Fréttablaðið - 09.09.2014, Síða 2
9. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 2
SPURNING DAGSINS
FJÖLMIÐLAR Blaðamenn DV eru
margir hverjir að íhuga stöðu
sína í kjölfar ritstjóraskipta og
deilna við stjórn blaðsins. DV
kemur ekki út í dag en á starfs-
mannafundi í gær lýstu nokkrir
starfsmenn yfir megnri óánægju
sinni gagnvart Þorsteini Guðna-
syni, stjórnarformanni blaðsins,
yfir því hvernig Reyni Trausta-
syni ritstjóra var vikið úr starfi
og yfir áætlaðri úttekt á fagleg-
um þáttum í starfsemi miðilsins,
sem nú hefur verið hætt við.
Þetta herma nokkrir starfs-
menn DV sem Fréttablaðið ræddi
við. Að þeirra sögn er stefnt að
því að gefa út blað á morgun en
fáir hafi verið í skapi til frétta-
skrifa í kjölfar fundarins í gær.
Þorsteinn tilkynnti um það í
gærkvöldi að hætt hefði verið við
faglegu úttektina vegna mikillar
óánægju blaðamanna. Hann telur
þó að um misskilning hafi verið
að ræða að einhverju leyti.
„Nýr ritstjóri átti einfaldlega
að hitta hvern og einn blaða-
mann og ræða við hann um fag-
lega þætti blaðsins,“ segir Þor-
steinn. „Það átti aldrei að vera
neitt meira en það. En þá var
náttúrulega þeim mun minna mál
að falla frá því.“
Hann segist vona að traust
myndist milli stjórnar og blaða-
manna í kjölfar þess að hætt var
við úttektina fyrirhuguðu.
Þeir starfsmenn blaðsins sem
Fréttablaðið ræddi við sögðu hins
vegar að þeim þætti spurningum
sínum um þessa rannsókn ekki
hafa verið svarað, hvorki á fund-
inum né í tilkynningu Þorsteins
frá því í gærkvöldi.
Þá segjast þeir einnig mjög
óánægðir með að Reynir Trausta-
son hafi verið leystur undan
starfsskyldum og honum meinað
að mæta á vinnustað, frekar en
að hann væri einfaldlega rekinn.
Óánægja þeirra beinist þó ekki
gegn Hallgrími Thorsteinsson,
nýjum ritstjóra, sem sagður er í
„mjög óþægilegri stöðu“.
Nokkrir starfsmenn fóru fram
á afsökunarbeiðni frá Þorsteini
vegna ummæla hans um Reyni
Traustason, fráfarandi ritstjóra,
en Þorsteinn telur ekki ástæðu til
að biðjast afsökunar á þeim.
„Það sneri að því að í tilkynn-
ingu frá því í ágúst sagðist ég
vilja úttekt á fjárreiðum blaðsins,
meðal annars til að hreinsa blað-
ið af öllum ásökunum,“ segir Þor-
steinn, en greint var frá því um
það leyti að útgerðarmaðurinn
Guðmundur Kristjánsson hefði
lánað Reyni 15 milljónir króna
til að kaupa hlutafé í félaginu.
„En ég ákvað að leggja þá til-
lögu ekki fram á aðalfundi fyrir
orð aðstoðarritstjóra DV.“
bjarkia@frettabladid.is
Jóhann, er þetta ekki dálítið
heimskulegt val?
„Það held ég ekki – þetta er nátt-
úrulega heimskunn mynd.“
Jóhann Alfreð Kristinsson er viðburðastjórn-
andi hjá kvikmyndahátíðinni RIFF sem
gengst fyrir bílabíói utan við Smáralind síðar
í mánuðinum. Myndin Dumb & Dumber
verður sýnd.
BJÖRGUN Stýrimaðurinn sem var á
vakt þegar flutningaskipið Akrafell
strandaði undan Vattarnesi á laug-
ardagsmorgun hefur viðurkennt
við skýrslutöku að hafa verið sof-
andi þegar skipið strandaði.
Jón Arilíus Ingólfsson, rann-
sóknarstjóri rannsóknarnefndar
samgönguslysa, staðfestir þetta og
segir að málið sé áfram til rann-
sóknar. Ekki liggur fyrir hvenær
henni lýkur en skýrslur voru einn-
ig teknar af skipstjóra, yfirstýri-
manni og yfirvélstjóra á sunnudag.
Akrafell var á þrettán mílna ferð
á klukkustund, sem er um það bil
hámarkshraði fullhlaðins skips af
þessari stærð, og á sjálfstýringu
þegar það strandaði. Að sögn skip-
verja Aðalsteins Jónssonar, skips-
ins sem dró Akrafell til hafnar í
Eskifirði, virtust áhafnarmeðlim-
ir í nokkru uppnámi er þeir voru
fluttir um borð eftir áreksturinn.
Allir áhafnarmeðlimir Akrafells
eru erlendir ríkisborgarar. Þeir
voru látnir blása í áfengismæla
stuttu eftir strandið og mældist
enginn þeirra undir áhrifum áfeng-
is. - bá
Stýrimaður sem var á vakt er flutningaskipið Akrafell strandaði um helgina:
Var sofandi er skipið strandaði
STRANDIÐ VIÐ VATTARNES Land-
helgis gæslan skipulagði björgun skips-
ins um helgina. MYND/GUNNAR GUNNARSSON
Æðsti yfirmaður herafla Atlants-
hafsbandalagsins, Philip M.
Breedlove hershöfðingi, kemur
í heimsókn til Íslands á morgun.
