Fréttablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 16
12. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR VIÐSKIPTI | 16
EFNAHAGSMÁL Samanlagt verð-
mæti þeirra eigna sem hið opin-
bera á og Viðskiptaráð telur grund-
völl til að selja nemur tæplega 800
milljörðum króna. Það samsvarar
rúmlega 40 prósentum af lands-
framleiðslu. Það á við um eignir
ríkisins og sveitarfélaga.
Í nýrri skýrslu Viðskiptaráðs,
sem gefin er út í tengslum við Við-
skiptaþing í dag, segir að grynnka
mætti á opinberum skuldum um
nær helming með því að selja þessi
opinberu fyrirtæki.
„Við sjáum fátt því til fyrir-
stöðu að fara að selja eignarhlut í
Landsbankanum og að hefja undir-
búning á að minnsta kosti hluta á
eignarhlut í Landsvirkjun. Við
höfum nefnt lífeyrissjóðina í því
samhengi,“ segir Frosti Ólafsson,
framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs,
í samtali við Fréttablaðið. Þá séu
nokkrir þættir þar sem sala væri
háð endurskoðun á regluverki og
lagaumgjörð. „Það eru þá sérstak-
lega þeir þættir sem segja má að
búi við náttúrlega einokun eins og
veitustarfsemin,“ segir Frosti.
Þá segir Frosti að Íslandspóstur
og Sorpa séu dæmi um fyrirtæki
sem hefði átt að vera búið að einka-
væða. „Við teljum engin haldbær
rök fyrir því að hið opinbera sinni
þessum hlutverkum yfirhöfuð og
þar af leiðandi ættu menn bara að
fara sem fyrst í það að selja þessar
eignir,“ segir Frosti. Hann bætir
því við að þessi fyrirtæki starfi á
markaði þar sem samkeppni ríkir
nú þegar á meðal einkaaðila og því
engin ástæða fyrir hið opinbera að
vera starfandi á þeim. „Og hvað
þá að stefna að vexti eins og til að
mynda í tilfelli Íslandspósts,“ segir
Frosti.
Frosti segir þó að það væri veru-
lega bjartsýnt að ætla að ríkið
myndi selja allar eignirnar. „En þó
það væri ekki nema helmingurinn í
verðmætum þá væri engu að síður
um 400 milljarða að ræða sem
myndi lækka skuldir ríkissjóðs um
fjórðung,“ segir Frosti. Hann bend-
ir jafnframt á að það séu einung-
is þrjár leiðir til að lækka skuldir
ríkissjóðs hlutfallslega. Það sé sala
eigna eða afgangur af ríkisfjárlög-
um og svo í þriðja lagi að hagkerfið
vaxi þannig að skuldirnar minnki í
hlutfalli við hagkerfið.
„Og því miður að okkar mati þá
hefur eingöngu verið fókusað á
þennan þriðja þátt. Það er mikil-
vægt en við teljum að það eigi að
nýta samhliða hinar tvær leiðirn-
ar til þess að grynnka á skuldum,“
segir Frosti. Enda sé vaxtakostn-
aður ansi stór herkostnaður fyrir
lífskjör og opinbera þjónustu.
„Við erum að borga, sem hlutfall
af landsframleiðslu, næstum því
tvisvar sinnum meira en Grikk-
land og þar telja menn ástandið nú
ansi svart,“ segir Frosti.
Hann segir klárt mál að það sé
grundvöllur fyrir aukinni hag-
kvæmni í ríkisrekstri og endurskil-
greiningu á verkefnum og umfangi
hins opinbera.
jonhakon@frettabladid.is
Hægt yrði að greiða um
helming af skuldunum
Viðskiptaráð telur að ríki og sveitarfélög gætu selt eignir fyrir 800 milljarða til þess að greiða niður skuldir.
Í nýrri skýrslu er bent á að vaxtakostnaður hins opinbera komi illa niður á lífskjörum og opinberri þjónustu.
FRAMKVÆMDASTJÓRINN Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, hefur
undirbúið Viðskiptaþing 2015 undanfarna daga. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VÍ TELUR UNNT AÐ
SELJA ÞESSAR EIGNIR
Orka
Landsvirkjun 176
Orkuveita Reykjavíkur 101
Orkusalan 28
Orkubú Vestfjarða 3
Veitur
Landsnet 67
HS Veitur 13
Rarik 13
Farice 59
Atvinna
Isavia 31
ÁTVR 19
Íslandspóstur 5
Sorpa 4
*milljarðar króna
Fjármál
Landsbankinn 236*
Arion banki 18
Íslandsbanki 8
Sparisjóðir 1
Fyrirtæki Áætlað
söluvirði
lÍs en kus
✓
✓
30% afsl.
frá miðvikudegi 11. feb. til
og með laugardegi 14. feb.
