Fréttablaðið - 09.09.2014, Blaðsíða 21
KYNNING − AUGLÝSING Ljós & lampar9. SEPTEMBER 2014 ÞRIÐJUDAGUR 3
Ljósa- og húsgagnahönnun Toms Dixon er innblásin af þeirri kraftmiklu nýsköp-
un sem þykir einkenna breskan
iðnað. Dixon er einna þekktast-
ur fyrir rennileg form, frumlega
efnisnotkun og bjarta liti, en ljós
eins og Copper Shade og Mirror
Ball njóta ómældra vinsælda um
allan heim.
Þrátt fyrir að Tom Dixon sé
sjálf lærður í iðnhönnun hefur
hann skipað sér í röð fremstu
hönnuða heims. Tuttugu og eins
árs hætti hann í Chelsea School
of Art í London eftir einungis sex
mánaða nám og reyndi fyrir sér í
öðrum skapandi greinum. Dixon
var um tíma bassaleikari í hljóm-
sveitinni Funkapolitan og skipu-
lagði viðburði og partí í vöru-
skemmum í London.
Eftir mótorhjólabyltu komst
Dixon upp á lagið með að log-
sjóða þegar hann reyndi að gera
við mótorhjólið sitt. Hann heill-
aðist af aðferðinni og möguleik-
unum sem hún bauð upp á.
Eftir það fór hann að sjóða
saman ýmiss konar nytjahluti úr
brotajárni og hafði þar með fund-
ið sína hillu í lífinu. Sjálfur hefur
Dixon sagt logsuðuna hafa reynst
hans gullgerðarlist.
„Af því að hvorki menntun
né markaðslögmál þvældust
fyrir mér gat ég leyft mér að búa
til hluti einungis ánægjunnar
vegna. Það var ekki fyrr en fólk fór
að kaupa þessa hluti að ég áttaði
mig á því að ég hafði dottið niður
á gullgerðarlist. Ég gat breytt
hrúgu af brotajárni í gull.“
S-stól l inn svokallaði kom
Dixon á kortið á hönnunarsen-
unni á níunda áratugnum og alla
leið inn á MOMA-safnið í New
York árið 1987, en stóllinn var
framleiddur af ítalska fyrirtæk-
inu Cappellini. Dixon hefur sagt
samvinnuna við Cappellini hafa
gefið honum ómetanlega innsýn
inn í hönnunarheiminn og þar
með var boltinn farinn að rúlla.
Árið 1998 var Dixon ráðinn
sem yfirhönnuður hjá breska
hönnunarfyrirtækinu Habitat og
síðar sem listrænn stjórnandi.
Árið 2000 fékk Tom Dixon kon-
unglega orðu í Buckingham-höll
fyrir störf sín í þágu hönnunar og
tveimur árum síðar stofnaði hann
hönnunarfyrirtæki í eigin nafni
ásamt David Begg.
Árið 2006 færði Tom Dixon út
kvíarnar og opnaði útibú í New
York og fjórum árum síðar í Hong
Kong. Árið 2012 bættist gjafa- og
fylgihlutalína, svo sem ilmvötn, úr
og fleiran við vörulínu Toms Dixon
og árið 2013 hannaði Tom Dixon
skó, töskur og fatnað fyrir Adidas.
Hönnun Toms Dixon fæst hér á
landi í versluninni Lúmex í Skip-
holti en Lúmex er í nánu sam-
starfi við Tom Dixon og arkitekta
hér á landi. Margir af helstu veit-
ingastöðum Reykjavíkur eru inn-
réttaðir með húsgögnum og ljós-
um Toms Dixon svo sem Kol,
Sjávargrillið, Grillmarkaðurinn
og Te og kaffi.
Logsuðan reyndist gullgerðarlist
Tom Dixon er meðal fremstu iðnhönnuða heims. Hann hætti í skóla tuttugu og eins árs og eftir að hafa fengið stutta leiðsögn í
logsuðu fann hann sína hillu. Ljósin Copper Shade og Mirror Ball eftir Dixon hafa slegið í gegn. Hönnun Toms Dixon fæst í Lúmex.
Fan Chair og Fan Table eftir Tom Dixon eru hluti af vinsælli húsgagnalínu hönnuðarins.
Mirror ball er eitt af vinsælustu ljósum
Toms Dixon.
Dixon er einna þekktastur fyrir rennileg
form, frumlega efnisnotkun. Ljósið nefnist
Flask.
„Af því að hvorki menntun né markaðslögmál þvældust fyrir mér gat ég leyft mér að búa til hluti einungis ánægjunnar vegna. Það var ekki fyrr en fólk fór að kaupa þessa hluti að ég áttaði mig á því að ég hafði dottið niður á gull-
gerðarlist. Ég gat breytt hrúgu af brotajárni í gull,“ segir Tom Dixon. Ljósið Etch nýtur mikilla vinsælda. MYNDIR/TON DIXON
Tom Dixon fann sína réttu hillu í lífinu
þegar hann lærði logsuðu. MYND/GETTY
Ljósin Copper Shade njóta ómældra
vinsælda um allan heim.