Fréttablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 2
12. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 2
Guðni, ertu þá hættur á spen-
anum?
„Já, enda fullur af orku af rjóma,
smjöri og skyri.“
Guðni Ágústsson lætur af störfum sem
framkvæmdastjóri Samtaka afurðastöðva í
mjólkuriðnaði (SAM) í næstu viku.
AKUREYRI Þorvaldur Helgi Auðuns-
son, slökkviliðsstjóri á Akureyri,
hefur lagt inn kvörtun til Vinnu-
eftirlitsins vegna meints eineltis
sem hann telur sig verða fyrir frá
öðrum starfsmönnum Akureyrar-
bæjar. Meintir gerendur í eineltis-
málinu eru stjórnendur í Ráðhúsi
Akureyrarbæjar; bæjartæknifræð-
ingur, starfsmannastjóri bæjarins
og bæjarlögmaður.
„Ég get lítið tjáð mig um málið
annað en að slökkviliðsstjóri hefur
sent inn kvörtun til Vinnueftirlits-
ins vegna meints eineltis. Ég hef
samt sem áður ekki fengið formlega
kvörtun í hendurnar,“ segir Eirík-
ur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri
á Akureyri. „Nú mun þetta mál fara
í sama farveg og sambærileg mál
sem berast til sveitarfélagsins.“
Málið er litið alvarlegum augum
innan bæjarkerfisins og mun nú
fara af stað ferli til þess að leysa
úr því. Stutt er síðan núverandi
slökkviliðsstjóri tók við störfum þar
sem fyrrverandi slökkviliðsstjóra
var vikið úr starfi vegna eineltis-
mála. Líklegast verður farin önnur
leið að því að leysa mál Þorvaldar
Helga, þar sem bæði bæjarlögmað-
ur og starfsmannastjóri bæjarins
sitja í eineltisteymi Akureyrarkaup-
staðar, sem á að taka á málum sem
þessum og vinna úr þeim.
Sóley Björk Stefánsdóttir, bæjar-
fulltrúi VG á Akureyri, segir þá
stöðu sem upp er komin ekki boð-
lega og alvarlegt að sumir íbúar
finni fyrir óöryggi vegna síendur-
tekinna eineltismála í slökkviliðinu.
„Nú þarf að grípa til aðgerða sem
ekki hafa verið notaðar áður. Það er
ekki í lagi að eineltismál komi upp
í slökkviliðinu svona ítrekað. Ég tel
það vera skyldu mína sem bæjar-
fulltrúa að ganga úr skugga um það
að slökkvilið bæjarins sé starfhæft
og að íbúar finni ekki fyrir óöryggi.
Íbúar verða að sjá að eitthvað verði
gert í þessu máli,“ segir Sóley.
Logi Már Einarsson er oddviti
Samfylkingar í meirihluta Akureyr-
arbæjar. Logi segir að fundað verði
um málið í dag. „Mér þykir ekki
ólíklegt að bæjarstjóri kynni málið
fyrir okkur. Ég þekki ekki efnislega
til málsins og get ekki tjáð mig um
það í sjálfu sér,“ segir Logi. „Hins
vegar er ljóst að það eru viðvarandi
vandamál á sama vinnustaðnum í ár
og áratugi og árekstrar milli starfs-
manna, þá hljóta menn að þurfa að
skoða starfsemina frá grunni.“
sveinn@frettabladid.is
Slökkviliðsstjóri sakar
yfirmenn um einelti
Kvörtun hefir borist frá slökkviliðsstjóra um einelti þriggja yfirstjórnenda Akur-
eyrarbæjar. Tveir þeirra sitja í eineltisteymi bæjarins. Slökkvilið Akureyrar hefur í
áraraðir glímt við eineltismál innan sinna raða. Akureyringar finna fyrir óöryggi.
AKUREYRI Slökkviliðið á Akureyri sér bæði um brunaútköll og sjúkraflutninga í
lofti. Eineltismál hafa ítrekað komið upp innan liðsins en nú beinist eineltiskvört-
unin að stjórnendum í Ráðhúsi bæjarins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Nú mun
þetta mál fara
í sama farveg
og sambærileg
mál sem berast
til sveitar-
félagsins.
Eiríkur Björn Björgvinsson,
bæjarstjóri.
Það er
ekki í lagi að
eineltismál
komi upp
í slökkvilið-
inu svona
ítrekað.
Sóley Björk Stefánsdóttir,
bæjarfulltrúi VG.
LAUNAMÁL „Það er réttlætismál
á hverjum tíma að því sem er til
skiptanna í samfélaginu á hverj-
um tíma sé deilt upp með rétt-
mætum hætti,“ segir í kröfugerð
Flóafélaganna.
Meðal krafna eru kjarasamn-
ingar til eins árs, að lágmarks-
hækkun í launatöflu verði 35
þúsund krónur og að tveir neðstu
launaflokkarnir verði felldir
niður, þó þannig að lægsta upp-
hafstalan verði 240.000 krónur.
Kröfugerðin er sögð byggjast
á kröfu um leiðréttingu launa og
jafnræði félagsmanna stéttar-
félaga á vinnumarkaði. - ie
Kröfur Flóafélaganna:
Lágmarkslaun
240 þúsund
SPURNING DAGSINS
Kringlan | 588 2300
Kjóll
6.495 kr.
