Fréttablaðið - 10.10.2014, Side 62
10. október 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 38
Í kvöld mun breski raftónlistarmað-
urinn Pye Corner Audio troða upp á
Paloma Bar ásamt Good Moon Deer
og DEEP PEAK. „Þetta er hugmynd
Martins Jenkins, sem hefur skapað
einhverja áhrifaríkustu raftónlist
seinni ára,“ segir Bob Cluness tón-
listarblaðamaður.
„Pye Corner Audio er byggt á
þeirri hugmynd að tónlistin sé end-
urútgáfa á gömlum snældum sem
búnar voru til af dularfullum ein-
staklingi sem kallaði sig The Head
Technician. Martin lýsir þessu sem
leið til að firra sig ábyrgð á tónlist-
inni,“ segir Bob en tónlistin er undir
áhrifum frá hinni nostalgísku fagur-
fræði í kringum VHS-spólur.
„Fólk á sjöunda og áttunda ára-
tugnum hugsaði mjög mikið um
framtíðina. Þetta skín í gegnum tón-
list og sjónvarpsþætti áratugarins,
með framsýnni raftónlist eins og
Vangelis og radíó-
fónískri vinnu-
stofu BBC, sem
gerði tónlist fyrir
vísindaskáldskap
eins og Dr. Who.
Tilraunakennd
og stórskrítin tón-
list var sem sagt
notuð í meginstraumssjónvarpi,
slíkt þú upplifir maður ekki svo
glatt í dag,“ segir Bob. Hugmynd-
in í kringum Pye Corner Audio er
því eiginlega hugmynd um fram-
tíð sem hefði getað orðið. „Þetta
hljómar eins og ef Delia Derby-
shire hefði haft meiri áhrif á teknó
og diskó heldur en Kraftwerk. Tón-
listin skírskotar aftur til þessar-
ar sérstöku tegundar módernisma
sem lét sig dreyma um framtíðina
og fljúgandi bíla.“
thorduringi@frettabladid.is
Rísandi stjarna í raft ónlist á landinu
Pye Corner Audio spilar hér um helgina. Með áhrifaríkari raft ónlist samtímans.
NOSTALGÍSK FAGURFRÆÐI Pye Corner
Audio er dulræn raftónlist.
www.gardabaer.is
Tækni- og umhverfissvið
Skipulagsnefnd Garðabæjar hefur vísað
tillögu að deiliskipulagi 2.áfanga norðurhluta
Urriðaholts til forkynningar í samræmi við
3.mgr.40.greinar Skipulagslaga nr.123/2010.
Tillagan gerir ráð fyrir 161-181 íbúðar-
einingum í blandaðri byggð. Þar af verða um
121-141 íbúð í fjölbýli, 24 í raðhúsum, 12 í
parhúsum og 4 í einbýlishúsum. Leitast er við
að skapa fjölbreytni í húsgerðum og lifandi
tengsl bygginga og göturýma. Hæð og
fyrirkomulag húsa leitast við að taka mið af
skjólmyndum eftir því sem hægt er og að
solar og útsýnis njóti sem víðast.
Forkynning stendur til 29.október. Meðan á
forkynningu stendur er tillagan aðgengileg á
heimasíðu Garðabæjar, gardabaer.is og á
heimasíðu Urriðaholts, urridaholt.is. Þeim
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er
gefinn kostur á því að koma með ábendingar
sem verða teknar til umfjöllunar við
endanlega mótun tillögunnar. Skal þeim
skilað skriflega til skipulagstjóra Garðabæjar
fyrir 29.október.
Almennur kynningarfundur verður
haldinn þriðjudaginn 14.október kl.
16.00 í Flataskóla.
Á fundunum verður tillagan kynnt,
spurningum svarað og opnað fyrir umræður.
Á fundinum verða einnig kynntar tillögur að
breytingum á deiliskipulagi Vesturhluta
Urriðaholts sem nær til Mosagötu.
Skipulagsstjóri Garðabæjar
URRIÐAHOLT, NORÐUR-
HLUTI 2.ÁFANGI
FORKYNNING DEILISKIPULAGS-
TILLÖGU
Ábendingahnappinn má finna á
www.barnaheill.is
Það er platan II með Unknown
Mortal Orchestra.
Karin Sveinsdóttir, söngkona Young Karin
FÖSTUDAGSPLATAN
„Ég tók meistaramánaðartiltekt í
skápnum og þetta er afrakstur þess,“
segir Margrét Erla Maack, en hún
verður með fatamarkað á laugar-
daginn ásamt Berglindi Pétursdóttur,
sem er betur þekkt sem bloggarinn
Berglind festival, Steinþóri, mann-
inum hennar, og Birni Teitssyni.
„Ég ætla að selja föt sem hafa verið
í uppáhaldi lengi. Mikið af þessu eru
föt sem ég notaði í sjónvarpinu og
kominn tími á að einhver annar en
ég sjáist í þeim,“ segir Margrét, en
meðal þess sem hún ætlar að selja er
kjóll sem hún var í á Edduverðlaun-
unum 2012. „Ég verð líka með mikið
af búningum og grínfötum sem ég er
hætt að nota, svo allir verðandi grín-
arar eru velkomnir,“ segir Margrét.