Tryggum öryggi
á skíðasvæðum
HJÁLMADAGAR
Árni Stefánsson lætur á næst-
unni af starfi forstjóra Vífilfells
og mun í framhaldi taka sæti í
stjórn fyrirtækisins.
„Það eru störf sem tengjast Víf-
ilfelli og störf fyrir eigendur sem
ekki tengjast Vífilfelli,“ segir
Árni aðspurður um hvað taki við
hjá honum eftir að hann lætur af
starfi. Við starfi forstjóra tekur
Carl os Cruz. - jhh
Forstjórinn sóttur til Spánar:
Nýr maður til
liðs við Vífilfell
NÝR FORSTJÓRI Carlos Cruz er frá
Spáni og nýfluttur til Íslands. AÐSEND MYND
Lánshæfisfyrirtækið Fitch Rat-
ings hefur gefið Orkuveitunni
einkunnina BB- með stöðugum
horfum. Grunneinkunn Orku-
veitunnar í matinu er tveimur
þrepum hærri en hún fékk frá
lánshæfisfyrirtækinu Moody’s í
desember síðastliðnum. Þetta er í
fyrsta sinn að lánshæfi Orkuveit-
unnar er metið af Fitch.
Bjarni Bjarnason forstjóri
segir nýju einkunnina hvetjandi
- jhh
Meta lánshæfið í fyrsta sinn:
Segir einkunn
Fitch hvetjandi
„Það er ekki hægt að skapa hvata
til verðmætasköpunar ef ríkið
ætlar að hirða bróðurpartinn af
ábatanum með sköttum,“ sagði
Bjarni Benediktsson, fjármála-
og efnahagsráðherra, á aðalfundi
Félags atvinnurekenda í Nauthóli
í gær.
Bjarni sagði að stærstu verk-
efni ráðuneytisins væru af tvenn-
um toga. Annars vegar vinna við
afnám fjármagnshafta og hins
vegar vinna við að einfalda skatt-
kerfið. Hann sagðist sjálfur funda
nánast á hverjum degi um afnám
haftanna. „Síðast í dag, allur föstu-
dagurinn fer í það,“ sagði Bjarni
og ítrekaði að ráðuneytið hefði
aldrei haft jafn marga við að vinna
að þessum málum.
Hann sagði að það væri tómt
mál að tala um eflingu frum-
kvöðlastarfs og atvinnulífs, efl-
ingu nýsköpunar eða mikilvægi
þess að ná fram hagvexti ef ekki
tækist að leysa þessi mál. - jhh
Stærstu málin að einfalda skatta og losa höftin:
Skattar draga úr hvata
Heildarkvótinn sem gefinn hefur
verið út í loðnu fyrir fiskveiðiár-
ið 2014-2015 er 55 þúsund tonnum
minni en meðaltal heildarkvóta síð-
ustu 20 árin. Þetta má lesa úr gögn-
um sem Samtök fyrirtækja í sjávar-
útvegi hafa tekið saman.
Meðaltal 20 ára er rúm 635 þús-
und tonn en leyfileg veiði þetta fisk-
veiðiár er 580 þúsund tonn. Meðaltal
síðustu tíu ára er öllu lægra eða tæp
311 þúsund tonn. „Það þarf að ganga
mjög vel til að við náum að veiða
okkar hlut. En ef við náum að veiða
allan okkar hlut sem er 405 þúsund
tonn þá eru áætluð veiðigjöld 1,6
milljarðar af þeim tonnum. En það
þarf einmitt allt að ganga vel, veðrið
og loðnan þarf að vinna með okkur
svo við náum að veiða allt,“ segir
Hallveig Ólafsdóttir, hagfræðingur
hjá SFS. - jhh
Í 20 ár hafa að meðaltali veiðst 635 þúsund tonn:
Kvóti undir meðaltali
RÁÐHERRA Bjarni Benediktsson fund-
ar nánast daglega um losun hafta.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í EYJUM
Heimilt er
að veiða
580 þús-
und tonn á
fiskveiði-
árinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ÓSKAR
1
1
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
6
-E
2
B
0
1
3
C
6
-E
1
7
4
1
3
C
6
-E
0
3
8
1
3
C
6
-D
E
F
C
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K