NÝJAR VÖRUR
KONGÓ Á þriðjudaginn kom hópur skrautbúinna manna saman í Kins-
hasa, höfuðborg Austur-Kongó. Hópurinn gekk um götur bæjarins alla
leið að Gombe-kirkjugarðinum þar sem hann dansaði á gröf helsta átrún-
aðargoðs síns.
Félagsskapurinn nefnist á frönsku Société des Ambianceurs et des Per-
sonnes Élégantes, sem útleggjast mætti Samtök fjörkálfa og glæsifólks.
Stofnandi samtakanna hét Stervos Niarcos Ngashie. Hann lést 10.
febrúar árið 1995 í fangelsi í Frakklandi þar sem hann afplánaði dóm
fyrir fíkniefnabrot. Hann er grafinn í Kinshasa og ár hvert koma félags-
menn þar saman á dánardegi hans og dansa á gröfunum. - gb
Árlegur viðburður í kirkjugarði í Kinshasa vekur athygli:
Spjátrungar dansa á gröfunum
HÁTÍÐARDAGUR Á hverju ári koma spjátrungarnir saman á dánardægri helsta
átrúnaðargoðs síns. NORDICPHOTOS/AFP
ÍTALÍA Undanfarna daga hafa að minnsta
kosti þrjú hundruð manns farist á Mið-
jarðarhafinu á leiðinni frá Norður-Afr-
íku yfir til Evrópu. Fólkið var á opnum
gúmbjörgunarbátum, hlöðnum fólki í
erfiðu veðri og miklum kulda.
Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóð-
anna skýrði fyrst frá því að 29 manns
hið minnsta hefðu farist á einum slíkum
báti, en alls höfðu 105 manns reynt að
komast með þeim báti yfir til Evrópu.
Í gær fékkst svo staðfesting frá
ítölsku strandgæslunni og flóttafólki,
sem komst lifandi til ítölsku eyjunnar
Lampedusa, á því að ekki færri en 300
manns væri saknað af tveimur öðrum
sams konar bátum sem fundust á mánu-
daginn. Loks fréttist af því að fjórði bát-
urinn hefði verið á sömu leið en væri nú
saknað.
„Þetta er gríðarmikill harmleikur og
minnir okkur á að fleiri líf geta tapast
ef fólk sem leitar eftir öryggi er upp á
náð og miskunn hafsins komið,“ segir
Vinc ent Cochetel, yfirmaður Evrópu-
skrifstofu Flóttamannastofnunarinnar.
„Evrópa hefur ekki efni á því að gera of
lítið of seint.“ - gb
Að minnsta kosti fjórir bátar hafa lent í erfiðleikum á Miðjarðarhafinu undanfarna daga:
Yfir þrjú hundruð flóttamenn hafa farist
KOMNIR TIL
LAMP EDUSA
Ítalska
strandgæslan
flutti fólk,
sem tókst
að bjarga,
til hafnar
á eyjunni
Lampedusa.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
BELGÍA Janis Varúfakis, fjármála-
ráðherra grísku stjórnarinnar,
hélt í gær á fund með evrópskum
starfsbræðrum sínum í Brussel til
að útlista fyrir þeim hvað Grikkir
hyggjast fyrir.
Gríska stjórnin, sem er nýtek-
in við völdum, segir ekki koma
til greina að skera áfram niður
ríkisútgjöld til að greiða niður
skuldir ríkisins. Ráðamenn evru-
ríkjanna, Evrópska seðlabankans
og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hafa
tekið dræmt í þessi áform. Varú-
fakis heldur hins vegar fast við
það að Grikkir muni ekki yfirgefa
evru svæðið. - gb
Varúfakis í Brussel:
Kynnti áform
stjórnar sinnar
HVÍTA-RÚSSLAND Vladimír Pútín
Rússlandsforseti og Petró Porosj-
enkó Úkraínuforseti tókust stutt-
lega í hendur síðdegis í gær við
upphaf leiðtogafundar í Minsk,
sem Angela Merkel Þýskalands-
kanslari og François Hollande
Frakklandsforseti tóku einnig
þátt í.
Að sögn Reuters-fréttastofunn-
ar var reiknað með að þeir myndu
að loknum fundi senda frá sér
yfirlýsingu þar sem lýst væri yfir
stuðningi við fullveldi Úkraínu.
Þá var einnig reiknað með yfirlýs-
ingu frá samstarfshópi Rússlands,
Úkraínu og Öryggis- og samvinnu-
stofnunar Evrópu, þar sem ítrek-
aður væri stuðningur við friðar-
samkomulag frá í september.
Þrátt fyrir það friðarsamkomu-
lag hafa harðir bardagar geisað í
Úkraínu síðustu vikur og mánuði,
og hafa átökin harðnað verulega
nú síðustu dagana fyrir fundinn í
Minsk.
Takmarkaðar vonir voru bundn-
ar við leiðtogafundinn fyrirfram,
og ekki var að sjá annað en að and-
aði heldur köldu á milli Pútíns og
Porosjenkós þegar þeir mættu til
fundarins. - gb
Leiðtogar Rússlands, Úkraínu, Frakklands og Þýskalands hittust í Minsk:
Lýsa stuðningi við fullveldi
LEIÐTOGARNIR
FJÓRIR Vladimír
Pútín, Angela
Merkel, François
Hollande og
Petró Porosjenkó.
FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
1
1
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
6
-E
7
A
0
1
3
C
6
-E
6
6
4
1
3
C
6
-E
5
2
8
1
3
C
6
-E
3
E
C
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K