Fréttablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 4
12. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 4 ÁRÉTTING Bankastjóri Landsbankans var rang- nefndur í Markaðnum í gær. Hann heitir Steinþór Pálsson. Fréttablaðið biðst velvirðingar á mistökunum. 1.355 bækur komu út á pappír hér á landi árið 2012. ÍÞRÓTTIR „Nú er svo komið að Keilisvöllur hentar ekki til keppnishalds á evrópskan mæli- kvarða þar sem hann stenst ekki lengdarkröfur. Því þarf að kippa í liðinn sem fyrst,“ segir í bréfi Golfklúbbs Keilis sem vill við- ræður við Hafnarfjarðarbæ um uppbyggingu vallarins svo hann standist lágmarkskröfur. „Teljum við óumdeilanlegt að umgjörð af því tagi auki líkurnar á og flýti fyrir því að við Hafnfirðingar eignumst keppendur á efsta stigi íþróttarinnar.“ - gar Hafnfirðingar lengja golfvöll: Stefna á hástig íþróttarinnar KEILISVÖLLUR Of stuttur fyrir Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL UMHVERFISMÁL Sigrún Magnúsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur lagt fram frumvarp um landsáætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöð- um. Frumvarpið er sett fram til að tak- ast á skipulegan hátt við vaxandi ferða- mennsku og álag hennar á náttúruna. Frumvarpið felur í sér að móta stefnu, samræma og forgangsraða tillögum um uppbyggingu og viðhald ferðamanns- væða, ferðamannastaða og ferðamanna- leiða á Íslandi með náttúruvernd og sjálfbærni að leiðarljósi. Gert er ráð fyrir að áætlunin verði lögð fyrir Alþingi í formi þings álykt- unar tillögu á þriggja ára fresti. Sam- hliða landáætluninni verða unnar þriggja ára verkefnaáætlanir sem kveða nánar á um forgangsverkefni hverju sinni. Frumvarpið markar tímamót að því leyti að landsáætlunin verður sú fyrsta sinnar tegundar sem ætlað er að marka stefnu um uppbyggingu innviða á ferða- mannastöðum til verndar náttúru til lengri tíma. Frumvarpið hefur verið unnið í samráði við opinberar stofnan- ir og hagsmunaaðila. - shá Umhverfisráðherra vill fyrstu landsáætlun um uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum: Vill landsáætlun um vernd náttúrunnar VIÐ GULL- FOSS Þriðja hvert ár skal dregin upp verkefna- áætlun. FRÉTTABLAÐIÐ/ PJETUR EFNAHAGSMÁL Fasteignagjöld hækka víðast hvar á þessu ári að því er fram kemur í könnun Verðlagseftir- lits Alþýðusambandsins (ASÍ) á þró- uninni hjá fimmtán fjölmennustu sveitarfélögum landsins. Ástæða hækkunarinnar er fremur sögð vegna breytinga á fasteignamati en aukinnar álagningar sveitar- félaganna. Fram kemur í greiningu Verð- lagseftirlitsins að Reykjanesbær sé eina sveitarfélagið sem hækk- að hefur hjá sér útsvar og hækkar einnig hjá sér fasteignaskatt um 67 prósent. Þar fer útsvarið úr hámark- inu, sem er 14,52 prósent, í 15,05 prósent, en vegna slæmrar fjárhags- stöðu sveitarfélagsins er lagt á 3,62 prósenta aukaálag. „Aðeins Kópavogur, Garða- bær, Seltjarnarnes og Vestmanna- eyjabær innheimta útsvar undir hámarkinu en lægsta útsvarið er 13,7 prósent í Garðabæ og á Sel- tjarnarnesi,“ segir í samantekt Verðlagseftirlits ASÍ. Fram kemur að öll gjöld hafi hækkað í Reykjavík vegna tölu- verðrar hækkunar á fasteignamati. Þá megi sjá lækkun hjá Ísafjarðar- bæ, vegna lækkunar á fasteigna- mati sem leiði til raunlækkunar á fasteignaskatti, lóðaleigu, vatns- gjaldi og holræsagjaldi. Álagningarprósenta fasteigna- skatts er óbreytt hjá níu sveitar- félögum af fimmtán. Þrjú hækka skattinn, Reykjanesbær um 67 pró- sent, Árborg um níu prósent og Fjarðabyggð um sjö prósent. „Þau sveitarfélög sem lækka álagninguna eru Garðabær um átta prósent, Sel- tjarnarnes fimm prósent og Kópa- vogur tvö prósent.“ Þá kemur fram í könnun ASÍ að allnokkrar breytingar eru á sorp- hirðu- og sorptengdum gjöldum sem ólíkt öðrum þáttum fasteignagjalds- ins eru innheimt sem föst upphæð á hverja íbúð eða fjölda tunna við hús. Hjá fjórum sveitarfélögum, Reykjanesbæ, Akraneskaupstað, Ísafjarðarbæ og Sveitarfélaginu Skagafirði, eru sorphirðugjöld óbreytt á milli ára. Öll hin hækka hjá sér gjaldskrána (eins og sjá má í töflunni hér til hliðar). „Hæstu gjöldin eru greidd í Vest- mannaeyjum 51.323 krónur á árinu 2015 en lægstu gjöldin eru greidd í Garðabæ 21.400 krónur og er það 140 prósenta verðmunur eða 29.923 krónur,“ segir í umfjöllun Verðlags- eftirlits ASÍ. olikr@frettabladid.is Fasteignagjöld hækka meðan útsvar er mestanpart óbreytt Reykjanesbær hefur hækkað hjá sér útsvar um 0,53 prósentustig umfram hámarksútsvar vegna bágrar fjár- hagsstöðu. Könnun ASÍ leiðir í ljós að breytt fasteignamat leiðir víðast hvar til hækkunar fasteignagjalda. SORPHIRÐA Í REYKJAVÍK Gjöld sem innheimt eru fyrir sorphirðu sveitarfélaganna hækka langmest á Akureyri milli 2014 og 2015, um 33,3 prósent. Í Reykjavík nam hækkunin 5,7 prósentum. Gjald- ið er nú svipað á báðum stöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Sveitarfélag Hlutfall Reykjanesbær* 15,05% Reykjavíkurborg 14,52% Hafnarfjarðarkaupstaður 14,52% Akureyrarkaupstaður 14,52% Mosfellsbær 14,52% Sveitarfélagið Árborg 14,52% Akraneskaupstaður 14,52% Fjarðabyggð 14,52% Fljótsdalshérað 14,52% Ísafjarðarbær 14,52% Sveitarfélagið Skagafjörður 14,52% Kópavogsbær 14,48% Vestmannaeyjabær 13,98% Garðabær 13,70% Seltjarnarneskaupstaður 13,70% *Reykjanesbær er eina sveitarfélagið sem hækkar útsvarið milli ára með heimild til 3,62 prósenta álags ofan á 14,52 prósenta hámarksútsvar. Heimild: ASÍ ÚTSVARSHLUTFALLIÐ Skatturinn sem sveitarfélög heimta af íbúum nefnist útsvar. Það leggst ofan á almennan tekju- skatt sem einstaklingar greiða og er reiknað út frá sama skattstofni. Einstaklingar greiða útsvar til þess sveitarfélags þar sem þeir höfðu lögheimili í lok árs. ■ Fasteignagjöld samanstanda svo af fasteignasköttum, fráveitugjaldi, vatnsgjaldi, lóðaleigu og sorphirðugjöldum. Gjöldin eru í flestum til- fellum hlutfall af fasteigna- eða lóðamati. ■ Sorphirðugjöld eru þó ávallt innheimt sem fast gjald eða eftir fjölda tunna á húsnæði. GJÖLDIN Í HNOTSKURN Sveitarfélag 2014 2015 Breyting Vestmannaeyjabær 48.397 kr. 51.323 kr. 6,0% Ísafjarðarbær 39.300 kr. 39.300 kr. 0,0% Reykjanesbær 37.435 kr. 37.435 kr. 0,0% Akureyrarkaupstaður 27.900 kr. 37.200 kr. 33,3% Sveitarfélagið Árborg 35.280 kr. 36.480 kr. 3,4% Reykavíkurborg** 33.350 kr. 35.250 kr. 5,7% Fjarðabyggð 32.000 kr. 33.990 kr. 6,2% Sveitarfélagið Skagafjörður 32.000 kr. 32.000 kr. 0,0% Akraneskaupstaður 29.820 kr. 29.820 kr. 0,0% Hafnarfjarðarkaupstaður 25.800 kr. 28.298 kr. 9,7% Kópavogsbær 22.000 kr. 24.500 kr. 11,4% Fljótsdalshérað 23.000 kr. 24.253 kr. 5,4% Mosfellsbær 23.280 kr. 24.000 kr. 3,1% Seltjarnarneskaupstaður 19.900 kr. 21.800 kr. 9,5% Garðabær 20.700 kr. 21.400 kr. 3,4% *Miðað er við 240 lítra tunnu í einbýli. **Miðað við að pappírstunna sé tæmd á 20 daga fresti og sorptunna á 10 daga fresti og ekkert skrefagjald. Heimild: ASÍ Þróun sorphirðugjalds 2014 til 2015*BANDARÍKIN Barack Obama Banda- ríkjaforseti fór í gær fram á form- legar heimildir Bandaríkjaþings til hernaðar gegn vígasveitum Íslamska ríkisins. Obama óskaði ekki eftir heimildum til hernaðar á landi en vill geta brugðist við hvar í heiminum sem er. Í ávarpi til þjóðarinnar í gær hvatti hann þingmenn til þess að sýna heim- inum að Bandaríkjamenn stæðu saman gegn þessari hættu. - gb Biður þingið um heimildir: Obama hyggst auka hernaðinn SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein- grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is SVONA ERUM VIÐ Snjallara heyrnartæki HEYRNARSTÖ‹IN Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. Ókeypis heyrnarmælingsíðan 2004 Ingibjörg Karlsdóttir veðurfréttamaður Veðurspá FROST verður á landinu í dag og á morgun en svo hlánar. Snjókoma verður austan til á morgun sem breytist í slyddu suðaustanlands annað kvöld. Á sunnudag má búast við rigningu eða slyddu sunnan og vestan til og einnig austanlands á sunnudagskvöld. -9° 4 m/s -6° 6 m/s -6° 8 m/s -2° 9 m/s Stormur með SA- ströndinni, annars strekkingur eða hvasst. Vaxandi vindur, hvasst eða stormur undir kvöld. Gildistími korta er um hádegi 3° 21° -2° 9° 18° 3° 8° 3° 3° 19° 6° 17° 13° 7° 7° 7° 5° 5° -7° 5 m/s -4° 4 m/s -7° 4 m/s -6° 6 m/s -8° 2 m/s -8° 5 m/s -14° 3 m/s -2° 3° -5° -1° -2° 4° -3° 2° -4° 1° Alicante Aþena Basel Berlín Billund Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur LAUGARDAGUR Á MORGUN 1 1 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 0 F B 0 6 4 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 3 C 6 -F B 6 0 1 3 C 6 -F A 2 4 1 3 C 6 -F 8 E 8 1 3 C 6 -F 7 A C 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 6 4 s C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.