Fréttablaðið - 12.07.2014, Síða 8

Fréttablaðið - 12.07.2014, Síða 8
12. júlí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | þúsund krónur er hámarkslán hjá LÍN á skólaárinu. 1.393 8 Leyfðu okkur að telja Endurvinnslan í samstarfi við SORPU opnar nýja móttökustöð við Breiðhellu í Hafnarfirði Endurvinnslan og SORPA hafa opnað nýja flöskumóttöku á endurvinnslustöð SORPU við Breiðhellu í Hafnarfirði. Með nýjum vélarkosti geta viðskiptavinir nú skilað heilum umbúðum án þess að þurfa að telja og flokka þær. Áfram þarf þó að flokka og telja beyglaðar umbúðir. ÞETTA BORGAR RÍKIÐ MEÐ HVERJUM NEMANDA Í HÁSKÓLA ÍSLANDS Félags- og mannvísindasvið Tölvunar- og stærðfræði Verk-, tækni- og efnafræði Læknisfræði Tannlækningar 4.953 181 1.608 340 55 0,55 m. 0,78 m. Hjúkrunarfræði 5380,98 m. Kennaranám 1.4800,85 m. 1,15 m. 1,58 m. 2,55 m. m.kr. Fjöldi nemenda MENNTAMÁL Samanlagður kostn- aður einstaklings og ríkis við fyrstu háskólagráðu við Háskóla Íslands er á bilinu 6 til 20 millj- ónir, eftir eðli og lengd náms. Í vor sóttu um fimm þúsund manns um að hefja grunnnám á einhverju af fimm fræðasviðum skólans. Ríkið greiðir framlög með hverjum nemanda við Háskóla Íslands. Framlögin eru mjög mishá eftir því í hvaða deild menn stunda nám. Í félags- og mannvísindadeild var framlagið 554 þúsund krónur á nemanda á síðasta skólaári en í tannlækna- deild var framlagið 2,55 milljónir króna á hvern nemanda. Kostnaður ríkisins vegna ein- staklings sem er þrjú ár að ljúka BA-gráðu frá félagsvísindadeild er því um tæpar 1.700 þúsund krónur. Margir taka námslán og fullt námslán á ári fyrir einstakling sem býr ekki í foreldrahúsum er um 1.400 þúsund á ári, eða 4,2 milljónir á þremur árum. Saman- lagður kostnaður einstaklings við gráðuna er því tæpar sex millj- ónir króna. Ef viðkomandi hefði verið í vinnu þennan tíma og verið með 3,6 milljónir í laun á ári hefði hann þénað um 10,8 milljónir. Háskólagráðan kost- ar milljónir króna Samanlagður kostnaður einstaklings sem tekur full námslán og ríkis vegna BA- gráðu í félagsvísindum við Háskóla Íslands er sex milljónir króna. Þriðjungi þeirra sem tóku námslán hjá LÍN finnst fjárhagslega erfitt að greiða lánin til baka. DÝRT Það kostar sitt að verða sér úti um háskólagráðu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kostnaður ríkisins er mun meiri á hvern nemanda í heilbrigðisvís- indum. Kostnaður hins opinbera vegna hvers nema í grunnnámi í hjúkrunarfræði er rúm milljón á ári eða á fimmtu milljón á náms- tímanum sem er fjögur ár. Taki hjúkrunarfræðineminn námslán í fjögur ár skuldar hann á sjöttu milljón króna í námslán. Samanlagður kostnaður ein- staklings og samfélags vegna grunnnáms í hjúkrunarfræði er því á bilinu 9 til 10 milljónir og þá er ekki tekið tillit til tekju- taps viðkomandi á meðan hann er í námi. Dýrasta námið við HÍ er tann- læknanámið. Það tekur sex ár að verða tannlæknir og kostnaður ríkisins nemur rúmum 15 millj- ónum króna. Taki menn námslán helming námstímans bætast við um fjórar milljónir króna. Að verða tann- læknir gæti því auðveldlega kost- að einstaklinginn og samfélagið 19 til 20 milljónir króna. BHM gerði könnun meðal félagsmanna síðastliðið vor þar sem spurt var um námslán. Af þeim félagsmönnum sem tóku þátt í könnuninni sögðust 87 pró- sent hafa tekið námslán. Af þeim hópi sögðust 27 prósent skulda meira en sex milljónir. Þriðjung- ur aðspurðra sagðist finna veru- lega fyrir að endurgreiða lánin og 1,5 prósent sögðust ekki ráða við endurgreiðslur af lánunum. johanna@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.