Fréttablaðið - 12.02.2015, Síða 19

Fréttablaðið - 12.02.2015, Síða 19
FIMMTUDAGUR 12. febrúar 2015 | SKOÐUN | 19 Er kreppa í heiminum eða ekki? Á því máli eru a.m.k. tvær hliðar. Athugum málið. Minni munur en margir halda Lítum fyrst á heiminn í heild. Íbúafjöldinn er nú um sjö millj- arðar. Kaupmáttur saman- lagðrar framleiðslu allra landa heims í ár verður 113.000 millj- arðar Bandaríkjadala skv. upp- lýsingum alþjóðastofnana (AGS og Alþjóðabankinn). Það gerir um 16.000 dali á hvert manns- barn yfir árið í heiminum að jafnaði. Það er ríflega þriðj- ungur af kaupmætti landsfram- leiðslu á mann á Íslandi. Þetta heimsmeðaltal, 16.000 dalir á mann á ári, jafngildir 177.000 krónum á mann á mánuði hér heima. Til samanburðar sam- svarar kaupmáttur landsfram- leiðslu á mann á Íslandi 2015 (45.000 dalir) næstum hálfri milljón króna á mánuði á hvert mannsbarn í landinu. Það gerir tvær milljónir króna á mán- uði á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Hér er um heildar- tekjur að ræða, ekki launa- tekjur. Af þessum tölum má ráða, að launatekjur eru mun lægra hlutfall heildartekna þjóðarbúsins en margir hefðu haldið og hafa raunar lækk- að verulega sem hlutfall af heildar tekjum m.a. vegna auk- innar hlutdeildar fjármagns- tekna í heildinni og meiri mis- skiptingar. Kaupmáttarmunurinn milli landa er einnig miklu minni en margir munu hafa átt von á. Skýringin liggur í miklum hag- vexti í þróunarlöndum undan- gengna áratugi í krafti betra búskaparlags, ekki sízt í Kína. Kaupmáttur tekna á mann í Noregi, einu ríkasta landi heims, er ekki nema rösklega fjórfaldur á við heimsmeðal- talið. Norska talan er helmingi (þ.e. 50%) hærri en íslenzka talan, en það er að vísu vill- andi að því leyti, að Norðmenn vinna mun færri stundir á ári en Íslendingar (Norðmenn vinna styttri vinnuviku og fara fyrr á eftirlaun). Kaupmáttur á hverja vinnustund er því miklu meira en helmingi drýgri í Noregi en hér heima. Mikill vöxtur, já, en mismikill Fyrir einum mannsaldri, 1980, skömmu eftir að Kínverjar hófu vegferð sína frá miðstjórn til markaðsbúskapar, nam hlut- deild Bandaríkjanna í heims- framleiðslunni röskum fimmt- ungi (22%) á móti fimmtugasta parti í Kína (2%). Í fyrra sigldi Kína fram úr Bandaríkjun- um. Í ár mun landsframleiðsla Kínverja nema 17% af heims- framleiðslunni á móti 16% hlutdeild Bandaríkjamanna. Á sama tíma hefur hlutdeild ESB í heimsframleiðslunni minnk- að úr 30% 1980 í 17% 2015 eins og í Kína. Bandaríkin, ESB og Kína standa því samtals á bak við réttan helming heimsfram- leiðslunnar. Tekjur á mann í Kína eru þó mun lægri en í Bandaríkjunum og ESB. Efnahagur heimsins heldur áfram að batna á heildina litið. Landsframleiðsla heimsins í heild er talin munu vaxa um 4% í ár, segir AGS, landsfram- leiðsla Afríkulanda sunnan Sahara um 6% og Asíulanda um 7%. Engin kreppa þar. Landsframleiðsla ESB-land- anna vex um 2% í ár á móti 3% heima. Hér þarf að gá að því, að fólksfjölgun á ESB-svæð- inu í ár er 0,2% á móti 1,2% hér heima. Vöxtur landsfram- leiðslu á mann er því hinn sami hér