Fréttablaðið - 09.09.2014, Síða 8
9. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 8
BEIN ÚTSENDING Á WWW.VIB.IS Í DAG KL. 17.00
Ola Borten Moe, fyrrverandi olíu- og orkumálaráðherra Noregs,
verður sérstakur gestur opins fundar VÍB um framtíð orkuút-
flutnings og mögulega arðsemi sæstrengs frá Íslandi. Að lokinni
framsögu fara fram pallborðsumræður og auk Ola Borten Moe
verða þátttakendur:
» Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
» Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
» Ketill Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Askja Energy Partners
Fundarstjóri verður Elín Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VÍB.
Hjörtur Þór Steindórsson, forstöðumaður orkusviðs Íslandsbanka,
stýrir umræðum.
Á www.vib.is má fylgjast með fundinum í beinni
útsendingu eða horfa á upptöku af honum síðar.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
4
3
17
Íslandsbanki | Kirkjusandi | 155 Reykjavík | Sími 440 4900 | vib@vib.is
facebook.com/VIB.stofan | @vibstofan | www.vib.is
ARÐSEMI
ORKUÚTFLUTNINGS
BANDARÍKIN, AP „Hann er greini-
lega búinn að koma saman banda-
lagi hinna viljugu,“ sagði Mike
Rogers, formaður leyniþjónustu-
nefndar fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings, um hernaðaráform
Baracks Obama Bandaríkjafor-
seta gegn vígasveitum Íslamska
ríkisins í Írak.
„Það er gott,“ bætti hann við,
en tók fram að þetta orðalag
hefði heyrst áður. „Og svo tel
ég að hann þurfi að fræða þing-
ið og bandarísku þjóðina um það
nákvæmlega hvað við ætlum
okkur að gera þarna.“
Leiðtogar bæði demókrata
og repúblikana á Bandaríkja-
þingi hafa krafist þess að Obama
útskýri nákvæmlega hvers konar
hernaðaraðgerðir eru fyrirhug-
aðar.
Sjálfur hyggst Obama kynna
áform sín í ræðu á morgun, en í
dag hyggst hann ræða málið við
þingleiðtoga bæði repúblikana og
demókrata. Hann hefur lýst því
yfir að enginn landher verði send-
ur til Íraks eða Sýrlands.
Hernaðurinn verði svipaður því
sem Bandaríkin hafa áður gert í
baráttu sinni gegn hryðjuverka-
mönnum.
Bandaríkjaher hefur þegar gert
meira en 130 loftárásir á víga-
sveitir Íslamska ríkisins í Írak.
Vígasveitirnar brugðust við með
því að taka af lífi tvo bandaríska
fréttamenn sem höfðu verið í gísl-
ingu þeirra í Sýrlandi.
Nokkur Evrópuríki hafa gefið
loforð um þátttöku í hernaði gegn
Íslamska ríkinu.
Þá samþykkti Arabandalagið
í gær að grípa til hernaðar gegn
öfgahópum á borð við Íslamska
ríkið í Írak og Sýrlandi. Bandalag-
ið lét þó vera að lýsa yfir stuðningi
við hernað Bandaríkjanna.
Í ályktun Arababandalagsins,
sem samþykkt var eftir nætur-
langa fundi utanríkisráðherra
aðildarríkjanna, segir að grípa
eigi án tafar til aðgerða á ýmsum
sviðum, þar á meðal pólitískra og
lagalegra aðgerða auk hernaðar.
Mustafi Alani, sem er yfirmað-
ur öryggis- og varnarmáladeildar
rannsóknarmiðstöðvar um málefni
Persaflóaríkjanna í Genf, segir
leiðtoga Arababandalagsríkjanna
greinilega hafa áhyggjur af því
hvað Bandaríkin ætli að gera.
Sádi-Arabía og fleiri arabaríki
hafa ekki síst gagnrýnt tregðu
Bandaríkjanna við að skipta sér
af borgarstyrjöldinni í Sýrlandi.
Ekkert kemur fram í ályktun
Arababandalagsins um það hvort
stefnt sé að aðgerðum gegn Ísl-
amska ríkinu í Sýrlandi sérstak-
lega. gudsteinn@frettabladid.is
Obama safnar liði
gegn vígasveitunum
Bandaríkjaforseti hyggst útskýra hernaðaráform sín gegn Íslamska ríkinu sem
hefur vaðið uppi í Sýrlandi og Írak. Arababandalagið hefur samþykkt hernaðarað-
gerðir gegn Íslamska ríkinu, en lýsir þó ekki stuðningi við áform Bandaríkjanna.
VÍGASVEITIR ÍSLAMSKA RÍKISINS Sigri hrósandi í Rakka í Sýrlandi nú í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Save the Children á Íslandi