti hefur sótt um lóð undir
nýja lífeldsneytisstöð á Selfossi.
Nú þegar hefur það reist eina
slíka á Sauðárkróki og nú er
beðið eftir starfsleyfi fyrir hana
en heilbrigðisráðuneytið er með
málið til afgreiðslu.
„Það er tíðinda að vænta þaðan
á mánudag en þegar leyfið er í
höfn er allt til reiðu og við von-
umst til að getað byrjað þarna
fyrir norðan í næsta mánuði,“
segir Hörður Þór Torfason,
framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins. Hann segir stefnt að því að
hægt verði að selja lítrann á 199
krónur.
Hvað varðar hugsanlega stöð
á Selfossi segir hann málið
komið fyrir skipulags- og bygg-
ingarnefnd. Þetta er liður í mun
stærri áætlun fyrirtækisins sem
áformar tíu stöðvar hringinn í
kringum landið á næstu árum.
Eins eru frekari áform varðandi
vinnslu á eldsneytinu. Fyrir-
tækið á í samvinnu við sænska
efnavinnslufyrir tækið Perstorp
sem er leiðandi fyrirtæki á Norð-
urlöndunum í framleiðslu lífelds-
neytis. Sett hefur verið upp verk-
smiðja á Reykjanesi sem getur
unnið allt að tvær milljónir lítra
af vistvænu eldsneyti á ári. - jse
Stefnt er að því að vistvænt eldsneyti verði í boði allan hringveginn:
Vilja reisa dísilstöð á Selfossi
VISTVÆN ELDSNEYTISSTÖÐ Á SAUÐÁRKRÓKI Hér lætur Gunnar Bragi Sveins-
son ráðherra dæluna ganga. Við hlið hans eru Johann Mattsson, Sigurður Eiríksson,
Agnese Rizika, Susanne Eckersten og Hörður Þ. Tómasson.
ÚKRAÍNA, AP Uppreisnarmenn í
Úkraínu skutu í gær flugskeytum
á úkraínska hermenn í Austur-
Úkraínu þar sem nítján féllu.
Þar að auki féllu fjórir hermenn í
öðrum árásum.
Petró Pórósjenkó, forseti
Úkraínu, hefur heitið hefndum
fyrir aðgerðirnar. „Fyrir líf hvers
hermanns munu uppreisnarmenn-
irnir gjalda með tugum eða hundr-
uðum lífa,“ sagði Pórósjenkó.
Hermennirnir sem féllu voru að
reyna að ná eftirlitsstöðvum við
landamærin við Rússland á sitt
vald. Uppreisnarmenn stýra flutn-
ingum yfir hluta landamæranna
við Rússland. Frá Rússlandi hafa
uppreisnarmennirnir fengið vopn
og vistir og því hefur herinn reynt
að ná aftur stjórn á landamær-
unum.
Úkraínski herinn hefur verið
í mikilli sókn undanfarið. Upp-
reisnarmenn hafa tapað um helm-
ingi þess landsvæðis sem þeir
höfðu undir sinni stjórn fyrir
tveimur vikum. Um helgina náði
úkraínski herinn borginni Slo-
vyansk, einu af helstu vígjum
uppreisnarmanna.
Uppreisnarmenn hafa nú hörfað
til iðnaðarborgarinnar Donetsk,
tæplega hundrað kílómetra suður
af Slovyansk. Úkraínski herinn
hefur gefið út að öllum samgöngu-
leiðum til og frá borginni verði
lokað. Milli þrjátíu og sjötíu þús-
und manns hafa þegar yfirgefið
borgina. - ih
Nítján úkraínskir hermenn féllu í árás uppreisnarmanna:
Barist um rússnesku landamærin
HART BARIST Úkraínski herinn hefur verið í mikilli sókn undanfarið. NORDICPHOTS/AFP
Það er tíðinda að
vænta þaðan á mánudag.
Hörður Þ. Torfason,
framkvæmdastjóri
Við munum áfram reyna að fjölga opinberum störfum á
landsbyggðinni og gera það á þann hátt að við flytjum einhver
störf, einhver ný störf verði til á landsbyggðinni, en allt að
sjálfsögðu unnið í samráði við þá sem í hlut eiga.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra