Fréttablaðið - 12.02.2015, Side 6
12. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
s
ér
ré
tt
t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
v
er
ð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
107.900
5 nátta páskaferð
Barcelona
Hotel Catalonia Barcelona
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi
á Hotel Catalonia Barcelona Plaza.
31. mars í 5 nætur með afslætti.
31.mars - 5. apríl I 1.-5. maí
SJÁVARÚTVEGUR Mikið af loðnu
hefur borist til hafnar á Seyðis-
firði á þessari vertíð eða um
15.000 tonn. Engri loðnu var land-
að þar í fyrra.
Gunnar Sverrisson, rekstrar-
stjóri fiskimjölsverksmiðja Síld-
arvinnslunnar og verksmiðju-
stjóri á Seyðisfirði, segir í viðtali
á heimasíðu Síldarvinnslunnar að
loðnuvinnslan hafi ekki verið sam-
felld frá því að hún hófst. Tvisv-
ar hefur þurft að stoppa í stuttan
tíma vegna hráefnisskorts. Helsta
áhyggjuefnið hefur verið held-
ur stopul veiði, fyrst og fremst
vegna veðurs. „Svo er líka hegðun
loðnunnar sérkennileg. Miðað við
reynslu fyrri ára ætti hún nú að
vera að veiðast út fyrir suðaustur-
og suðurströndinni. Annars erum
við Seyðfirðingar bjartsýnir. Sól
hækkar á lofti og hún fer að skína
á okkur á Seyðisfirði 18. febrúar.“
Í Neskaupstað hefur loðnu-
vinnsla í fiskimjölsverksmiðjunni
haldist nánast samfelld að undan-
förnu þökk sé þremur norskum
bátum sem komu þangað með afla
um liðna helgi. - shá
Ólíkt síðustu vertíð hefur mikið magn loðnu borist til vinnslu á Seyðisfirði:
Seyðfirðingar fagna loðnunni
Á NESKAUPSTAÐ Samfelld vinnsla hefur
verið í Neskaupstað og flesta daga á
Seyðisfirði. MYND/KRISTÍNHÁVARÐSDÓTTIR
HÁSKÓLAR Um fjögur þúsund manns mættu þegar nokkur af helstu fyrir-
tækjum landsins kynntu starfsemi sína á hinum árlegu Framadögum
háskólanna í Háskólanum í Reykjavík í gær. Stúdentasamtökin AIESEC
skipuleggja viðburðinn.
Markmið Framadaga er að háskólanemar geti kynnt sér fyrirtæki og
aukið þannig möguleika á starfi. Eins geti fyrirtæki kynnst mögulegum
starfsmönnum.
Matthías Ólafsson, framkvæmdastjóri Framadaga, var að vonum
ánægður með hina miklu aðsókn og sagði allt hafa gengið eins og best
yrði á kosið. - ie
Fjögur þúsund manns mættu á Framadaga háskólanna:
Kynntu sér framtíðarmöguleika
MÚGUR OG MARGMENNI Mikill fjöldi var í Háskólanum í Reykjavík í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1. Hvaða fi sktegund hegðar sér undar-
lega nú við Íslandsstrendur?
2. Hversu stórt hlutfall Íslendinga er á
móti aðild að ESB?
3. Hvað heitir skattrannsóknarstjóri?
SVÖR
1. Loðna 2. Tæpur helmingur 3. Bryndís
Kristjánsdóttir
S A M G Ö N G U R S t j ó r n
Strætó bs. mun taka
ákvörðun á stjórnar-
fundi á morgun um að
hækka gjald í strætó um
nærri 15 prósent. Gert
er ráð fyrir að hækka
gjald fyrir fullorðinn úr
350 krónum í 400 krónur
og hefur verið unnið að
því innan fyrirtækisins í
nokkurn tíma. „Endanleg ákvörð-
un mun liggja fyrir á næsta
stjórnarfundi,“ segir Jóhannes
Rúnarsson, framkvæmdastjóri
Strætó.
Lítið hefur verið fjallað um
gjaldskrárhækkanirnar innan
stjórnar fyrirtækisins, ef marka
má fundargerðir. Síðast var
fundað um gjaldskrármál innan
stjórnar þann 5. nóvember og
tekin sú ákvörðun að tillögu
að nýrri gjaldskrá yrði vísað
til stjórnenda fyrirtækisins til
útfærslu.
Jóhannes segir að verið sé að
skoða gjaldskrána í heild sinni.
„Það er hugmyndin að hækka far-
gjaldið upp í 400 krónur en á móti
munum við bjóða upp á ný ung-
mennakort og veita þeim afslátt
þannig. Stefnt er að því að ný
gjaldskrá taki gildi þann 1. mars
næstkomandi.“
Halldór Halldórsson,
oddviti sjálfstæðismanna
í borginni er ósáttur við
þann lýðræðishalla sem
birtist í gjörðum byggða-
samlagsins Strætó bs.
