Fréttablaðið - 12.02.2015, Síða 20
12. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 20
Flestir þeirra ferðamanna sem hing-
að koma, segjast koma vegna nátt-
úru landsins. Það eitt segir okkur að
aðgerða er þörf til að viðhalda þeim
ferðamannastöðum sem hafa látið
á sjá vegna átroðnings. Ferðaþjón-
ustan veltir meiri tekjum en nokkur
önnur grein hér á landi í dag. Það
segir mér að hún skapar töluverð-
ar skatttekjur og að mínu mati á að
nota þær til uppbyggingar í þeirri
grein. Nákvæmlega eins og þegar
skattur er lagður á íbúa bæjar félags
og þeir fjármunir nýttir til upp-
byggingar, viðhalds og þjónustu fyrir þá
sem þar búa. Hvað með þær fréttir að hér á
landi séu ferðaþjónustufyrirtæki, sem eru
með öllu eða að hluta til undanskilin virðis-
aukaskatti? Meira að segja fyrirtæki sem
hefur auðveldan aðgang að ferðamönnum og
þeim tekjum sem þeir skilja eftir sig!
„Þeir greiða sem njóta“, þessari setn-
ingu hefur verið fleygt fram sem rökum
með náttúrupassanum. Hvernig réttlæta þá
ráðamenn þjóðarinnar það að hér á landi
séu rekin fyrirtæki í ferðaþjónustunni sem
njóta góðs af ferðamönnum en þurfa ekki að
greiða neitt til samfélagsins? Eins og hér sé
ríki í ríkinu. Ákveðin ferðaþjónustufyrir-
tæki eru undanþegin skatti og það virðist
vera að ekki sitji allir við sama borð þegar
kemur að skattlagningu.
Aðgerða er strax þörf eins og okkar
ágæti iðnaðar- og viðskiptaráðherra bendir
á. Það eru orð að sönnu og engum dylst að
úrbóta er þörf hið fyrsta. Því legg
ég til að við nýtum þá leið sem við
höfum hér sem kallast skattur og
hefur verið til svo lengi sem elstu
menn muna. Kerfi sem kallar ekki á
aukið starfsmannahald eða flækju-
stig og er nú þegar til staðar.
Hver verður svo hlutur náttúrunnar?
Hvernig sjáum við fyrir okkur að
þeir fjármunir muni dreifast sem
þarna er aflað, það er, þegar búið
er að greiða launakostnað forrit-
arans, landvarðarins, nokkurra
starfsmanna ferðamálastofu eða tengdrar
stofnunar, bílakostnað, kynningarkostnað,
umsýslugjald þeirra sem gefa út passana,
þeirra sem skrá þá, þeirra sem þá prenta,
svo ekki sé talað um þann kostnað sem fer í
að elta uppi þá sem ekki ætla sér að greiða
fyrir aðgang og verða uppvísir að land-
spjöllum til að komast fram hjá „kerfinu“?
Ég gæti talið upp fleiri atriði en spyr mig þá:
Hver verður upphæðin sem eftir verður til
uppbyggingar á ferðamannastöðunum? Eða
er það ekki annars það sem þetta snýst um?
Orðræðan snýst um framkvæmd. Hún
snýst um það hvernig hanna á náttúrupass-
ann að mati ráðherra og allt þetta er tilkom-
ið vegna þess hversu vel hefur gengið að
markaðssetja ágæti landsins, fólkið sem hér
byggir landið og þá fallegu og viðkvæmu
náttúru sem við höfum. Veiða á alla fiskana
í sjónum, eða í þessu tilfelli, ná til eins
margra ferðamanna og mögulegt er.
Hvernig var það á þeim tíma sem fiskveið-
ar öfluðu okkur mestu gjaldeyristeknanna,
þurfti þá ekki í framhaldi að takmarka
veiðar vegna ofveiði og hræðslu við það að
verið væri að „hreinsa“ hafið? Ferðaþjón-
ustan er ekkert ólík fiskveiði. Hún skapar
tekjur og er auðlind okkar allra. En kannski
erum við að fiska þar of hratt? Þar ráðast
skoðanir þeirra sem byggja hag sinn og
afkomu á ferðaþjónustunni, skiljanlega.
