Fréttablaðið - 15.09.2014, Side 16
FÓLK|HEIMILI
Mig langaði til að sjá hvernig salt væri búið til og skoðaði saltverk-
smiðjuna á Reykhólum, Norður-
salt. Meðan eigendurnir út-
skýrðu fyrir mér vinnsluferlið rak
ég augun í litla fötu úti í horni
og spurði hvað væri í henni. Það
var afgangssalt sem ekki er nýtt
í framleiðsluna þar sem það er
ríkara af magnesíum og því öðru-
vísi á bragðið. Ég ákvað að finna
þessu afgangssalti tilgang.“
Þannig lýsir Thelma Hrund
Benediktsdóttir vöruhönnuður
upphafinu á lokaverkefni sínu
frá Listaháskóla Íslands en hún
útskrifaðist síðastliðið vor. Loka-
verkefnið varð húðsápa úr nátt-
úrulegum efnum sem nánast öll
falla til við aðra framleiðslu.
„Ferlið var í raun tilviljunar-
kennt og eitt leiddi af öðru en þó
liggur mikil rannsókn að baki. Ég
var ekki alltaf að hugsa um sápu
sem lokaafurð, það er margt ann-
að hægt að gera við salt en við
saltframleiðsluna á Reyk hólum
er heita vatnið sem kemur frá
þörungaræktinni við hliðina nýtt
og þegar búið er að nýta vatnið í
saltframleiðsluna er það fimmtíu
gráðu heitt en það er akkúrat hit-
inn sem þarf til að búa til sápu. Í
sápugerð þarf einnig vítissóda en
hann get ég búið til úr salti. Þetta
vann því allt saman.“
Sápan inniheldur tólg, þör-
unga, salt og repjuolíu en repju-
olían er eina efnið sem ekki er frá
Reykhólum.
„Ég nota bæði harða og mjúka
fitu í sápuna, repjuolíu sem
kemur frá Þorvaldseyri fyrir
austan. Ég er að vinna í því að
finna leið til að sleppa olíunni
og geta þannig notað hráefni
sem öll koma frá Reykhólum. Í
framhaldinu væri draumurinn
að sápan yrði aukaframleiðslu-
vara í saltverksmiðjunni þar
sem hægt væri að nýta hluti sem
eru til staðar en ekki nýttir sem
stendur,“ útskýrir Thelma.
SÁPA ÚR SALTI
HEIMILI Thelma Hrund Benediktsdóttir bjó til sápu úr hráefnum sem urðu
afgangs við aðra framleiðslu á Reykhólum, sem lokaverkefni sitt frá LHÍ.
VERKSMIÐJA Kveikjan að lokaverkefni
Thelmu var heimsókn í saltverksmiðjuna
á Reykhólum. LOKAVERKEFNI Thelma sýndi framleiðsluferlið við sápugerðina á útskriftarsýningunni
í vor og stillti meðal annars hráefnunum upp á borð.
SÁPA Thelma nýtti afgangshráefni sem féll til við aðra framleiðslu í sápugerðina.
VÖRUHÖNNUÐUR Thelma Hrund Benediktsdóttir bjó til sápu úr salti sem lokaverk-
efni frá LHÍ. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI
Sýningin Ertu tilbúin frú forseti?
þar sem sýndur er fatnaður og
fylgihlutir frú Vigdísar Finn-
bogadóttur fyrrverandi forseta
Íslands, hefur verið framlengd
fram yfir næstu áramót. Sýn ingin
í Hönnunarsafni Íslands hefur
notið mikilla vinsælda og sam-
kvæmt frétt á vef safnsins hefur
mikil aukning orðið á því að
vinnustaða- eða vinahópar taki
sig saman og panti sér leiðsögn.
Þá hafa börn frá leikskólaaldri
og upp úr fengið sérsniðnar
leiðsagnir þar sem saga Vigdísar
er sögð og farið yfir hefðir og
reglur er tengjast klæðaburði
með skemmtilegu ívafi.
Síðar í haust verður boðið
upp á fyrirlestra og leiðsagnir
sérfræðinga og verður það
auglýst sérstaklega á heimasíðu
safnsins www.honnunarsafn.is
og á Facebook.
FÖT VIGDÍSAR
ÁFRAM TIL SÝNIS
ERTU TILBÚIN FORSETI? Sýning á fatnaði og fylgihlutum Vigdísar Finnbogadóttur, fyrr-
verandi forseta Íslands, hefur verið framlengd í Hönnunarsafni Íslands fram yfir áramót.
GLÆSIKJÓLAR Af nægu er að taka á
sýningunni. MYND/GVA
Höfundur metsölubókarinnar
Náðarstund (Burial Rites), hin
ástralska Hannah Kent, verður
gestur á baðstofukvöldi Forlagsins
á Café Rosenberg í kvöld kl. 20.00.
Komið og hittið þessa mögnuðu
ungu konu sem hefur breytt sýn
okkar á eitt alræmdasta sakamál
Íslandssögunnar!
„Ótrúleg bók sem ég sat
límdur við ...Vatnsdalurinn
verður aldrei samur.“
HALLGRÍMUR HELGASON
SJÁUMST!
FORLAGIÐ
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu