Fréttablaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 10.10.2014, Blaðsíða 27
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 10. OKTÓBER 2014 • 5 AUGLÝSING: ICEPHARMA KYNNIR „Píkan er sjálfhreinsandi og þarf hvorki klór né önnur ertandi hreinsi- efni þótt hún sé á blæðingum. Mörgum konum hættir til að hugsa of vel um píkuna sína með lyktar- eyðandi efnum og ertandi sápum sem eyðileggja náttúrulega sýkla- flóru og geta komið af stað vítahring sveppasýkinga. Við þurfum því að tala um píkuna á nýjan hátt og um hvað sé eðlilegt í þeim efnum.“ Þetta segir Sigga Dögg kyn- fræðingur sem notað hefur Natra- care í áraraðir. „Natracare er betra fyrir líkama okkar og umhverfið. Þetta tvennt spilar saman því allar viljum við skilja eftir okkur lítil umhverfis- fótspor. Mörg önnur dömubindi innihalda plast, klór og óæskileg auka- og rotvarnarefni sem alið geta á allskyns veseni og sýking- um. Með Natracare er það vanda- mál úr sögunni því Natracare-tapp- ar og -bindi eru klórlaus, gerð úr lífrænt vottaðri bómull og náttúru- legum efnum.“ Sigga Dögg segir brýnt að for- eldrar stýri dætrum sínum þegar þær taka sín fyrstu skref í notkun dömubinda. „Miklu skiptir hvað notað er frá upphafi því við erum að tala um langtímanotkun á dömubindum og töppum í hverjum einasta mánuði í áratugi. Við þurfum að kynna fyrir þeim heilnæmustu og umhverfis- vænstu vörurnar og kenna þeim að takmarka notkun rotvarnarefna í öllu því vöruvali sem nota þarf fyrir líkamann. Dömubindi og tappar liggja þétt að þeirra viðkvæmasta svæði sem er beintengt blóðrásinni og píkan þar sérstaklega viðkvæm þar sem óæskileg efni eiga greiða leið inn í líkamann.“ Fagurt tákn blæðinga Sigga Dögg segir blæðingar kvenna vera viðkvæmt umræðuefni. „Það á sér bæði sögulegar og trúarlegar rætur. Í sumum trúarrit- um eru textar um að konur á blæð- ingum séu óhreinar og megi ekki gera þetta og hitt. Blæðingar hafa því verið nánast bannhelgar og af þeim sökum haldist sem kvenna- mál. Það er auðvitað einkennilegt þar sem helmingur mannkyns eru konur með píkur og snerta mann- kyn allt með einum eða öðrum hætti.“ Fyrir tíma nútíma dömubinda notuðu konur ýmsar útfærslur af heimagerðum bindum. „Þá notuðust konur við tusk- ur eða bleiur sem þær festu með beltum og voru svo þvegnar. Þótt það hljómi ekki geðslega nú er það þó miklu heilsusamlegra fyrir pík- una heldur en efnafull dömubindi með plasti og klór.“ Hún segir blæðingar vera fagurt tákn um mánaðarlega hreinsun og hversu megnugur kvenlíkaminn er. „Í sumum menningarsamfélög- um eru blæðingar fagnaðarefni og þar haldið upp á hið mánaðar- lega en í vestrænum samfélögum er talin ástæða til að fara í felur á blæðingum. Ekki þykir viðeigandi að túrtappi sjáist í hendi á leið inn á bað, heldur þarf að fela hann í lófanum og helst hvísla um ástand- ið. Þá er þrálát sú mýta að stelp- ur séu snælduóðar í skapi á túr og því margar neikvæðar tengingar um blæðingar í stað þess að líta á þær sem heillandi lið í því að lík- aminn fullorðnist.“ Natracare fyrir náttúruna Margir kvensjúkdómalæknar ráð- leggja konum með viðkvæma húð að nota Natracare-bindi til að draga úr snertingu við klórbleikjuð efni og vörur sem innihalda gervi- efni, latex og rakadræg efni úr jarð- olíu. Notkun á bindum og töppum úr lífrænni bómull minnka líkur á sýkingum eða eitrun sem gerast á ári hverju. „Við þurfum að leyfa píkunni að sjá um sig sjálf. Þannig er aldrei mælt með því að skola inn í leg- göng og alltaf þarf að passa upp á að skipta um túrtappa. Elleg- ar súrna þeir og geta aukið hættu á alvarlegum sýkingum. Þá hefur gleymst að fræða stúlkur og konur um að túrtappar fáist í mismunandi stærðum eftir magni blóðs,“ segir Sigga Dögg. Hún finnur mikinn mun á því að nota Natracare-bindi og -tappa. „Það hafði mikil áhrif á mig að lesa um öll þau rotvarnar- og auka- efni sem mörg dömubindi innihalda og því fór ég að lesa utan á pakkn- ingarnar þeirra, rétt eins og ég les mér til um innihald matvæla. Öll þessi aukaefni eru ekki boðleg okkur konum og þegar búið er að baða sig og farða á morgnana, og auk þess bæta við dömubindi með klór og plasti, erum við farnar að ofbjóða líkama okkar með stórum pakka af skaðlegri efnasamsuðu sem drepur eðlilega sýklaflóru. Með Natracare veljum við rétt og getum á sama tíma treyst því að reisa ekki heilu Hörpu-hallirnar af dömubindaúrgangi. Allar vörur Natracare eru yfir 99 prósent vist- vænar, án plasts, ilm- og bleikiefna og innihalda lífræna bómull sem brotnar eðlilega niður í náttúrunni og verða að frjósamri moltu. Við það bætist svo næringarrík efna- samsetning tíðablóðs fyrir jarðveg- inn.“ Allar upplýsingar um Natra care er að finna á natracare.is. HUGSAR ÞÚ VEL UM ÞIG OG ÞÍNA? Að þessu spyr Natracare og vísar í heilagan einkastað kvenna. Kynfræðingurinn Sigga Dögg notar dömubindi og tappa frá Natracare og segir staðreynd að flestar konur hugsi einum of vel um píkuna sína. Sigga Dögg kynfræðingur segir tíma til kominn að tala um píkuna á nýjan hátt. Hún mælir með Natracare fyrir líkamann og umhverfið. MYND/PJETUR Ár hvert fleygja konur milljörð- um dömubinda með plasti í. Flest þessara dömubinda eru gerð úr plasti með meira en 90 pró- sent hráolíu sem heldur áfram að menga jörðina um ókomin ár. Yfirleitt endar plastúrgangur sem landfylling og í heimshöfunum og veldur þannig óafturkræfri sjón- mengun og skaða á lífríki sjávar og að endingu fæðukeðjunni. Með því að velja Natracare hafnar þú notkun plastefna úr hráolíu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.