„Ég fæ þessar frétt-
ir frá þér. Hef séð hvað
er bókað 31. október
og 5. nóvember en hef
ekki frekari upplýsing-
ar. Fundargerðirnar eru lagð-
ar fram í borgarráði en ekkert
bókað undir þeim liðum. Það er
hugsanlegt að sagt hafi verið frá
þessu í borgarráði en mig rekur
alls ekki minni til þess. Þetta
undirstrikar það sem ég hef áður
sagt að það er ákveðinn lýðræðis-
halli varðandi byggðasamlögin.
Borgar fulltrúar eru frekar langt
frá þeim, ekki síst minnihlutinn
því enginn minnihlutafulltrúi á
sæti í stjórnum byggðasamlaga,“
segir Halldór.
Gunnar Axel Axelsson, bæjar-
fulltrúi Samfylkingar í Hafnar-
firði, undrast þessa tilhög-
un Strætó bs. „Þessi ákvörðun
kemur mér mjög á óvart, enda
hefur engin umræða farið fram
um málið í sveitarstjórnum
þeirra sveitarfélaga sem eiga
aðild að Strætó bs. Ég skil ekki
þessa ákvörðun og tel hana van-
hugsaða,“ segir Gunnar Axel.
Bryndís Haraldsdóttir, formað-
ur stjórnar Strætó, vildi ekki tjá
sig um fyrirhugaðar gjaldskrár-
hækkanir þegar eftir því var leit-
að. Taldi hún óráðlegt að ræða
við blaðamann um málið áður
en stjórn hefði tekið afstöðu til
gjaldskrárhækkana.
sveinn@frettabladid.is
Strætó hækkar verð
Strætómiðinn mun kosta 400 krónur fyrir einstakling þann 1. mars ef stjórn sam-
þykkir breytta gjaldskrá fyrirtækisins. Oddviti Sjálfstæðisflokks í borginni undrast
þetta og segir augljósan lýðræðishalla hvað varðar ákvarðanatöku í fyrirtækinu.
STJÓRNSÝSLA Bryndís Kristjáns-
dóttir skattrannsóknarstjóri segir
viðbúið að einhver mál í skatta-
skjólsgögnunum, sem standa
íslenska ríkinu til boða, séu fyrnd
en elstu málin eru fimmtán ára
gömul.
Bryndís tilkynnti í gær að geng-
ið yrði til samninga við seljanda
gagna um Íslendinga í skatta-
skjólum á grundvelli yfirlýsingar
Bjarna Benediktssonar fjármála-
ráðherra frá því í fyrradag. Hún
segir engu hægt að lofa um árang-
ur af skattheimtu að svo stöddu.
Í yfirlýsingunni frá ráðherra
sagði að skylda til mats á upplýs-
ingunum sem í boði eru, að hversu
miklu gagni þær geta komið við
rannsókn á skattundanskotum og
ákvörðun um kaup á þeim, lægi hjá
embætti skattarannsóknarstjóra.
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
væri tilbúið að greiða fyrir kaup-
unum, yrði það niðurstaða emb-
ættisins.
Gögnin tengjast eignum Íslend-
inga í skattaskjólum en um er að
ræða 416 mál. Íslenskum stjórn-
völdum hefur verið boðið að kaupa
þessi gögn á 150 milljónir króna.
„Hluti af þessum gögnum er nokk-
uð nýlegur en önnur eldri. Þannig
að ég ætla það, svona fyrirfram,
að hluti af þessu verði fyrndur en
annað ekki,“ segir Bryndís Krist-
jánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
- hks, þká, jhh
Skattrannsóknarstjóri hyggst ganga til viðræðna um kaup á gögnum um fjármál Íslendinga erlendis:
Sum skattaskjólsmálanna gætu verið fyrnd
SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI Bryndís
segir að elstu málin séu fimmtán ára
gömul.
STRÆTÓ Engin
umræða um
gjaldskrárhækk-
anir hefur farið
fram innan
sveitarfélag-
anna. Minni-
hlutamenn vissu
ekki af væntan-
legum gjald-
skrárhækkunum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
JÓHANNES
RÚNARSSON
VEISTU SVARIÐ?
Þetta
undirstrikar
það sem ég hef
áður sagt að
það er ákveð-
inn lýðræðis-
halli varðandi
byggðasamlögin.
Halldór Halldórsson,
oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn.
Ég skil
ekki þessa
ákvörðun og
tel hana
vanhugsaða.
Gunnar
Axel Axelsson,
bæjarfulltrúi
Samfylkingar í Hafnarfirði.
1
1
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
7
-0
F
2
0
1
3
C
7
-0
D
E
4
1
3
C
7
-0
C
A
8
1
3
C
7
-0
B
6
C
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K