Hafa þarf landsmenn með í ráðum
Það sem ferðaþjónustan þarf er velvild íbúa
í garð ferðamanna því það hlýtur að vera
hluti af stóru myndinni, ekki síður en þær
tekjur sem af þeim skapast. Hér þarf að
að ríkja gestrisni sem með afspurn gerir
Ísland að áhugaverðum stað til að heim-
sækja. Ljóst er að náttúrupassinn mun ekki
verða vinsæll. En ástæða þess að verið er
að ræða þessi mál er jú mikil fjölgun ferða-
manna. Viljum við í alvöru fara á þennan
stað, stað sem ýtir undir það sem kallast og
notað er oft í fræðum ferðaþjónustunnar
„þolmörk“? Þolmörk eru helsta ógn ferða-
þjónustu alls staðar í heiminum og Ísland
er engin undantekning þar á. En þegar
þolmörkum er náð þá fara íbúar svæðis-
ins að snúast gegn ferðamönnunum og
kemur upp ákveðin andúð í garð þeirra. Á
hvaða stað verðum við komin þá? Öll eggin
komin í sömu körfuna og heilu bæjarfélög-
in farin að afla tekna af komu ferðamann-
anna. Horfa verður því á þessa aðgerð,
sem innleiðing náttúrpassans er, til mun
lengri tíma. Horfa á til ferðaþjónustunnar
með langtímamarkmið í huga, langhlaup
þar sem ryðja á hindrunum úr vegi eins og
hægt er svo allir hafi áhuga á og getu til að
taka þátt í langhlaupi og uppgangi ferða-
þjónustunnar á landinu.
Pössum landið en munum að til þess
þarf ekki endilega „náttúru“-passa. Þetta
mál hefur fengið að velkjast um í kerfinu í
þrjú ár og búið er að verja ómældum tíma
í að útfæra þessa hugmynd og enn virðast
ráðamenn ekki vera vissir um hvað sé best.
Getur verið að okkar ágætu ráðamenn séu
fastir inni í kassa náttúrupassans og sjái
ekki annað en hvernig útfæra eigi passann,
í stað þess að stíga út úr kassanum og horfa
í kringum sig? Að þeir brjóti odd af oflæti
sínu og hlusti á raddir þegna sinna og stuðli
að jákvæðri uppbyggingu ferðaþjónustunn-
ar á Íslandi með okkur, þegna landsins, með
í ferðinni. Það er að mínu mati eina leiðin
til að ná settu markmiði í þessu langhlaupi
ferðaþjónustunnar, bæði með hag náttúr-
unnar og okkar sem byggjum þetta land að
leiðarljósi.
Segi „pass“ við náttúrupassanum
FERÐA-
ÞJÓNUSTA
Kristín
Thoroddsen
ferðamálafræðingur
➜ Getur verið að okkar ágætu
ráðamenn séu fastir inni í kassa
náttúrupassans og sjái ekki annað
en hvernig útfæra eigi passann, í
stað þess að stíga út úr kassanum og
horfa í kringum sig?
Skráning er til og með 17. febrúar klukkan 16.
Aðgang að skráningu, nánari upplýsingum og dagskrá þingsins
má finna á samgongustofa.is/umferdarthing
Umferðar- og samgönguþing verða haldin fimmtudaginn 19. febrúar
í Hörpu í Reykjavík. Þingin eru skipulögð af innanríkisráðuneytinu,
samgönguráði og Samgöngustofu. Umferðarþingið verður haldið milli
klukkan 8 og 12 en samgönguþingið stendur frá klukkan 13 til 17.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra mun ávarpa samgönguþingið
í upphafi og síðan flytja sérfræðingar erindi á báðum þingunum
og gefinn verður góður tími til umræðna og fyrirspurna.
2015
2015
Meðal efnis á umferðarþingi má nefna erindi Guðbjargar Kristínar
Ludvígsdóttur læknis þar sem m.a. er svarað spurningunni hvort fatlaðir
vegfarendur búi við sama öryggi í umferðinni og aðrir. Kristín Sigurðar-
dóttir læknir og Ágúst Mogensen, rannsóknarstjóri umferðarslysa hjá
Rannsóknarnefnd samgönguslysa, fjalla m.a. um umferðarslys, áhrif
og hvernig orsakir og eðli þeirra hafa breyst. Kynntar verða niðurstöður
rannsóknarskýrslu um slys á hjólandi vegfarendum og umferðar-
öryggisáætlanir sveitarfélaga.
Á samgönguþingi verða kynnt drög að samgönguáætlun 2015-2026.
Ólöf Nordal innanríkisráðherra kynnir stefnuna og meginmarkmið hennar
og Birna Lárusdóttir, formaður samgönguráðs, fjallar um aðdraganda og
samráðsferlið. Farið verður yfir árangur fyrri stefnu, áherslur og stærstu
verkefni samgönguáætlunar 2015-2026 og umhverfismat áætlunarinnar. Góðir
gestafyrirlesarar, þau Eyjólfur Guðmundsson, rektor HA, Guðmundur Freyr
Úlfarsson, prófessor í samgönguverkfræði við HÍ, Ásdís Hlökk Theodórsdóttir
skipulagsstjóri, Árni Freyr Stefánsson hjá Mannviti og Friðrik Pálsson
hótelhaldari fjalla um áhugaverð viðfangsefni við mótun stefnunnar svo sem
framtíðarsýn, fjármögnun og ferðaþjónustu. Í lokin verða pallborðsumræður
með þátttöku fulltrúa samgönguráðs, umræðum og fyrirspurnum.
1
1
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
7
-0
5
4
0
1
3
C
7
-0
4
0
4
1
3
C
7
-0
2
C
8
1
3
C
7
-0
1
8
C
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K