„Við ætlum svo að skiptast á að plötu-
snúðast og erum mikið að pæla í að
skiptast á að vera búðarfólk, það gæti
verið fyndið,“ segir Margrét.
„Við erum bara að fara að selja
ógeðslega mikið af fötum og hlutum.
Við Steinþór vorum að flytja svo við
erum með fullt af dóti,“ segir Berg-
lind Pétursdóttir. „Það verður fullt
af ónotuðum hipsterafötum, sumt
enn með verðmiðanum á. Vínilplöt-
ur og DVD á dúndurverði, glænýir
gelluskór, loðfeldir, glimmerbuxur
og gæjaleg vesti,“ segir Berglind.
„Björn ætlar svo að selja allar sínar
veraldlegu eigur, því hann segist
aðeins hafa morgundaginn til þess að
lifa fyrir og vonina um að einn dag-
inn muni hann bragða franskan ost.“
Markaðurinn verður eins og áður
sagði á laugardaginn á Bravó, sem
er á horni Klapparstígs og Laugavegs
frá klukkan 13-17. - asi
Glimmerbuxur og hipsteraföt
Fallegasti og gáfaðasti vinahópurinn í Reykjavík, að eigin sögn, verður með markað á Bravó á laugardag.
SELUR UPPÁHALDSFÖTIN Margrét Erla
Maack verður með úrval af fallegum
flíkum.
„Þetta er eins og pílagrímsferð
fyrir mig,“ segir bandaríski leik-
stjórinn Josh Fox sem staddur er
hér á landi með fríðu föruneyti
Yoko Ono, sem kveikti á friðarsúl-
unni í gær. „Ég kem aftur á hverju
ári af því að þetta er stórkostleg
leið til að fagna friði.“ Josh hlaut
friðarverðlaunin árið 2010 fyrir
heimildarmynd sína Gasland, sem
fjallar um neikvæð áhrif olíubor-
ana á samfélög í Bandaríkjunum
og var tilnefnd til Óskarsverð-
launa.
Fox vinnur nú að annarri heim-
ildarmynd sem fjallar um lofts-
lagsbreytingar. Leikstjórinn mun
sýna brot úr myndinni sinni í Bíói
Paradís á morgun en hún er ennþá
í vinnslu. Eftir sýninguna verða
umræður. „Loftslagsbreytingar
eru eitthvað sem við erum að upp-
lifa alls staðar í heiminum – meiri
sjávarhæð, meiri veðurhamfar-
ir, súrnun sjávar og eyðilegging
umhverfisins sem við stólum á. Á
Íslandi er ótrúleg hefð fyrir friði
og endurnýjanlegri orku þannig
að það er frábær staður til að sýna
verkið í vinnslu.“
Geimferðastofnun Bandaríkj-
anna, NASA, segir 97% loftslags-
vísindamanna sammála um að
loftslagsbreytingar séu líklega af
manna völdum en samt er þetta
mikið deilumál í heimalandi Josh,
Bandaríkjunum. „Það er olíu- og
gasiðnaðurinn sem hefur verið
að búa til og dreifa röngum upp-
lýsingum um þetta áratugum
saman. Það líkist tóbaksiðnaðin-
um á þann hátt, að tóbaksfyrir-
tæki neituðu áratugum saman að
sígarettur yllu heilsuvandamál-
um. Það sem er virkilega illt er
að þessi fyrirtæki vita að sígar-
ettur valda heilsuvandamálum
líkt og olíu- og gasfyrirtæki vita
að þau valda loftslagsbreyting-
um. Strategía þeirra er að skapa
efa í huga fólks.“
„Það er efinn sem lamar menn.
Ef þú ert ekki viss þá læturðu
ekki til skarar skríða. Við, sem
teljum okkur siðmenntuð, erum
viss, niðurstöðurnar eru mjög
skýrar og allir vita sannleikann.
En olíu- og gasiðnaðurinn reyn-
ir að villa um fyrir fólki þar sem
menn vilja halda í völd sín,“ segir
Josh. „Þetta er mikið hættu-
ástand sem við erum stödd í.“
Josh segir að heimildarmynd-
ir hans séu hvatning til aðgerða.
„Gasland og Gasland 2 fengu fólk
til að leggjast í aðgerðir og nú
eru að rísa upp hreyfingar gegn
vökvabroti (e. fracking) víðs
vegar um heiminn. Ég vona að
nýja myndin mín geti bæði hvatt
fólk til aðgerða en einnig skemmt
þeim, þetta er ekki svartsýn
mynd. Þetta er þunglyndislegt
umræðuefni en myndin er full af
von af því að hún fjallar um fólk
í krísu og sýnir hvernig okkar
bestu eiginleikar geta birst þegar
þannig stendur á.“
thorduringi@frettabladid.is
Hvatning til aðgerða
Josh Fox er staddur á landinu. Sýnir brot úr nýju myndinni sinni í Bíói Paradís í kvöld.
Myndin er full af von af því að hún fjallar um fólk
í krísu og sýnir hvernig okkar bestu eiginleikar geta
komið út í miðjunni á krísu.
Josh Fox, leikstjóri.
BOB CLUNESS
PÍLAGRÍMSFERÐ Fox
kemur á hverju ári vegna
friðarverðlaunanna.