Fréttablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 36
FÓLK|TÍSKA
Parísartízkan er eitt best geymda leyndarmál Íslendinga. Sumir halda að verslunin sé fyrir eldra
fólk þar sem hún hefur verið starfrækt
í 52 ár og er skrifuð með z. En það gæti
ekki verið fjær lagi,“ segir Hjördís. Fjöldi
þekktra merkja er til sölu í Parísartízk-
unni en þar má nefna Basler, Max Mara,
Weekend Max Mara, Persona, Marina
Rin aldi, Penny Black og Max Mara Code.
„Svo erum við líka með skó, skart, fylgi-
hluti og Max Mara-sokkabuxurnar sem
allar stelpur eru að missa sig yfir,“ lýsir
Hjördís.
Ýmsar breytingar hafa orðið á versl-
uninni frá því hún var stofnuð árið 1963.
„Í upphafi var starfrækt saumastofa í
versluninni og fatnaðurinn hannaður
með innblæstri frá borg hátískunnar
París. Í dag eru seld föt frá vönduðum
tískuframleiðendum þar sem gæði og
ending eru í hávegum höfð,“ segir Hjör-
dís sem nánast ólst upp í Parísartízk-
unni sem móðir hennar rak í fjölda ára.
„Þar lærði ég margt um tísku og fékk
áhuga á saumaskap. Ég menntaði mig
sem klæðskeri og kjólaklæðskeri og hef
alveg síðan ég man eftir mér haft áhuga
á vönduðum fatnað,“ segir hún, enda
endurspeglast góður smekkur Hjördísar
í fataúrvalinu í versluninni.
Til að mynda hefur Hjördís bætt við
merkjum frá Max Mara sem eru afar
vinsæl. „Við leggjum áherslu á fjöl-
breytileika. Þannig erum við til dæmis
með föt frá Persona/Marina Rinaldi
sem eru með stærri stærðir og svo
erum við með Penny Black og Weekend
Max Mara sem eru með minni stærðir.“
Basler er elsta merki Parísartízkunnar.
„Það er þýskur gæðafatnaður í stærðum
frá 36 til 48.“
Innt eftir því hvað verði í tísku með
vorinu svarar Hjördís: „Það sem ein-
kennir vorið eru bjartir litir, sérstaklega
pastellitir, og enn er mikið um mynstur.
Þá eru frakkar og þunnar dúnúlpur
mjög vinsæl,“ segir Hjördís og bendir á
að konur á mjög breiðu aldursbili geti
fundið eitthvað við sitt hæfi í verslun-
inni. „Það hefur oft komið fyrir að við
fáum þrjá ættliði í búðina og allir geta
fundið eitthvað sem höfðar til þeirra,“
segir hún glaðlega.
Þótt ýmsar breytingar hafi orðið hjá
Parísartízkunni á síðustu árum helst
eitt óbreytt. „Það er persónuleg þjón-
usta. Við viljum að viðskiptavinir okkar
eigi góða stund með okkur og gangi
glaðir út.“
Parísartízkan er til húsa í Skipholti 29b.
Nánari upplýsingar má finna á
Facebook undir Parísartízkan.
LEYNDARMÁLIÐ
Í SKIPHOLTINU
PARÍSARTÍZKAN KYNNIR Í 52 ár hefur Parísartízkan selt konum yfir þrítugu
vandaðan hátískufatnað. Hjördís Sif Bjarnadóttir klæðskeri ólst upp í versl-
uninni og tók nýverið við búðinni af móður sinni heitinni og hefur nú fært
Parísar tízkuna enn meir inn í nútímann..
EIGANDINN
Hjördís Sif Bjarnadóttir
er klæðskeri að mennt
og hefur haft áhuga á
vönduðum fatnaði frá
því hún man eftir sér.
MYND/STEFÁN
Guðrún Hildur Rosenkjær, klæð-
skera- og kjólameistari, flytur fyrir-
lestur um íslenska skautbúninginn
í Hönnunarsafni Íslands í kvöld
klukkan 20.
Á fyrirlestrinum fjallar Guð-
rún Hildur um aðdraganda,
þróun og vegferð skautbún-
ingsins frá því hann kom
fram um miðja 19. öld og
fram á okkar daga. Hún velt-
ir upp spurningum eins og
hvort búningurinn, sem oft
er kenndur við fjallkonuna,
hafi verið pólitískt hátísku-
þjóðernistákn eða aðferð
kvenna til listsköpunar.
Þá fjallar hún um aðkomu
Sigurðar Guðmundssonar
málara að hönnun íslenskra
kvenbúninga og samfélags-
lega umræðu um búninga
kvenna um aldamótin 1800.
ÞRÓUN SKAUTBÚNINGSINS
Skautbúningur – Íslenskur hátískufatnaður um 19. öld er yfirskrift fyrirlestrar í
Hönnunarsafni Íslands sem haldinn verður í kvöld.
ÍSLENSKIR BÚNINGAR Myndin er tekin á þjóðbúningadegi Þjóðminjasafns
Íslands. Fyrirlesturinn verður í Hönnunarsafni Íslands í Garðabæ.
w
w
w
.z
en
b
ev
.i
s
-
U
m
b
o
ð
: v
it
ex
e
h
f
NÝTT
Betri og dýpri svefn
Engin eftirköst
eða ávanabinding
100% náttúruleg, lífræn
fæða án aukaefna
Vísindaleg sönnun á virkni
ZenBev er einstök blanda innihaldsefna,
hrein graskersfræ hafa ekki sömu áhrif
Fæst í apótekum og heilsubúðum
ZenBev fyrir streitulausa daga og friðsælar nætur
Melatónin - Seratónin
Tvöföld virkni - Vellíðan dag og nótt
Náttúrulegt
Triptófan
úr graskersfræjum
Tvær bragðtegundir
sítrónu og súkkulaði
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin BelladonnaStærðir 38-58
ÚTSÖLULOK
70% afsláttur
af öllum útsöluvörum
Innskot í Fréttablaðið skilar árangri!
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið landsins
með glæsilegt forskot á keppinautana.
Meðallestur Fréttablaðsins í
aldurshópnum 25-54 ára er 73%
á höfuðborgarsvæðinu.*
Við bendum auglýsendum á að notfæra
sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið
fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga
vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins.
Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448
eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is
*P
re
nt
m
ið
la
kö
nn
un
C
ap
ac
en
t
ok
tó
be
r–
de
se
m
be
r 2
01
2
–
hö
fu
ðb
or
ga
rs
væ
ði
2
5-
54
á
ra
HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN
Í FRÉTTABLAÐINU
1
1
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
C
7
-0
5
4
0
1
3
C
7
-0
4
0
4
1
3
C
7
-0
2
C
8
1
3
C
7
-0
1
8
C
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K