Fréttablaðið - 09.09.2014, Blaðsíða 16
| 2
Fyrir tveimur árum hófu nokkrir sálfræðingar undir-búning þess að taka á leigu
húsnæði sem gæti hýst á einum
stað starfsemi margra sálfræð-
inga. Þeir höfðu sameiginlega
reynslu af því að það hefur ýmsa
galla að vera hvert í sínu horni
með rekstur, endurmenntun og
meðferðarstarf.
Sálfræðingar Höfðabakka hófu
starfsemi í lok ágúst 2013 og er
reynslan af samstarfinu mjög
jákvæð. Með því að sameinast í
stærri rekstrareiningu höfum við
náð fram eftirfarandi:
■ Auknum sveigjanleika í þjón-
ustu: Með auðveldu aðgengi
að svo mörgum fagaðilum
hefur biðtími eftir þjónustu
styst sem bætir aðgengi ein-
staklinga að sálfræðiþjónustu.
■ Aukinni faglegri samvinnu:
Nábýlið hefur fætt af sér ýmis
samstarfsverkefni og eflt
önnur sem voru þegar hafin.
■ Sameiningu um stærri verk-
efni: Við erum nú í stakk búin
að gera samstarfssamninga
við stóra vinnustaði.
■ Faglegum fjölbreytileika:
Hér er saman komin mikil
FJÖLMENNASTI VINNU-
STAÐUR SÁLFRÆÐINGA
Hér viljum við leggja sérstaka
áherslu á að kynna þjónustu okk-
ar við vinnustaði og starfshópa:
Fræðsla fyrir vinnustaði er
einkum um sálfélagslegar hliðar
starfsumhverfisins, svo sem sam-
skipti á vinnustað og vellíðan í
starfi, streitu og streituvarnir,
viðbrögð við breytingum, einelti
og svo framvegis.
Ráðgjöf býðst bæði starfshóp-
um og einstaklingum. Ýmist er
um tímabundna ráðgjöf að ræða,
vegna aðsteðjandi vandamála/
viðfangsefna, eða ráðgjöf yfir
lengri tíma; sem hluti af starfs-
þjálfun einstaklinga/starfshópa.
Vinnustaðagreiningar. Stjórn-
endum á vinnustöðum er lögð
rík skylda á herðar varðandi að
meta sálfélagslega áhættuþætti
á vinnustað og bregðast við
aðstæðum sem kunna að valda
vanlíðan hjá einstökum starfs-
mönnum. Vinnustaðagreiningar
geta verið mat á sálfélagslegum
áhættuþáttum, úttektir vegna
vandamála í starfshópnum eða
athuganir vegna eineltiskvart-
ana.
Einstaklingsbundin aðstoð við
starfsmenn getur verið í formi
handleiðslu, áfallahjálpar eða
meðferðarsamtala.
Þjónusta okkar við vinnustaði
getur verið með ýmsu sniði. Í
mörgum tilvikum er um að ræða
afmörkuð fræðsluverkefni, eða
stuðningsviðtöl við starfsmenn.
Í öðrum tilvikum erum við ráð-
gefandi varðandi stefnumótunar-
vinnu og mótun verklagsreglna,
t.d. stefnumótun og verklagsregl-
ur í eineltismálum. Loks gerum
við sérstaka þjónustusamninga
við fyrirtæki, sniðna að óskum
og sérstöðu viðkomandi vinnu-
staðar. Dæmi um þætti sem fallið
geta undir slíkan þjónustusamn-
ing: Áfallahjálp, handleiðsla,
fræðsla og starfsmannastuðn-
ingur.
EINSTAKLINGAR
OG VINNUSTAÐIR
Líf og sál sálfræðistofa var stofnuð árið 2000 af
sálfræðingunum Einari Gylfa Jónssyni og Þórkötlu
Aðalsteinsdóttur. Þar starfa fimm sálfræðingar sem
sinna fjölbreyttri þjónustu við vinnustaði og starfs-
hópa ásamt einstaklingsmeðferð.
Eins og nafnið Karlar til ábyrgðar
bendir til er þungamiðja með-
ferðarinnar að taka ábyrgð á eigin
ofbeldishegðun og í framhaldinu
að þróa leiðir til að takast á upp-
byggilegan hátt á við það sem
upp kann að koma í samskiptum.
Allir sem leita til KTÁ byrja í ein-
staklingsviðtölum. Í framhaldinu
er síðan ákveðið hvort einstak-
lings- eða hópmeðferð hentar við-
komandi betur. Lögð er áhersla
á að viðkomandi þiggi aðstoðina
af fúsum og frjálsum vilja og sjái
sjálfur um að panta sér viðtal.
Undantekningar á þessari megin-
reglu eru til dæmis þegar barna-
verndaraðilar vísa málum til KTÁ.
MATSVIÐTÖL VIÐ MAKA
Ekki er boðið upp á hjónaviðtöl,
en mökum er boðið upp á viðtöl
við upphaf og lok meðferðar til
að meta öryggi maka og barna.
Auk þess er þeim bent á önnur
stuðningsúrræði, sé þess óskað.
FJÓRIR SÁLFRÆÐINGAR AÐ
STÖRFUM
Andrés Ragnarsson og Einar
Gylfi Jónsson, sem unnið hafa að
verkefninu frá upphafi; Aðalbjörg
Heiður Björgvinsdóttir, sem
sinnir makaviðtölum og viðtölum
við konur sem eru gerendur, og
Kristján Már Magnússon, sem
sinnir meðferð á Norðurlandi.
