Fréttablaðið - 09.09.2014, Blaðsíða 24
KYNNING − AUGLÝSINGLjós & lampar ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 20146
BYKO býður upp á mikið úrval ljósa fyrir heimili og fyrirtæki. Fyrirtækið hefur
alla tíð lagt mikið upp úr góðu
vöruúrvali en ekki síður sann-
gjörnu verði. Öll heimili og fyr-
irtæki ættu því að
geta leyst úr ljósa-
málum í verslun-
um BYKO að sögn
Eyrúnar Friðjóns-
dóttur, útstilling-
arst jóra BY KO.
„Við höfum fjöl-
breyttar lausnir
fyrir stór og smá
heimili eða stök
herbergi. Hér finna allir eitthvað
við sitt hæfi, hvort sem um er að
ræða ljós fyrir stofuna, svefn-
herbergið, eldhúsið eða snyrt-
inguna. BYKO hefur alla tíð lagt
mikla áherslu á góð gæði og því
má alltaf finna hentugar og fal-
legar lausnir á góðu verði í versl-
unum okkar.“
Hægt er að kaupa ljós í öllum
verslunum BYKO en verslunin í
Breiddinni er þó sú langstærsta.
„Ljósadeildin í Breiddinni er í
raun ein af stærstu ljósabúðum
landsins og úrvalið er svo sann-
arlega mikið. Hér, eins og raun-
ar í öðrum verslunum okkar,
starfar reynslumikið fagfólk sem
tekur vel á móti viðskiptavinum
og aðstoðar eftir bestu þörfum.
Þá skiptir engu máli hvort verið
sé að kaupa eitt ljós eða ljós fyrir
heila íbúð.“
Úrval útiljósa mikið
Stór hluti þeirra ljósa sem BYKO
selur er frá norsku fyrirtæki sem
heitir Scanlight. „Þetta er gæða-
fyrirtæki sem framleiðir fjölbreytt
úrval ljósa. Við höfum selt ljós frá
því í mörg ár við mikla ánægju við-
skiptavina. Einnig bjóðum við upp
á úrval ljósa frá öðrum erlendum
framleiðendum. Svo er líka gaman
að minnast á að við seljum inn-
lenda framleiðslu en um er að
ræða ljós frá Stansverki, sem fram-
leiðir úrval af inni- og útiljósum.“
Auk mikils úrvals af ljósum selur
BYKO einnig gott úrval af ljósa-
perum í allar gerðir ljósa og staka
lampaskerma.
Mikið framboð útiljósa í öllum
stærðum og gerðum er einnig í
boði í verslunum BYKO. „Hér má
finna útiljós fyrir veggi, undir
þakskegg, á staura og í garðinn.
Breiddin er mikil en eins og með
inniljósin er aðaláherslan lögð
á gæði á sanngjörnu verði. Við
bjóðum upp á nýtískulega hönn-
un í bland við eldri hönnun enda
eru þarfir viðskiptavina okkar
ólíkar.“
Á www.byko.is má finna helstu
upplýsingar um flest inni- og úti-
ljós sem BYKO býður upp á. „Þar
geta viðskiptavinir skoðað sig
um áður en þeir koma í verslanir
okkar þar sem þeir hitta fyrir fag-
menn okkar og klára kaupin.“
Mjög gott úrval og frábær þjónusta
Ein stærsta ljósabúð landsins er ljósadeild BYKO í Breiddinni. Verslanir BYKO bjóða upp á mikið úrval inni- og útiljósa en lögð er
mikil áhersla á gæði og sanngjarnt verð. Starfsmenn ljósadeilda eru reynslumiklir og veita viðskiptavinum persónulega þjónustu.
Útiljós af ýmsum gerðum. MYND/VALLI
Björt og skær loftljós í ýmsum stærðum.
MYND/VALLI Falleg íslensk hönnun frá Stansverki. MYND/VALLIBarnaherbergin eru oft litrík. MYND/VALLI
Eyrún Friðjóns-
dóttir, útstillinga-
stjóri BYKO.
MYND/VALLI
Ljósadeildir BYKO bjóða upp á fjölbreyttar lausnir fyrir heimili og fyrirtæki landsins. MYND/VALLI
Kastarar passa vel inn í flest rými. MYND/VALLI