Fréttablaðið - 09.09.2014, Page 4
9. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
HEILSA Börn sem lenda reglulega
í því að vera strítt af systkinum
sínum gætu átt það á hættu að
verða þunglynd þegar þau verða
eldri. Þetta kemur fram í niður-
stöðum rannsóknar við Oxford-
háskóla.
Um sjö þúsund tólf ára börn voru
spurð hvort systkini þeirra hefðu
sagt eitthvað særandi við þau
eða lamið þau. Þegar börnin voru
orðin átján ára voru þau spurð út í
geðheilsu sína. Þau 786 börn sem
höfðu lent illa í systkinum sínum
voru tvöfalt líklegri en önnur börn
til að þjást af þunglyndi, að því er
segir í frétt BBC. - fb
Aukin tíðni þunglyndis:
Stríðni systkina
áhættuþáttur
SVÍÞJÓÐ Læknar í Västernorr-
land í Svíþjóð vinna svo mikið að
lögreglan hefur hafið rannsókn
vegna þess. Fjöldi lækna hefur til-
kynnt um samtals sjö þúsund yfir-
vinnutíma undanfarin tvö ár.
Samkvæmt vinnutímalöggjöfinni
er leyfilegt að vinna 200 yfir-
vinnutíma á ári. Leyfilegt er að
vinna 150 yfirvinnutíma til við-
bótar krefjist aðstæður þess. En í
Västnorrland eru dæmi um lækna
sem hafa unnið 600 yfirvinnu-
tíma á ári. Samkvæmt fréttum
sænskra fjölmiðla fagna læknar
rannsókn lögreglunnar. - ibs
Rannsókn vegna yfirvinnu:
Lögregla yfir-
heyrir lækna
LÆKNAR Lögreglan mun yfirheyra 80
manns vegna mikillar yfirvinnu lækna.
NORDICPHOTOS/GETTY
FJÁRMÁL „Ég vissi að það væri
bústaður þarna einhvers staðar
en mér var aldrei sagt að það væri
bústaður sem forstjórinn einn
hefði aðgang að,“ segir Kjartan
Magnússon, stjórnarmaður í Orku-
veitu Reykjavíkur.
Kjartan hefur setið í stjórn OR
fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árs-
lokum 2007. Hann segir upplýsing-
ar sem fram komu í Fréttablaðinu
í liðinni viku um svokallaðan for-
stjórabústað OR í landi Nesjavalla
við Þingvallavatn hafa komið sér í
opna skjöldu. Hann hafi heyrt um
bústaðinn og talið að hann væri
einn þeirra sem starfsmannafélag
OR ræður yfir.
„Það var ekk-
ert talað um að
forstjórinn hefði
eitthvað með
bústaðinn að
gera; réði honum
og hefði hann
fyrir sig. Maður
hafði á tilfinn-
ingunni að þetta
hús væri í niðurníðslu og að hruni
komið. Svo sá maður í fréttunum
að þetta er að minnsta kosti not-
hæft,“ segir Kjartan. Eins og sést
hefur í umfjöllun Fréttablaðsins
virðist bústaðurinn í fyrirtaks
ástandi.
Fram kom í svörum Eiríks
Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa
Orkuveitunnar, til Fréttablaðsins í
liðinni viku að forstjóri fyrirtæk-
isins hefði ráðstöfunarrétt yfir
Þingvallavatnsbústaðnum. Síðar
sagði Bjarni Bjarnason forstjóri
að það væri ekki rétt. Sjálfur hefði
hann ekki notað bústaðinn lengi en
að líklega hefðu einhverjir fram-
Býst við skýringum á
Orkuveitubústaðnum
Stjórnarmaður í Orkuveitunni segist hafa talið að bústaður fyrirtækisins við
Þingvallavatn væri á forræði starfsmannafélagsins og að húsið væri ónothæft. Nú
sé annað komið upp úr dúrnum og hann búist við skýringum á stjórnarfundi.
FERÐAÞJÓNUSTA Stærsta skemmti-
ferðaskipið sem kemur til Íslands
í sumar, Royal Princess, leggst að
bryggju við Skarfabakka klukkan
átta á sunnudagsmorgun. Það er
139 þúsund brúttótonn og tekur
yfir 3.500 farþega. Katrín, her-
togaynja af Cambridge, vígði skip-
ið fyrir rúmi ári.
Aðspurður segir Ágúst Ágústs-
son hjá Faxaflóahöfnum að í tilefni
af komunni verði talað við skip-
stjórann og honum færður platti,
eins og alltaf þegar skip leggur að
bryggju í fyrsta sinn. „Svo ætlum
við að vera með fallega konu á
hafnarbakkanum í skautbúningi
og hún hendir rósum í sjóinn þegar
skipið kemur,“ segir hann. - fb
Stórt skip leggst að bryggju:
Prinsessan fær
rósir og platta
ROYAL PRINCESS Katrín hertogaynja
vígði skipið fyrir rúmu ári.
MYND/PRINCESS CRUISES
DANMÖRK Á hverjum mánudags-
morgni geta íbúar í bænum Løsn-
ing á Jótlandi fengið guðsþjón-
ustu sunnudagsins í bakaríinu
Den Lille Bager. Það eru sjálf-
boðaliðar sem taka upp guðsþjón-
ustuna, brenna hana á tíu diska
og fara með þá í bakaríið.
