Fréttablaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 37
| ATVINNA |
DRAFNARHÚS LEITAR EFTIR
ÞROSKAÞJÁLFA Í 70 – 80 % STÖÐU.
Drafnarhús er sérhæfð dagþjálfun fyrir 20 einstaklinga
með heilabilun. Umönnun og þjálfun skjólstæðinga
Drafnarhúss er byggð á hugmyndafræði Tom Kitwoods þar
sem einstaklingurinn er ávallt í öndvegi. Með þverfaglegri
samvinnu leggjum við áherslu á vellíðan og gleði í öllum
okkar störfum.
Við í Drafnarhúsi höfum mikinn áhuga á að fá þroskaþjálfa
til liðs við okkur, við teljum þroskaþjálfa geta komið með
nýjar og góðar hugmyndir inn í starfið og þar með stuðlað
að enn betri þjálfun og umönnun.
Reynsla af starfi með einstaklinga með heilabilun er mikill
kostur en ekki skylda. Starfið er fjölbreytt og krefjandi
þannig að aðalatriðið er að vera opinn, áhugasamur og
hugmyndaríkur. Vera tilbúinn að læra eitthvað nýtt og miðla
þekkingu sinni inn í samstarfshópinn.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
1. september 2014.
Nánari upplýsingar veitir Erla Einarsdóttir, forstöðumaður í
síma 695 3464 og á netfanginu erla@alzheimer.is
Umsóknir sendist fyrir 28.júlí 2014 til forstöðumanns
Drafnarhúss, Strandgötu 75, 220 Hafnarfirði eða
á netfangið erla@alzheimer.is
Húsvörður óskast til starfa strax
Starfið felst í umsjón og viðhaldi á eignum Leiguherbergja
ehf, sem leigir út herbergi á fjórum stöðum á höfuðborgar-
svæðinu.
Einnig sér húsvörður um öryggisgæslu og samskipti við
leigutaka. Viðkomandi þarf að vera laginn, útsjónarsamur,
skipulagður, heiðarlegur og reglusamur. Viðkomandi þarf
einnig að hafa bílpróf, bíl til umráða og hreint sakavottorð.
Kostur er ef viðkomandi hefur reynslu í viðhaldi fasteigna
eða á sviði öryggisgæslu.
Umsóknir á að fylla út á heimasíðu okkar
www.leiguherbergi.is
AJ-vörulistinn auglýsir efir sölu- og vefumsjónarmanni í
fullt starf. Hæfniskröfur eru starfsgleði, samskiptahæfni,
frumkvæði, sjálfstæði og góð tölvu- og tungumálakunnátta
(íslenska og enska eru æskileg, norðurlandamál er kostur).
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi um hvernig hæfni
þín nýtist AJ-vörulistanum sendist fyrir 20. júlí nk.
á bender@simnet.is. Allar frekari upplýsingar um
fyrirtækið er að finna á www.ajvorulistinn.is.
Þjónustustjóri/útgerð
Útgerðaryrirtæki óskar eftir að ráða þjónustustjóra.
Starfið felst í þjónustu við frystiskip félagsins
og birgja ásamt tilfallandi störfum.
Æskilegt að umsækjandi hafi þekkingu á sjávarútvegi.
Umsóknir sendist á box@frett.is merkt Útgerð-1207
MÓTTÖKURITARI
HJARTAMIÐSTÖÐIN ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA
MÓTTÖKURITARA Í 50% HLUTASTARF.
Starfið felst m.a. í símsvörun, móttöku, bókunum
sjúklinga og ýmsum tilfallandi verkefnum.
Í umsókn komi fram upplýsingar um menntun, aldur
og fyrri störf.
Hæfniskröfur:
• Góðir samskiptahæfileikar og jákvætt viðmót
• Góð almenn tölvukunnátta
• Nákvæm vinnubrögð
• Sveigjanleiki og stundvísi
• Góð tök á íslensku og ensku
Umsóknir berist til ella@hjartamidstodin.is aeð
Elínborg Sigurðardóttir rekstrarstjóri, Hjartamiðstöðin,
Holtasmára 1, 201 Kópavogur
Umsóknarfrestur er til 1.ágúst 2014
Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál
og þeim öllum svarað
Hagkaup óskar eftir að ráða í starf umsjónamanns
upplýsingakerfa fyrirtækisins.
UMSJÓNAMAÐUR
UPPLÝSINGAKERFA
Starfssvið:
Framfylgja upplýsinga- og öryggisstefnu Haga
Rekstrarumsjón upplýsingakerfa í samstarfi við Haga
Verkefnastjórnun minni verkefna og þjónustuviðvika
Forgreining minni verkefna og þjónustuviðvika
Úrlausn verkefna og þjónustuviðvika, eftir því sem við á
Kostnaðareftirlit
Skjölun viðskiptaferla
Ráðgjöf til stjórnenda
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun æskileg
Að lágmarki þriggja ára starfsreynsla við rekstur upplýsingakerfa
Skipulögð, nákvæm og öguð vinnubrögð
Þekking á greiningavinnu í upplýsingatækni
Þekking á viðskiptaferlum ásamt skilningi á rekstrarumhverfi
Mjög góð innsýn í upplýsingatækni og kerfisstjórnun
Mjög góð þekking á Dynamics Nav eða öðrum ERP kerfum
Þekking á rekstri upplýsingakerfa verslanafyrirtækja er æskileg
Góð enskukunnátta
Þjónustulipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknum skal skilað inn á skrifstofu Hagkaups í Holtagörðum eða í tölvupósti
á starfsmannahald@hagkaup.is fyrir 31. júlí
Allar nánari upplýsingar veitir Arndís Arnarsdóttir starfsmannastjóri í síma 563 5000
Hagkaup er smásölufyrirtæki, sem býður
íslenskum heimilum breitt úrval af vörum til
daglegra þarfa, jafnt í matvöru, sem fatnaði,
húsbúnaði og vörum til tómstundaiðkunar.
Hjá Hagkaup starfar samhentur hópur fólks, um
850 manns í 500 stöðugildum.
MÚRBÚÐIN LEITAR
STARFSMANNA
Múrbúðin óskar að ráða í eftirtalin störf:
Sölumaður í verslun.
Leitað er að einstaklingi 25 ára eða eldri.
Samviskusemi, þjónustulund og metnaður.
Reynsla af sölustörfum æskileg.
Starfsfólk á kassa í fullt starf
og 60% starfshlutfall.
Reynsla, metnaður, samsviskusemi og
þjónustulund.
Umsóknir ásamt ferilsskrá óskast sendar
á netfangið: ragnar@murbudin.is
Öllum umsóknum svarað.
TANNLÆKNASTOFA
Aðstoðarmann vantar á Tannlæknastofunni
Vegmúla 2 í Reykjavík.Um er að ræða fullt starf.
Vinnutíminn er til 17 virka daga.
Vinsamlegast sendið umsóknir á
box@frett.is merktar „Tannlæknastofa“
Um ós knafrestur e r til 31. júlí.
LAUGARDAGUR 12. júlí 2014 9