Hann mun eiga fund með Gunn-
ari Braga Sveinssyni utanríkis-
ráðherra í Ráðherrabústaðnum
við Tjarnargötu. Auk fundar-
ins með utanríkisráðherra mun
Breedlove eiga stuttan fund með
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni
forsætisráðherra og kynna sér
starfsemi Landhelgisgæslunnar.
- aó
Breedlove hittir ráðherra:
Hershöfðingi
í heimsókn
Blaðamenn DV eru
ósáttir við stjórnina
Starfsmenn lýstu yfir megnri óánægju gagnvart stjórn blaðsins á morgunfundi í
gær og var í kjölfarið ákveðið að fresta útgáfu blaðsins. Stjórnarformaður segir að
um misskilning sé að ræða og hefur hætt við faglega úttekt á starfsemi blaðsins.
SAGÐUR Í „ÓÞÆGILEGRI STÖÐU“ Hallgrímur Thorsteinsson, nýr ritstjóri DV, ræðir
við Jón Trausta Reynisson, framkvæmdastjóra blaðsins, í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
LÖGREGLUMÁL Svikahrappar
sendu fjölmörgum einstakling-
um tölvupóst í nafni íslenskra
banka í gær. Í þeim var fólk
beðið um að smella á tengil og
skrá persónulegar upplýsingar
á borð við lykilorð. „Þetta fyrir-
komulag sem þarna er í gangi
er eitthvað sem við erum ekki
með,“ segir Haraldur Guðni
Eiðsson, upplýsingafulltrúi
Arion banka. „Við sendum ekki
póst með þessum hætti og ég bið
fólk um að smella ekki á þessa
hlekki,“ segir hann og hvetur
jafnframt fólk, sem verður það
á að ýta á tenglana, að fara inn
í heimabankann sinn og breyta
lykilorði sínu. - jhh
Vara viðskiptavini sína við:
Svikahrappar
vilja lykilorð
SJÁVARÚTVEGUR Þingflokkur Sam-
fylkingarinnar skorar á Sigurð
Inga Jóhannsson sjávarútvegsráð-
herra að endurskoða ákvörðun um
að stöðva makrílveiðar smábáta. Í
ályktun frá þingflokknum kemur
fram að mörg dæmi séu um að
smábátasjómenn hafi nýlega farið
út í fjárfestingar vegna veiðanna
og komi þessi ákvörðun þeim hópi
því sérstaklega illa. „Þá er rétt að
hafa í huga að aflaverðmæti mak-
ríls sem veiddur er á þessum tíma
af smábátum er með því hæsta
sem gerist. Engin rök hafa verið
sett fram fyrir því að fallið verði
frá þeirri ákvörðun að stöðva veið-
arnar,“ segir í ályktun Samfylking-
arinnar. -sáp
Samfylking skorar á ráðherra:
Vilja endurskoða
makrílbann
STJÓRNMÁL Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir
verkefnastöðu ríkisstjórnarinnar góða og hlakkar til komandi vetrar
á þingi.
„Auðvitað eru ýmis stór mál ókláruð, en það hvernig hefur gengið
fram að þessu gefur okkur tilefni til að vera bjartsýn á að vel takist að
leysa þau mál sem eftir eru,“ segir Sigmundur.
Ríkisráð, sem samanstendur af forseta Íslands og ríkisstjórn, kom
saman á fundi á Bessastöðum í gærmorgun í tilefni þess að þing hefst
í dag. Þingsetning hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan
hálf tvö og nýtt fjárlagafrumvarp verður afhent klukkan fjögur. - sa
Fjárlagafrumvarpi verður útbýtt þegar Alþingi er sett í dag:
Sigmundur hlakkar til vetrarins
BJARTSÝNN AÐ FYRSTA ÁRI LOKNU Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráð-
herra mætir á ríkisráðsfund á Bessastöðum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
ELDGOS Íbúar austanlands fá nú að kynnast blá-
móðu á himni frá eldgosinu sem í miklu magni gæti
orðið varasöm. Hraunrennsli úr eldgosinu norðan
Dyngjujökuls er nú komið út í aðalfarveg Jökulsár
á Fjöllum og þrýstir fljótinu austar á Dyngjusand.
„Við þurfum að fylgjast með þessu,“ segir Þor-
valdur Þórðarson eldfjallafræðingur um gosmökk-
inn sem lagði fyrri hluta gærdags til norðausturs í
átt að Fljótsdalshéraði og Vopnafirði. „Eins og við
vitum frá móðuharðindunum olli þetta miklum erf-
iðleikum hjá fólki, bæði hér á landi og erlendis.“
Það er brennisteinssýran sem veldur öndunar-
erfiðleikum en í gosmekkinum er meðal annars
brennisteinsdíoxíð sem í snertingu við vatnsgufu
myndar brennisteinssýru. Þorvaldur áætlar að eld-
gosið sé nú að senda frá sér tíu þúsund tonn á dag
af brennisteinsdíoxíði út í andrúmsloftið.
„Það er náttúrulega hægt að fá grímur til að
varna því að fólk andi þessu að sér og það er allt í
lagi fyrir fólk að huga að því,“ segir Þorvaldur. „Ef
þetta heldur áfram eða eykst að verulegu magni,
gæti alveg komið til greina að það þyrfti að flytja
fólk á brott.“ - kmu
Gosmökkurinn frá eldgosinu í Holuhrauni gæti valdið öndunarerfiðleikum:
Blámóðan gæti reynst varasöm
MÖKKURINN STÍGUR TIL HIMINS Hraunrennsli úr gosinu er
nú komið út í aðalfarveg Jökulsár á Fjöllum.
FRÉTTABLAÐIÐ/EGILL AÐALSTEINSSON