Fréttablaðið - 12.07.2014, Blaðsíða 36
| ATVINNA |
Heilsugæslulæknar við
Heilsugæsluna Grafarvogi
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta - Framþróun
Heilsugæslulæknar
Laus eru til umsóknar tvö störf heilsugæslulækna við
Heilsugæsluna Grafarvogi.
Annars vegar er um ótímabundið starf að ræða og hins-
vegar tímabundið í eitt ár. Ráðið verður í störfin sem fyrst
eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100%.
Á heilsugæslustöðinni eru starfandi sérfræðingar í
heimilislækningum ásamt barnalækni, hjúkrunarfræðing-
um, ljósmæðrum, sálfræðingi, félagsráðgjafa og riturum.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna
á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heilsugæslulækna er víðtækt og felst m.a.
í almennum lækningum, heilsuvernd, vaktþjónustu
og kennslu nema. Þeir veita fræðslu og upplýsingar,
leiðbeina skjólstæðingum og aðstandendum og eru virkir
þátttakendur í teymisvinnu innan stöðva.
Hæfnikröfur:
Þess er krafist að umsækjendur hafi sérfræðimenntun
í heimilislækningum, búi yfir mikilli skipulagshæfni, séu
sjálfstæðir í starfi og viðhafi öguð vinnubrögð.
Mikil hæfni í mannlegum samskiptum er skilyrði og
reynsla af teymisvinnu er æskileg.
Til greina kemur að ráða lækni án sérfæðileyfis í
tímabundið starf, fáist ekki sérfræðingur til starfa.
Frekari upplýsingar um starfið:
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra
og viðkomandi stéttarfélags.
Stéttarfélag er Læknafélag Íslands.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar
sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningar-
bréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni
viðkomandi í starfið. Jafnframt skal leggja fram staðfestar
upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og
rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda
rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, mannauðs-
stjóra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16,
109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum
og viðtölum við umsækjendur. Öllum umsóknum verður
svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6
mánuði.
Sækja skal um starfið á vef Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins (www.heilsugaeslan.is) undir laus störf eða á
Starfatorgi (www.starfatorg.is)
Umsóknarfrestur er til og með 28.júlí 2014.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbrandur E Þorkelsson, yfirlæknir Heilsugæslunni
Grafarvogi í síma: 585-7600 eða í gegnum tölvupóst:
gudbrandur.e.thorkelsson@heilsugaeslan.is
Skipstjóri, vélstjóri, vinnslustjóri
Vinnsluskipið Ísbjörn sem er við Grænland óskar eftir
skipstjóra ( A.6 2. stig ), afleysingayfirvélstjóra ( VS-1)
Æskilegt er að viðkomandi hafa a.m.k. lágmarks tungu-
málaþekkingu í dönsku. Vantar einnig vinnslustjóra fyrir
grálúðu, dönsku kunnátta nauðsynleg
Uppl. Elli í s. 899 0910
100% starf í veitingasal
- Nýbýlavegur -
Okkur vantar duglega og drífandi starfsmenn á Nýbýlavegi, til að
vinna í veitingasal - í fullu starfi á vöktum.
Leitum að metnaðargjörnu og drífandi fólki með mikla þjónustu-
lund. Eingöngu er leitað að fólki í fullt starf. Umsækjandi þarf að
vera eldri en 18 ára.
Sendu okkur umsókn á tokyo@tokyo.is og láttu fylgja ferilskrá og
mynd. Nánari upplýsingar um Tokyo sushi eru á tokyo.is
Dvalarheimili aldraðra Stykkishólmi
auglýsir eftir Matráð
Starfið felur í sér yfirumsjón með starfsemi eldhúss og
eldamennsku fyrir íbúa Dvalarheimilisins og annara sem
kaupa mat á heimilinu. Auk þess er á veturnar eldaður
matur fyrir nemendur og starfsfólk Grunnskólans og hann
fluttur í skólann.
Æskilegt er að umsækjendur hafi einhverja menntun í
matreiðslu og næringarfræði og góða reynslu af starfi í
mötuneyti.
Umsóknarfrestur er til 25. júlí, ráðið verður í starfið frá
og með 15. ágúst n.k.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu
Stykkishólmsbæjar – www. stykkisholmur.is og á skrif-
stofu Stykkishólmsbæjar. Umsóknir berist undirritaðri á
Dvalheimili aldraðra, Skólastíg 14, 340 Stykkishólmur eða á
netfangið hildigunnur@stykkisholmur.is.
