Fréttablaðið - 09.09.2014, Blaðsíða 40
9. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 20
BAKÞANKAR
Álfrúnar
Pálsdóttur
Stuðmannaveisla í Hörpu
Hljómsveitin Stuðmenn lagði undir sig Hörpu um helgina og kom þar fram á tvennum tónleikum í Eldborg,
ásamt því að halda dansleik í Silfurbergi fram eft ir nóttu. Stuðmenn slógu þar með eigið met í lengstu törn
á einum sólarhring í spilamennsku er sveitin lék meira og minna linnulaust frá klukkan 19.30 til 3.00.
MIKIL GLEÐI Stuðmenn voru í góðum gír og virtust njóta þess í botn að spila saman. MYNDIR/ÞÓRARINN ÓSKAR ÞÓARINSSON HRESS Valgeir Guðjónsson fór á kostum
með hressum bröndurum á milli laga.
TRUMBUSLÁTTUR Ásgeir Óskarsson hafði
í nógu að snúast í Hörpu um helgina.
Í GÓÐUM GÍR Egill Ólafsson kann sitt
fag og var mjög hress á sviðinu.
GLÆSILEG Ragnhildur Gísladóttir er
alltaf jafn glæsileg.
FAGMENN Jakob Frímann Magnússon
og Tómas Tómasson einbeittir á svip.
TÓNLIST ★★★★ ★
Stuðmenn Tívolí
Tónleikar
ELDB0RG Í HÖRPU 6. SEPTEMBER
Stuðmenn kom fram á tvennum tón-
leikum í Eldborgarsalnum Hörpu
og á dansleik í Silfurbergi um liðna
helgi. Efni tónleikana var eins og
titillinn gefur til kynna, Tívolíplata
sveitarinnar sem kom út árið 1976.
Umgjörðin var til fyrirmyndar
en Benedikt Erlingsson leikstýrði
tónleikunum og tókst vel til því
tónleikarnir voru virkilega flott
„show“ og mikið að gerast á svið-
inu.
Stuðmenn voru þó yfirvegaðir í
sinni spilamennsku og fannst mér
um stund meðlimir sveitarinnar
fullrólegir. Gunnar Leó Pálsson
NIÐURSTAÐA: Fágaðir tónleikar sem
minntu um stund á leiksýningu.
Mikið stuð
í mönnum
ÁLFABAKKA
AKUREYRI
EGILSHÖLL
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
RICHARD ROEPER-CHICAGO SUN TIMES
DENOFGEEK.COM
SJÁ FLEIRI SÝNINGAR Á WWW.BIOPARADÍS.IS - Miðasala: 412 7711 - Hverfisgata 54 - bioparadis.is - Hluti af Europa Cinemas
MIÐASALA Á
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15
PARÍS NORÐURSINS LÚXUS KL. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15
TMNT 2D KL. 3.30 - 5.45
TMNT 3D KL. 3.30 - 8
THE GIVER KL. 5.45 - 10.15
LET́S BE COPS KL. 3.30 - 5.40 - 8 -10.20
EXPENDABLES KL. 8 - 10.40
AÐ TEMJA DREKANN 2 ÍSL. TAL 2D KL. 3.30
PARÍS NORÐURSINS KL. 5.45 - 8 - 10.15
THE GIVER KL. 8 - 10.15
ARE YOU HERE KL. 10.40
LET́S BE COPS KL. 5.45 - 8
NIKULÁS Í FRÍI KL. 5.45
DAWN . . . PLANET OF THE APES KL. 10.15
VONARSTRÆTI ENSKUR TEXTI KL. 5.20
VONARSTRÆTI KL. 8
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
PARÍS NORÐURSINS 5:30, 8, 10:10
LIFE OF CRIME 8
TMNT 3D 5:30
LET’S BE COPS 10:10
THE EXPENDABLES 10
LUCY 8
AÐ TEMJA DREKAN SINN 2D 5:30
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
„MAMMA, um hvað er verið að syngja?“
Þessa spurningu fæ ég nánast í hverri bíl-
ferð þegar útvarpið er í gangi og þarf að
hafa mig alla við í akstrinum á meðan ég
rembist við að þýða dægurlagatexta yfir á
íslensku af ensku fyrir þessa sex ára.
UM daginn ómaði Drunk in love með
Beyoncé á leiðinni í Bónus. Milli þess sem
poppdrottningin stundi og rúðuþurrkurn-
ar ískruðu á framrúðunni reyndi ég að
snara ritskoðaðri útgáfu af laginu yfir á
íslensku fyrir frökenina. „Við vöknuð-
um í eldhúsinu, einn daginn og sögð-
um: Hvernig í ósköpunum gerðist
þetta? Ó, elskan við verðum ástfang-
in í alla nótt.“ Já, dægurlagatext-
arnir verða oft ansi kostulegir og
tormeltir á okkar ástkæra ylhýra.
Í þessari þýðingarvinnu minni er
ég búin að komast að því að allir
dægurlagatextar fjalla á einn
eða annan hátt um ástina. Eða
það er auðvelda svarið mitt:
„Hún er svo ástfangin að hún
vill bara syngja, gullið mitt.“
MAÐUR nefnilega spáir ekkert
oft í texta – þannig – það er yfirleitt bara
sungið með í takt við lagið og annaðhvort
ertu hrifinn af taktinum eða ekki. Eins og
í laginu Mér finnst rigningin góð flutt af
SSSÓL, það var víst samið í einu rigningar-
sumrinu til að létta fólki lundina, eða það
las ég einhvers staðar. Auðvelt að syngja
hástöfum með í stað þess að bölva vætu-
samri tíð. „Hárið á mér er ljóst, þakið á hús-
inu er grænt, ég Íslendingur, það Græn-
lendingur,“ er hins vegar setning sem ég
get ómögulega sett í samhengi. En ég syng
með án þess að blikna. Ef ég ætti að útskýra
það fyrir fröken Fix kæmi ég mér fljótt í
vandræði. Svo eru það ástföngnu flugvél-
arnar, þær skjóta stundum upp kollinum.
TIL að lagatexti hitti í mark er best að
skrifa um eitthvað sem hlustendur sam-
sama sig við, eins og ástina, hver kannast
ekki við hana? Það væri lítið varið í laga-
texta um gráan hversdaginn. Eða hvað?
Undirrituð mundi syngja með lagi sem
fjallaði um barnagrát, andvökunætur,
Bónus ferðir, uppvask og íbúðalán. Væri það
ekki ágætis tilbreyting? Því lífið er ekki
bara ástfangnar flugvélar sem kyssast í
fimm þúsund fetum.
Ástin, lífi ð og fl ugvélar