Fréttablaðið - 12.02.2015, Qupperneq 24
12. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 24TÍMAMÓT
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
SVERRIR GÍSLASON
frá Heydal við Djúp,
síðar Hábæ 2a, Þykkvabæ,
Rangárvallasýslu,
lést sunnudaginn 8. febrúar síðastliðinn.
á Borgarspítalanum. Jarðarförin auglýst síðar.
Jóna Elísabet Sverrisdóttir Pálmar H. Guðbrandsson
Bjarni Rúnar Sverrisson
Elín Þóra Sverrisdóttir Einar S. Bjarnason
Sverrir Þór Sverrisson Brynja K. Sverrisdóttir
Sigríður Helga Sverrisdóttir
barnabörn og langafabörn.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
BIRNA GUÐFINNA
ÞORSTEINSDÓTTIR
Sólheimum, Breiðdalsvík,
lést 8. febrúar á hjúkrunarheimilinu Sólvangi
í Hafnarfirði. Útförin mun fara fram í kyrrþey
að ósk hinnar látnu.
Magnús Sigurðsson Sigurrós Rut Karlsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
OTTÓ RAFN GUÐLAUGSSON
prentari,
andaðist á líknardeild Landspítalans
31. janúar. Útförin fór fram í kyrrþey
þann 6. febrúar að ósk hins látna.
Þökkum sýndan samhug. Sérstakar þakkir
fær starfsfólk líknardeildar fyrir góða umönnun
og hlýlegt viðmót.
Málfríður Gunnarsdóttir
Gunnar Kristinn Ottósson Inga Þórey Jóhannsdóttir
Sigurbjörn Rafn Ottósson Guðrún Ingibjörg Stefánsdóttir
Ragnar Már Ottósson
Gunnlaug Ottósdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
INDRIÐI INDRIÐASON
fv. skógarvörður, Tumastöðum,
lést 7. febrúar á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
fimmtudaginn 19. febrúar kl. 13.00.
Guðrún Indriðadóttir Jón Ágúst Sigurjónsson
Sólveig Indriðadóttir Stefán K. Guðnason
Indriði Ingi, Bjarki Rafn, Heiður, Vala Sif, Arnþór,
Sindri Freyr, Vera Björk og barnabarnabörn.
Hjartkær móðir mín, tengdamóðir,
amma og langamma,
GUÐRÚN J. VIGFÚSDÓTTIR
vefnaðarkennari og veflistakona,
áður til heimilis að Vogatungu 29,
Kópavogi og Ísafirði,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð
mánudaginn 9. febrúar. Útför hennar verður
gerð frá Digraneskirkju mánudaginn 23. febrúar kl. 13.00.
Eyrún Ísfold Gísladóttir Sturla Rafn Guðmundsson
Gísli Örn Sturluson Marie Persson
Snorri Björn Sturluson
Guðrún Jóhanna Sturludóttir
Eyrún Linnea, Hanna Ísabella og Lisa Marie Gísladætur
Okkar ástkæri
JÓN JÓHANNSSON
frá Hólmavík,
búsettur á Hömrum, Mosfellsbæ,
lést sunnudaginn 8. febrúar sl.
Hann verður jarðsunginn frá Grafarvogs-
kirkju miðvikudaginn 18. febrúar kl. 11.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir
en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Parkinsonsamtökin.
Fyrir hönd annarra aðstandenda,
Halldóra G. Scales
Jóhann Jónsson
Snædís Jónsdóttir
Fjóla Loftsdóttir Védís Jónsdóttir hönnuður er fimm-
tug í dag. Prjónafólk á Íslandi þekkir
nafn hennar því hún var aðalhönnuð-
ur nýrra prjónauppskrifta fyrir Ístex
um árabil en síðustu ár hefur hún búið
erlendis, þar sem eiginmaðurinn starf-
ar við utanríkisþjónustuna. Þau hjón
fluttu í sumarlok til Rómar frá New
York og Védís líkir því við að fara
aftur í tímann. „Veðrið hér í Róm er
einstakt og birtan engu lík,“ segir hún.
„Maturinn, gæðin og menningin kring-
um hann er líka mjög að mínu skapi.
