Fréttablaðið - 12.02.2015, Qupperneq 28
FÓLK|TÍSKA
Söngkonan Madonna verður 57 ára á árinu en hún er greinilega ekki vaxin upp úr því að reyna að hneyksla. Á Grammy-verðlaunahátíð-
inni síðastliðinn sunnudag klæddist hún á ögrandi
máta, í korseletti og mínípilsi í stíl. Á meðan hún
þrammaði eftir rauða dreglinum var hún dugleg við
að lyfta pilsinu og sýna þannig hálfberan bossann
enda aðeins klædd í g-streng og gegnsæjar blúndu-
sokkabuxur undir pilsinu.
Þetta er alls ekki í fyrsta skipti sem söngkonan
gengur fram af fólki, um það eru mörg dæmi. Á
tónleikaferð sinni árið 2012 fannst mörgum hún hafa
náð nýjum hæðum í hneykslanlegri framkomu en
þá klæddist hún nærfatnaði og netsokkabuxum, sat
ofan á píanói og glennti sig framan í píanóleikarann.
Eftir það fór hún að káfa á sér á klúran máta og henti
yfir sig peningaseðlum. Það var þó ekki allt því hún
skipti um föt þannig að hún líktist leðurklæddri ofur-
hetju sem sleikti byssu á ögrandi máta og beindi
henni svo að höfði sér. Hún var svo bundin með
keðjum áður en hún skipti yfir í nýtt dress, klapp-
stýrubúning. Sonur hennar, Rocco, sem þarna var
tólf ára var með henni á sviðinu en virtist ekki kippa
sér upp við aðfarir móðurinnar heldur skemmta sér
vel.
Árið 2003 hristi hún verulega upp í fólki þegar
hún kyssti söngkonuna Britney Spears djúpum
kossi þegar þær sungu saman á MTV-tónlistarverð-
launahátíðinni. Hún bætti svo um betur með því að
kyssa Christinu Aguilera álíka kossi en hún söng
einnig með þeim stöllum.
Á tónleikaferðalagi sínu árið 1990, Blonde Amb-
ition-túrnum, skók það heimsbyggðina þegar Mad-
onna klæddist korseletti með keilulaga brjósthaldara
utan yfir sokkabuxur. Hún hefur svo oftar en einu
sinni berað á sér brjóstin og átt í vafasömum ástar-
samböndum sem hafa valdið almennri hneykslan.
REYNIR AÐ GANGA
FRAM AF FÓLKI
HNEYKSLANDI FRAMKOMA Söngkonan Madonna kallar ekki allt ömmu
sína þótt hún gæti verið ein slík sjálf. Á nýliðinni Grammy-verðlaunahátíð
hneykslaði hún fólk enn á ný, nú með því að hálfbera á sér bossann.
STUÐANDI FRAMKOMA Framkoma Madonnu og fylgdarliðs
hennar á tónleikaröðinni MDNA árið 2012 þótti frekar klúr og fór
hún að margra mati yfir strikið nokkrum sinnum á tónleikunum.
GETTY/NORDIC PHOTO
UMTALAÐUR KOSS Það var um lítið annað rætt eftir MTV-há-
tíðina árið 2003 en koss þeirra Madonnu og Britney Spears.
GETTY/NORDIC PHOTO
VEIFAÐI BYSSU Madonna gerði sér far um að hneyksla áhorf-
endur á tónleikum árið 2012 þegar hún sleikti byssu og beindi
henni svo að höfði sér og þóttist gráta.
BOSSINN SÝNDUR Einhverjir náðu ekki upp í nef sér þegar hin
56 ára gamla Madonna lét taka af sér myndir með allt upp um
sig á dögunum.
KEILULAGA BRJÓST
Madonna hefur hneykslað
fólk í áratugi en á níunda
áratugnum kom hún
fyrst fram í þessu
fræga korseletti sem
Jean Paul Gaultier
hannaði.
Stærðir 38-52
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
my style4
ÚTSÖLULOK
70% afsláttur
af öllum útsöluvörum
Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-16
Vinsamlegast láttu vita í gjaldfrjálst númer
800 1177 eða á dreifing@postdreifing.is
Hjálpaðu okkur að bæta þjónustuna.
Blaðið á að berast þér fyrir kl. 7:15 virka morgna
og 8:15 á laugardögum
FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í MORGUN?
KOM ÞAÐ OF SEINT?
1
1
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
7
-1
4
1
0
1
3
C
7
-1
2
D
4
1
3
C
7
-1
1
9
8
1
3
C
7
-1
0
5
C
2
8
0
X
4
0
0
6
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K