Allar nánari upplýsingar á staðnum eða í síma: 4338165
alla virka daga.
Hildigunnur Jóhannesdóttir
Forstöðumaður Dvalarheimilis aldraðra
kopavogur.is
Kópavogsbær
Leikskólastjóri
Grænatún
100% starf frá 1. október 2014 eða eftir
nánara samkomulagi.
Grænatún er þriggja deilda leikskóli þar sem
dvelja 65 börn.
Menntunar og hæfniskröfur
Leikskólakennaramenntun skilyrði
Framhaldsmenntun í stjórnun eða
leikskólafræðum æskileg
Reynsla af starfi í leikskóla skilyrði
Reynsla af stjórnun og rekstri mikilvæg
Góð tölvukunnátta
Forystuhæfileikar og góð samskiptahæfni
skilyrði
Frekari upplýsingar
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og FSL.
Starfað er skv. starfslýsingu Kópavogsbæjar og
Félags stjórnenda leikskóla.
Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólum
Kópavogs þurfa að undirrita heimild til að afla
upplýsinga úr sakaskrá.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Sesselja Hauksdóttir, leikskólafulltrúi,
sesselja@kopavogur.is gsm: 6923919,
Sigurlaug Bjarnadóttir, leikskólafulltrúi,
sigurlaugb@kopavogur.is gsm: 8615440
og Gerður Guðmundsdóttir leikskólaráðgjafi,
gerdur@kopavogur.is gsm: 6617027
Sími á skrifstofu Kópavogsbæjar er: 570-1500
Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí 2014.
Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja
um starfið.
Eingöngu er hægt að sækja um starfið rafrænt
á vef Kópavogsbæjar www.kopavogur.is
Umsækjendur athugið að ekki er tryggt að
umsókn hafi borist, nema þið fáið svar þess
efnis að hún hafi verið móttekin.
Þjónustustöð Mosfellsbæjar
auglýsir eftir
• Verkefnastjóra garðyrkju.
• Almennum starfsmanni.
• Verkstjóra veitna.
Umsóknarfrestur er til 15.ágúst 2014.
Upplýsingar um laus störf hjá Mosfellsbæ er hægt að sjá á
www.mos.is
Þjónustustöð Mosfellsbæjar sér um alla almenna þjónustu
við bæjarbúa á sviði tækni og umhverfismála, svo sem
snjóruðning, viðhald og rekstur gatna, holræsa, veitna,
umferðarmannvirkja og opinna svæða, auk þess að aðstoða
garðyrkjudeild og vinnuskóla.
HJÚKRUNARHEIMILI
Aðstoðardeildarstjóri
Laus er staða aðstoðardeildarstjóra 5.hæðar frá
1.september 2014 eða eftir samkomulagi.
Hæfniskröfur :
Hjúkrunarfræðingur með íslenskt starfsleyfi.
Reynsla í stjórnun æskileg.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Umsóknir þurfa að berast fyrir 1. ágúst n.k.
Skjól er hjúkrunarheimili aldraðra þar sem hjúkrun
er veitt í hlýlegu umhverfi.
Upplýsingar veitir:
Guðný H. Guðmundsdóttir
Framkvæmdarstjóri hjúkrunar
Sími 522 5600, netfang gudny@skjol.is
Hjúkrunarheimili
Kleppsvegi 64. 104 Reykjavík.
Sími. 522 5600
Skjól er reyklaus vinnustaður
Ungmennafélag Kjalnesinga óskar eftir að ráða drífandi og
metnaðarfullan einstakling til starfa. Íþróttafulltrúi sér um
skipulagningu og framkvæmd íþróttastarfs á Kjalarnesi.
Starfssvið:
• Skipulagning á íþróttastarfi félagsins
• Stefnumótun og verkefnastjórnun
• Þjálfun
• Forvarnarstarf
• Samstarf við önnur félög
• Samstarf við aðrar stofnanir á svæðinu
Hæfniskröfur:
• Háskólapróf á sviði íþrótta og tómstundamála
• Reynsla er nýtist í starfi æskileg
• Skipulagshæfileikar
• Frumkvæði
• Þjónustulund
• Samviskusemi
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Nánari
upplýsingar um félagið er að finna inn á www.umfk.is.
Umsókn, ásamt ferilskrá sendist til
gudrun.formadur@gmail.com fyrir 20. júlí n.k.
Íþróttafulltrúi
/ þjálfari
12. júlí 2014 LAUGARDAGUR8