og þar, eða 1,8% á báðum stöðum. Atvinnuleysi er þó miklu minna hér en úti í Evrópu. Heimurinn á ekki við kreppu eða eftirstöðvar kreppu að stríða, heldur einungis fáein lönd, t.d. Grikkland og Ísland. Hvað er þá að? Hvers vegna halda sumir áfram að tala um kreppu? Er hún ekki liðin hjá? Skellurinn 2007-2008 átti upptök sín í Bandaríkjunum og birtist fyrst í falli banka og síðan í risavöxnum fjár- útlátum alríkisstjórnarinnar til að forða öðrum bönkum og fyrirtækjum frá falli, jafnvel General Motors, sem löngum var talið vera hryggjarstykk- ið í bandarísku efnahags- lífi. Vandinn barst til Evrópu, þar sem bankar höfðu ausið lánsfé t.d. í grísku ríkisstjórn- ina og íslenzka banka. Einnig í Evrópu þurfti að verja miklu skattfé til að bjarga bönkum frá falli. Í ljós hefur komið, að bandarískir bankar brutu lög í stórum stíl. Eigi að síður tókst bankamönnum þar vestra að skjóta sér undan afleiðingum gerða sinna, ekki bara með því að sleppa við refsingu, heldur einnig með því að draga tenn- urnar úr tilraunum Banda- ríkjastjórnar til að hemja bank- ana til að girða fyrir hættuna á nýrri fjármálakreppu. Bank- arnir hafa fimm erindreka í Washington til höfuðs hverjum þingmanni. Nokkrir bandarísk- ir bankar eru enn „of stórir til að falla“ – þ.e. of stórir. Þeir hafa því enn sama hvatann og áður til að spenna bogann hátt og setja efnahagslífið aftur á annan endann, enda hefur ríkisstjórn Obama forseta ekki tekizt nema til hálfs og varla það að koma böndum á bank- ana. Sumir búast því við, að sagan muni endurtaka sig. Í þeim hópi er Simon Johnson, prófessor á MIT og fv. aðalhag- fræðingur AGS, eins og hann lýsir í bók sinni 13 Bankers (2011). Kreppa? Hvaða kreppa? Landsframleiðsla heimsins í heild er talin munu vaxa um 4% í ár, segir AGS, landsfram- leiðsla Afríkulanda sunnan Sahara um 6% og Asíulanda um 7%. Engin kreppa þar. Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Liggurðu á skoðunum þínum? Það er algjör óþarfi . Sendu greinina þína á greinar@visir.is og við komum henni á framfæri hið snarasta. Í DAG Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is GE bílar Reykjanesbæ www.bilahusid.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 E N N E M M / S ÍA / N M 6 6 7 7 5 VELDU GÓÐAN BÍL SUBARU ER EINN ÖRUGGASTI BÍLL SEM ÞÚ GETUR KEYPT 6,5 l / 100 km í blönduðum akstri Ný LINEARTRONIC stiglaus sjálfskipting með þrepastillingum í stýri. Subaru Forester 2.0 PREMIUM Nýr lánamöguleiki: 10% útborgun eða 549.000 kr. Verð: 5.490.000 kr. Rekstraröryggi og gott endursöluverð er það sem allir þekkja og kemur fyrst upp í hugann. Lágur þyngdarpunktur, þverliggjandi BOXER vél og sítengt fjórhjóladrif með tölvustýrðri stöðugleikastýringu er lykillinn að akstursöryggi. Allir Subaru eru með 5 stjörnur í árekstrarprófunum EuroNCAP. NÚ VÆRI GOTT AÐ VERA Á SUBARU! 1 1 -0 2 -2 0 1 5 2 2 :0 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 3 C 7 -0 0 5 0 1 3 C 6 -F F 1 4 1 3 C 6 -F D D 8 1 3 C 6 -F C 9 C 2 8 0 X 4 0 0 4 A F B 0 6 4 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.