Viðskiptavinir bakarans geta
fengið diskana án endurgjalds.
Samkvæmt frétt á vef Kristilega
dagblaðsins renna diskarnir út.
Markmiðið er að ná til þeirra
sem hika ef til vill við að sækja
messu eða komast ekki. - ibs
Guðsþjónustan nær til fleiri:
Messa á diski
hjá bakaranum
ÚKRAÍNA, AP Átök hafa brotist út í
austanverðri Úkraínu daglega frá
því á laugardag, þrátt fyrir að sam-
komulag um vopnahlé hafi tekist á
föstudaginn.
Að mestu hafa þó bæði stjórnar-
her Úkraínu og uppreisnarsveitir
hliðhollar Rússum staðið við vopna-
hléið og reynt að gæta þess að það
yrði ekki rofið.
Petro Porosjenkó Úkraínuforseti
hélt til borgarinnar Mariupol í gær,
og sagði þar ekki koma til greina að
Rússar næðu borginni á sitt vald.
Evrópusambandið bjó sig í gær
undir að samþykkja viðbótarrefsiað-
gerðir á hendur Rússum, þrátt fyrir
að þeir hafi hótað gagnaðgerðum á
borð við að loka á allt flug í rúss-
neskri lofthelgi, sem gæti reynst
afdrifaríkt fyrir evrópsk flugfélög.
Stefnt var á að refsiaðgerðir Evr-
ópusambandsins tækju gildi strax í
dag, en talsmaður ESB tók fram að
þær ættu að vera afturkallanlegar
með stuttum fyrirvara færi svo að
ástandið í Úkraínu breyttist.
gudsteinn@frettabladid.is
Evrópusambandið undirbýr refsiaðgerðir þrátt fyrir gagnhótanir Rússa:
Átök halda áfram í Úkraínu
Erlendir ferðamann festu bíl í
miðju Markarfljóti í gær. Þeir
höfðu ætlað að stytta sér leið yfir
í Þórsmörk en fljótið reyndist of
vatnsmikið. Þrennt var í bíln-
um og komst fólkið á þurrt með
aðstoð björgunarsveitarmanns
sem var á ferðinni við Gígjökul.
Björgunarsveitin kom svo á
staðinn um 20 mínútum eftir að
útkallið barst og kom ferðafólk-
inu til byggða. Það var blautt
eftir volkið en sakaði ekki.
- sáp
Björgunarsveitir kallaðar út:
Festu jeppa í
miðju fljóti
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
MILT Í VEÐRI Minniháttar úrkoma á landinu í dag, einkum vestan til, en seint í
nótt eða í fyrramálið fer að rigna, fyrst um landið sunnanvert. Styttir víðast upp á
fimmtudag með sól í allflestum landshlutum.
10°
11
m/s
12°
11
m/s
12°
8
m/s
12°
7
m/s
5-10 m/s.
8-13 m/s.
vestan til,
annars
hægari.
Gildistími korta er um hádegi
23°
31°
18°
23°
23°
16°
25°
16°
16°
28°
19°
30°
30°
28°
27°
19°
18°
20°
11°
5
m/s
12°
6
m/s
17°
6
m/s
16°
6
m/s
15°
7
m/s
13°
9
m/s
7°
10
m/s
12°
13°
10°
12°
12°
12°
15°
15°
13°
14°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FIMMTUDAGUR
Á MORGUN
FORSTJÓRABÚSTAÐURINN Er sagður munu hverfa fyrstur ef sumarhúsabyggðin í
landi Orkuveitunnar við Þingvallavatn verður aflögð. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
BJARNI
BJARNASON
KARTÖFLUM DREIFT Í MARIUPOL
Sjálfboðaliði afhendir kartöflupoka frá
Rauða krossinum. NORDICPHOTOS/AFP
238.807 voru á kjör-skrá fyrir
síðustu alþingiskosningar
en þeir voru 6.183 við fyrstu
kosningar til þingsins árið 1874.
Heimild: Hagstofa Íslands
kvæmdastjórar hjá Orkuveitunni
dvalið í húsinu.
„Hann var síðast notaður seinni
part júlímánaðar en eins og fram
hefur komið þá var forstjórinn
ekki þar á ferð,“ svarar Eiríkur
ítrekaðri fyrirspurn Fréttablaðs-
ins um hverjir hafi notað forstjóra-
bústaðinn og hvenær.
Aðspurður segist Kjartan eiga
von á því að gefnar verði skýring-
ar á notkun hússins á vettvangi
stjórnar Orkuveitunnar.
Fram hefur komið að til standi
að leggja af sumarhúsabyggð í
Nesjavallalandinu, meðal annars
vegna vatnsbóls sem þar er. Bjarni
forstjóri hefur sagt við Fréttablað-
ið að verði það niðurstaðan verði
bústaður Orkuveitunnar fyrstur til
að hverfa. gar@frettabladid.is
Maður
hafði á tilfinn-
ingunni að
þetta hús væri í
niðurníðslu og
að hruni
komið. Svo sá
maður í fréttunum að þetta
er að minnsta kosti nothæft.
Kjartan Magnússon,
stjórnarmaður í Orkuveitu Reykjavíkur