Þjónusta KTÁ er niðurgreidd
og allir geta leitað eftir henni
beint.
Beinn sími KTÁ: 555 3020; net-
fang: kta@lifogsal.is.
HEIMILISOFBELDI –
MEÐFERÐ
Karlar til ábyrgðar (KTÁ) er eina sérhæfða með-
ferðaúrræðið fyrir karla sem beita ofbeldi á heimil-
um hér á landi. Um er að ræða einstaklingsmeðferð
og hópmeðferð hjá sálfræðingum. Konum sem beita
ofbeldi í nánum samböndum býðst einnig aðstoð.
Áfallahjálp er sérhæfð þjónusta við fólk í kjölfar
áfalla. Hún byggir á viðurkenndum aðferðum til
að bregðast við bráðum áfallastreituviðbrögðum
og beinist að því að draga úr uppnámi og stuðla
þannig að betri aðlögun eftir áfallið. Ef fólk leitar
aðstoðar strax eftir atburð er áfallahjálpin sem veitt
er afmörkuð, tímabundin og með áherslu á forvarnir
og mat á þörf fyrir frekari eftirfylgd. Sálfræðingar
Höfðabakka eru með bráðaþjónustu fyrir þá sem
þurfa aðstoð strax eftir atburð þannig að hægt er að
mæta þörfum innan sólarhrings.
Ef frekari aðstoðar er þörf, eða ef fólk leitar að-
stoðar vegna gamalla áfalla, felst aðstoðin í sér-
hæfðri áfallameðferð. Hjá Sálfræðingum Höfðabakka
starfa nokkrir af helstu sérfræðingum landsins í
áfallahjálp og áfallameðferð en einnig eru þar um
tuttugu sálfræðingar sem hafa viðbótarmenntun í
áfallameðferð. Þessir aðilar hafa boðið upp á nám-
skeið og handleiðslu fyrir aðra meðferðaraðila í
tengslum við áfallahjálp og áfallameðferð. Hjá Sál-
fræðingum Höfðabakka er boðið upp á mismunandi
tegundir áfallameðferðar, eftir því hvað hentar
hverjum skjólstæðingi. Þannig er hægt að velja um
EMDR-meðferð (www.emdr.is), CPT (Cognitive Pro-
cessing Therapy) og fleiri aðferðir innan hugrænnar
atferlismeðferðar. Áfallameðferðin er í boði fyrir
börn, unglinga og fullorðna.
Sálfræðingar Höfðabakka hafa undirritað sam-
komulag við Rauða krossinn á Íslandi um áfallahjálp.
Annars vegar er þar um að ræða stuðning og með-
ferð vegna áfalla sem sjálfboðaliðar, sendifulltrúar
og starfsfólk Rauða krossins verða fyrir við störf sín
og hins vegar fræðsla og þróun sem tengist áfalla-
hjálp. Þessi samningur er sá fyrsti sinnar tegundar á
landinu og er möguleiki að gera slíkan samning við
fleiri stofnanir og fyrirtæki.
ÁFÖLL OG ÁFALLAVINNA
Áföll fylgja daglegu lífi okkar, því miður, og þau hafa áhrif á okkur en þau
áhrif eru einstaklingsbundin. Hjá Sálfræðingum Höfðabakka er boðið upp á
áfallahjálp og áfallameðferð.
EIGENDUR REKSTRARFÉLAGSINS Þórdís Rúnarsdóttir, Þórkatla Aðalsteinsdóttir,
Jóhann Thoroddsen, Gyða Eyjólfsdóttir, Einar Gylfi Jónsson og Andrés Ragnarsson eru
eigendur rekstrarfélags Sálfræðinga Höfðabakka.
FJÖLBREYTT ÞJÓNUSTA Sálfræðingarnir Reynar Kári Bjarnason, Rakel Davíðsdóttir,
Einar Gylfi Jónsson, Áslaug Kristinsdóttir og Þórkatla Aðalsteinsdóttir.
ÞRAUTREYND
Gyða Eyjólfs-
dóttir, Sig-
ríður Þormar
og Jóhann
Thoroddsen
eru þrautreynd
við áfallahjálp
og meðferð
áfallastreiturösk-
unar ásamt fleiri
sálfræðingum á
Höfðabakka.
og fjölbreytt þekking á með-
ferðarformum: HAM, Gjörhygli,
EMDR, ACT.
■ Samstarfi við önnur með-
ferðar- og stuðningsúrræði:
heilsugæsluna, VIRK, Janus og
fleiri.
■ Aukinni fræðslu: Við höfum góða
aðstöðu til námskeiðahalds .
■ Hagkvæmni í rekstri: Með því
að sameinast um ýmsa grunn-
þætti stofureksturs dreifum
við kostnaðinum og veitum
betri þjónustu.
Okkur til mikillar ánægju hafa
þeir sem hingað koma haft orð á
að hér sé notalegt andrúmsloft,
persónuleg þjónusta og alúðlegt
umhverfi.
SÁLFRÆÐINGAR HÖFÐABAKKA Stærsta samfélag sjálfstætt starfandi sál-
fræðinga og einstaklinga úr öðrum heilbrigðisstéttum er á Höfðabakka. Í dag
starfa þar tuttugu sálfræðingar og þrír geðhjúkrunarfræðingar, auk tveggja mót-
tökuritara. Á stofunni er saman komin mikil og fjölbreytt fagþekking og starfs-
reynsla á sviði meðferðar, ráðgjafar, fræðslu og greiningarvinnu.