Ég fer reglulega á Esquilino-markað-
inn en hann er afar litskrúðugur bæði
hvað varðar mat og mannlíf. Það eru
mikil lífsgæði að geta keypt nýupptek-
ið grænmeti og geta séð hversu ferskur
fiskurinn er með því að horfa í augun
á honum!“
Hún segir það eins og að gera upp
á milli barnanna sinna að bera saman
borgirnar New York og Róm. „Mér
finnst þær báðar dásamlegar hvor á
sinn hátt. Róm er svo falleg þó að hún
sé illa hirt og svolítið spillt. Litirnir,
byggingarnar, sagan, menningin og
hvað fólkið er elskulegt gerir hana
einstaka. New York er hins vegar svo
mikill töffari, hröð með hágæða list-
viðburðum og mannlífskokteil. Ég bjó
á Manhattan og fannst gott að vera í
hlíðum þessa ljósum prýdda mann-
gerða fjallgarðs með sínum djúpu
gljúfrum, sem er ekki allra.“
Veturinn í Róm er afar þægilegur,
að mati Védísar. „Auðvitað getur orðið
kalt og rakinn gerir það að verkum að
hér verður napurt en það varir aldrei
lengi. Rómverjar segja að það rigni
meira nú en áður fyrr og vissulega
getur komið úrhelli eða vatnssprengj-
ur eins og þeir segja, en fyrir Íslending
er það ekkert til að hafa orð á.“
Védís kveðst koma heim á sumr-
in til þess að njóta besta tímans hér.
En umgengst hún einhverja landa í
Róm? „Já, það eru nokkrir Íslending-
ar sem búa hér og hægt að ná saman í
einn saumaklúbb af góðum íslenskum
konum. Ef ég ætti að nefna einhvern
þá er það Hrefna Tynes sem hefur
búið lengi í Róm og verið minn vernd-
ari hér.“
Nú vil ég vita hvernig hún Védís
ætlar að halda upp á stórafmælið í
dag. „Þar sem ég er fædd á Skaganum
ætla ég að skreppa niður á Sorrentó-
skagann. Fá mér góðan fisk og gista á
litríkum litlum stað sem hangir utan
í klettunum með útsýni yfir Napólí-
flóa og Vesúvíus enda er ég alin uppi á
Melabökkum með útsýni á Faxaflóann
og Snæfellsjökul.“
En manstu eftir einhverju afmæli
frá bernskuárunum í Melasveit? „Ekki
sérstaklega. Í minningunni var yfir-
leitt leiðindaveður og þegar ég fædd-
ist var stórhríð, ég er viss um að ég fæ
betra veður núna!
Ég fæddist víst í sitjandi stöðu og við
mamma vorum hafðar fyrstu dagana
á ellideildinni því það var ekki pláss
á fæðingardeildinni, það má því segja
að ég hafi byrjað lífið á öfugum enda!“
gun@frettabladid.is
Byrjaði á öfugum enda
Védís Jónsdóttir hönnuður fæddist á Skaganum og er alin upp á Melabökkum með útsýni
yfi r Faxafl óann og Snæfellsjökul. Nú býr hún í Róm og ætlar að halda upp á fi mmtugs-
afmælið í dag á Sorrento-skaganum með útsýni yfi r Napólífl óa og Vesúvíus.
HÖNNUÐURINN Védís á morgungöngu með Lappa á Viale della Domus Aurea við Colosseo í Róm í gær í 14 stiga hita og sól. MYND/ÚR EINKASAFNI
Eins og vænta má er Védís með verkefni á hönnunar- og hannyrðasviði hvar sem
hún er.
„Ég er svo heppin að vera að byrja að spá í nýja liti fyrir splunkunýtt prjónaband
sem ekki er enn komið á markað. Síðan hef ég verið að vinna að útfærslum og
endurbótum á gömlum uppskriftum í eigu Ístex sem mér fannst eiga rétt á endur-
nýjun lífdaga. Þær munu koma út í bók á þessu ári. En það sem ég get ekki beðið
eftir er að halda áfram að vinna í prjónaskúlptúrunum mínum og öðrum verkum
sem ég byrjaði á í New York. Ég hef verið að prjóna úr óhefðbundnu efni eins og
rafmagnsvír sem er hreint ekki auðveldur í höndum. Mér finnst líka skemmtilegt að
vinna með fíngerðan frjálsan útsaum, gjarnan pínulítil verk. Svo hef ég líka verið að
prófa að teikna fríhendis með saumavél. Ég hef notað tímann erlendis til að reyna
að þroskast sem listamaður en virðist laðast að tímafrekum verkefnum þannig að
það gengur hægt!“
Helstu verkefni Védísar núna
1
1
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
7
-2
C
C
0
1
3
C
7
-2
B
8
4
1
3
C
7
-2
A
4
8
1
3
C
7
-2
9
0
C
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K